Fréttablaðið - 16.02.2010, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 16. febrúar 2010
„Þær eru búnar að gera nokkrar
prufur en þetta er fyrsta flíkin,“
segir Erla Elín Hansdóttir, kenn-
ari í Kvennó, og horfir stolt yfir
stúlknahópinn í hannyrðastofunni
sem er með metnaðarfull verkefni á
prjónunum. „Eftir vettlingana fara
þær út í frjálsan útsaum og þá læra
þær meðal annars blómasaum og að
búa til snyrtibuddu. Svo fara þær út
í harðangur og klaustur,“ lýsir hún.
„Ég sé ekki um kennslu á stórum
stykkjum en leiðbeini nemendum
með þau ef þeir vilja.“
Hannyrðir eru valfag hjá um
fimmtíu nemendum Kvennaskólans
á yfirstandandi önn. Þeir sem sitja
við prjónana þennan daginn eru á
sínu síðasta ári í skólanum en eru
flestir byrjendur í mynsturprjóni.
Þeir eru almennt áhugasamir og
telja miklar líkur á að hannyrða-
námið nýtist þeim í framtíðinni.
gun@frettabladid.is
Vettlingur fyrsta flíkin
Nokkrir nemendur Kvennaskólans í Reykjavík eru niðursokknir í prjónaskap þegar blaðamaður og ljós-
myndari banka á dyr. Rósavettlingar eru fyrstu meistarastykkin og mynstrin hafa þeir teiknað sjálfir.
Gaman hjá Hrefnu Guðmundsdóttur, Ásdísi S. Ásgeirsdóttur
og Sigrúnu Viðarsdóttur.
Ástrós Ásmundsdóttir hefur teiknað hjartamynstur og prjónað
í vettlinginn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Hér er hyrna sem er gerð með sömu prjónaaðferð og þið
notuðuð í gatamynsturprufunum,“ segir Erla Elín kennari.
Það er vandasamt að setja niður mynstur eins og Linda Jason-
ardóttir er meðvituð um.
Guðrún Ósk Sæmundsdóttir notar bæði tölvu og rúðustrikað
blað við hönnunina.
Upplýsingar um viðburði, uppskriftir og fróð-
leik sem tengist prjóni eru á meðal þess
sem finna má á vefsíðunni prjóna.is sem
nýtur nú mikilla vinsælda.
www.prjona.net