Samtíðin - 01.10.1965, Blaðsíða 35
SAMTÍÐIN
31
Þeir VITRU sögðu Nýjar bækur f
GEIR HALLGRlMSSON: „Saga fram-
tíðarinnar verður skrifuð af öllurn Islend-
ingum, sem nú lifa og eftir eiga að starfa
— að vísu mismunandi sterkum og ör-
lagaríkum dráttum .... Sumum mönn-
um finnst stundum allt vera leiðinlegt og
fánýtt — telja, að enginn hugsi nema
þeir, en allir aðrir sinni aðeins líðandi
stund. Slíkur nöldurtónn getur einstaka
sinnum komið af stað gagnlegunt lífs-
hræringum, en almennt ber hann vitni
þess, að nöldrarinn gerir meiri kröfur til
annarra en sjálfs sín. Fullyrða má, að eng-
in kynslóð hefur átt betra hlutskipti á
íslandi en við, sem nú lifum, og vafa-
samt er, að annars staðar um víða veröld
sé nú skemmtilegra að lifa en á Islandi,
meiri tækifæri til að tjá sig og betri mögu-
leikar að njóta hæfileika sinna. Óvíða á
ungt fólk fleiri leiðir opnar. Óvíða getur
æskumaðurinn betur reynt krafta sína í
lífsbaráttunni og fundið, að bað rnunar
um hann og framlag hans. Hér þarf ein-
staklingurinn ekki að hverfa í fjöldann.“
PICASSO: „Ég er ekki einn af þeim,
sem vantreysta ást við fyrstu sýn, en ég
álít, að maður eigi að skoða stúlkuna oft-
ar en einu sinni. . . Hvísl fallegrar stúlku
heyrist hetur en háværasta rödd skyld-
unnar . . . Maður, sem á ekki konu, sem
trúir á hann og elskar hann, er í þann
veginn að glata sjálfsvirðingu sinni.“
H. W. BEECHER: „Sérhver rnaður ætti
að eiga sér rúmgóðan kirkjugai’ð til þess
að grafa yfirsjónir vina sinna í.“
OLIVER WENDELL HOLMES: „Arf-
gengi er strætisvagn, sem allir foifeður
okkar aka í. öðru hverju stingur einhver
þeirra höfðinu út og kemur okkur í
bobba.“
Guðrún A. Jónsdóttir: Taminn til kosta. Skáld-
saga. Fyrri og síðari hluti. 298 l)ls., íb. kr.
240.00.
Jakob Jónsson: Myllusteinninn. Skáldsaga. 223
bls., ib. kr. 240.00.
Anitra: Guro. Skáldsaga. Stefán Jónsson þýddi.
220 bls., íb. kr. 190.00.
I’áll G. Kolka: Úr myndabók læknis. Bókin hef-
ur að geyma ýmsar minningar frá læknisævi
höfundar, kvæði, fyrirlestra og ritgerðir.
280 bls., íb. kr. 284.00.
Heinz Knoke: Ég flaug fyrir foringjann. Sjálfs-
ævisaga eins fremsta orustuflugmanns Þjóð-
verja i siðari heimsstyrjöldinni. Með mynd-
um. Ásgeir Ingólfsson jxýddi. 171 bls., íb. kr.
220.00.
Björn Jóhannsson: Frá Valdastöðum til Vetur-
húsa. Brot úr endurminningum. Mcð mynd-
um. 223 bls., íb. kr. 200.00.
Fegurst af öllum. Saga aðalsmeyjar og bónda-
sonar. G. M. Thompson þýddi. 105 bls., ib.
kr. 110.00.
Ragnheiður Jónsdóttir: Og enn spretta laukar.
Úr minnisblöðum Þóru frá Hvammi. 180 bls.,
ib. kr. 245.00.
Wladimir Korolenko: Blindi tónsnillingurinn.
Skáldsaga. 2. útg. Guðmundur Guðmundsson
þýddi. 142 bls., ób. kr. 85.00.
Ólafur Olavius: Ferðabók I. bindi. Landshagir
i norðvestur — norður- og norðaustursýslum
Íslands 1775—1777. Steindór Steindórsson
þýddi. 330 bls., íb. kr. 425.00.
Steinn Steinarr: Ivvæðasafn og greinar. Inn-
gangur eftir Kristján Karlsson. 371 bls., ib.
kr. 445.00.
Signe Utne: Skólaástir. Skáldsaga fyrir ungar
stúlkur. Guðrún Guðmundsdóttir þýddi. 128
bls., ób. kr. 120.00.
John Steinbeck: Mýs og menn. Lcikrit (Smá-
bækur Menningarsjóðs 17). Ólafur Jóh. Sig-
urðsson þýddi. 117 bls., íb. kr. 140.00.
Útvegnm allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk-
urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bókaverzlun Isafoldar
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.