Samtíðin - 01.10.1965, Qupperneq 31
SAMTÍÐIN
27
ÚR EINU -
ÍTALSKA leikkonan Anna Magnani ee
farin að leika á sviði eftir 10 ára fjar-
vist þaðan. Hinum kunna leikstjóra Ital-
anna, Franco Zeffirelli, liefur tekizt að
fá liana til að taka að sér lilutverk i hin-
um nýja sjónleik La Lupa (Kvenúlfin-
um) eftir Giovanni Vargas. Eftir frum-
sýninguna í Florenz er áformað að sýna
leikinn ekki einungis á Italíu, heldur
einnig í París.
JACKIE KENNEDY fær enn upp und-
ir 2000 samúðarbréf á viku, þótt alllangt
sé nú liðið frá láti forsetans. Þingnefnd
i Washington hefur því lagt til, að
frúnni verði á komandi ári veitl opin-
ber fjárveiting, sem jafngildir um 2
millj. og 400 þús. isl. kr. til að standa
straum af kostnaðinum við að svara öll-
um þessum hréfafjölda.
TALIÐ er, að ekki séu nema um 4000
nashyrningar í heiminum. Engu að síður
eru nashyrningaveiðar stundaðar af
meira kappi en nokkru sinni áður.
MAÐUR nokkur kom til listmálara og
hað liann að mála fyrir sig mynd af
Adam og Evu. Málarinn spurði, hvort
niyndin ætti að vera af foreldrum jnann-
kynsins fyrir eða eftir syndafall þeirra.
„Meðan á því stóð,“ svaraði maðurinn.
SÉRFRÆÐINGAR fullyrða, að höfuð-
stöðvar ástarinnar séu í Bandarikjun-
Um, enda segi læknar og sálfræðingar,
að hvergi sé hjónabandið vinsælla en
þar. Mjög algengt er, að handarískar
stúlkur giftist innan við tvítugt.Sjötti
liluti bandariskra stúlkna á aldrinum
15—19 ára er giftur, en um það bil helm-
ingur drengja á sama aldri. 92% Banda-
ríkjaþjóðarinnar upp að 65 ára aldri
liafa einhvern tíma verið í hjónabandi.
En þó að bandarískir unglingar innan
við tvítugt (táningarnir) séu óðfúsir að
giftast, skortir mjög á, að unnt sé að
segja almennt: Þau lifðu í hamingju-
sömu hjónabandi til æviloka.
MAÐUR nokkur týndi dýrindis sjálf-
blekung í veitingahúsi. Penninn var
vandlega merktur nafni hans, heimilis-
fangi og símanúmeri. Tvö ár liðu. Þá
var hringt til mannsins úr öðru veit-
ingaliúsi og honum sagt, að maður hefði
gleymt þar penna með nafni lians o. s.
frv.
VIÐ lásum nýlega í erlendu blaði, að
fyrrmyndar eiginkona ælti að vera allt
í senn: þroskuð og ungleg, dugleg og
umkomulaus(!) gagnvart manni sínum
að minnsta kosli, eggjandi og dvggðug,
vel klædd og sparsöm, fær um að elda
matinn með annarri hendinni og sinna
jafnframt ungbörnunum með hinni, vera
sjálfstæð í skoðunum, en samtímis berg-
mál af skoðunum manns síns.
TVEIR feður voru að ræða um barna-
uppeldi. Þeim kom saman um, að fólk
byggi Iengi að þvi, sem það vendist frá
blautu barnsbeini. Annar þeirra sagði:
„Þegar ég var ársgamall, borgaði móð-
ir mín kvenmanni kaup fyrir að aka
mér í kerru, og síðan hef ég alla ævi
verið keyrður áfram með peningum “
- I ANNAÐ