Fréttablaðið - 22.03.2010, Síða 2
2 22. mars 2010 MÁNUDAGUR
Þórður, þarf ekki að setja
kvóta á þjóðaratkvæðagreiðsl-
ur?
„Spyrjum þjóðina.“
Þórður Már Jónsson er formaður Þjóðar-
eignar, samtaka um auðlindir í almanna-
þágu. Meirihluti landsmanna vill kjósa
um framtíð kvótakerfisins, samkvæmt
könnun Fréttablaðsins.
SPURNING DAGSINS
NÝSKÖPUN Kanadíska fyrirtæk-
ið Timminco Limited hefur hætt
framleiðslu á sólarkísilflögum
tímabundið og mun blása lífi í hana
þegar eftirspurn eykst.
„Við eigum miklar birgðir,“ segir
John Fenger, framkvæmdastjóri
Timminco, í samtali við Frétta-
blaðið. Tíminn verði notaður til að
auka gæði afurða fyrirtækisins.
Aðgerðin muni ekki setja skarð
í áætlanir enda um aðeins hluta
af heildarumfangi Timminco að
ræða, að hans sögn.
Timminco vinnur með nýsköp-
unarfyrirtækinu Stokki Energy
að byggingu kísilmálm- og sólar-
kísilverksmiðju, sem áformað er
að reisa rétt vestan við Þorláks-
höfn í Ölfusi. Fyrir mánuði und-
irrituðu þau samning við Orku-
veitu Reykjavíkur um orkusölu til
verksmiðjunnar til tuttugu ára. Öll
orkan á að koma frá Hverahlíðar-
virkjun.
Framkvæmdir við verksmiðjuna
eru ekki komnar langt á veg en lóð
hefur verið tekin frá fyrir hana í
Ölfusi, að sögn Ólafs Áka Ragnars-
sonar bæjarstjóra. Sveitarfélag-
ið hefur ekki lagt fé í verkefnið.
Fundað verður um framkvæmd-
ir henni tengdri á mánudag. Hann
bætir við að engar breytingar hafi
verið gerðar á áætlunum. Undir
það tekur Eyþór Arnalds, fram-
kvæmdastjóri Stokks Energy.
Samkvæmt uppgjöri Timminco
sem birt var í vikunni tapaði fyr-
irtækið 69,4 milljónum kanadískra
dala, jafnvirði rúmra 8,7 milljarða
íslenskra króna, á fjórða ársfjórð-
ungi í fyrra. Verð hlutabréfa í
fyrirtækinu hefur lækkað mikið.
Fréttablaðið sagði frá því fyrir
mánuði að neikvæð þróun fyrir-
tækisins gæti haft áhrif á rekstr-
arhæfi þess. Erlendir fjármálasér-
fræðingar hafa verið á sama máli
í vikunni. Fyrirtækið lokaði einu
verksmiðju sinni í maí í fyrra og
sagði upp hluta starfsfólks. Þar
eru þrír ofnar til kísilmálmfram-
leiðslu sem geta framleitt 45-50
þúsund tonn af kísilmálmi á ári.
Framleiðsla hófst þar að nýju í
fyrrahaust.
John, sem tók við starfi fram-
kvæmdastjóra í byrjun síðasta árs,
segir tapið í fyrra tilkomið vegna
nauðsynlegra afskrifta, svo sem á
fastafjármunum og birgðum. „Að
öðru leyti erum við á lygnum sjó,“
segir hann. jonab@frettabladid.is
Sólarkísilverksmiðja
enn á teikniborðinu
Kanadískt fyrirtæki sem vill reisa sólarkísilverksmiðju við Þorlákshöfn hefur
hætt þróunarvinnu. Erlendir fjölmiðlar segja forsvarsmenn fyrirtækisins hafa
logið að fjárfestum. Setur ekki skarð í áætlanir hér, segir framkvæmdastjórinn.
ÞORLÁKSHÖFN Tímabundnar aðgerðir kanadíska fyrirtækisins Timminco setja ekki
skarð í áætlanir um byggingu sólarkísilverksmiðju í Ölfusinu sem á að ræsa eftir
fimm ár, segja forsvarsmenn verkefnisins.
SÖFNUN Þegar hafa safnast rúm-
lega 17 milljónir króna í mottu-
keppninni, sem er hluti af söfn-
unarátakinu Karlmenn og
krabbamein. Úrslitin í mottu-
keppninni verða ljós í beinni
útsendingu söfnunarþáttar á Stöð 2
næstkomandi föstudag.
Yfir 2.200 menn hafa skráð sig
til leiks og 430 lið. Valinn verður
sigurvegari í einstaklingskeppn-
inni, sá sem safnar mestum
áheitum, á föstudag milli fimm
efstu keppendanna klukkan 17 á
fimmtudag, þegar söfnuninni verð-
ur lokað, að því er fram kemur í
tilkynningu frá söfnuninni. - bj
17 milljónir hafa safnast:
Mottumeistari
valinn í beinni
FJÁRFESTAR TELJA SIG BLEKKTA
Timminco var stofnað fyrir sjötíu
árum og var nokkuð hefðbundið
málmiðnaðarfyrirtæki fram til 2006
þegar það tilkynnti að það hefði
þróað tækni til að framleiða sólar-
kísilvörur með ódýrari hætti en áður
þekktist. Gengi hlutabréfa í Timm-
inco hafði um sama leyti legið rétt
undir þrjátíu kanadískum sentum
á hlut. Það tók snarpan kipp upp
á við og fór hæst í tæpa 35 dali
um mitt ár 2008. Þetta jafngildir
hundraðfaldri hækkun. Nú tæpum
tveimur árum síðar er það komið í
um einn dal á ný.
Fjárfestar segja forsvarsmenn
Timminco hafa lagt fram fegraðar
viðskiptaáætlanir og talað gengi fyrir-
tækisins upp í hæstu hæðir. Þeir hafa
nú höfðað mál gegn fyrirtækinu.
John Fenger segist hafa skilning á
því að fjárfestar séu sárir eftir að hafa
tapað háum fjárhæðum á viðskiptum
með bréfin. Málaferli sem þessi séu
algeng vestanhafs. „Við erum tryggðir
fyrir þessu,“ segir hann.
SLYS Sex ára gamall drengur
slasaðist talsvert á höfði þegar
grjót féll á hann á Eskifirði á
laugardag. Hann er á batavegi.
Drengurinn var að leik við
Grjótá þegar grjótið féll á hann.
Við það datt hann í ána. Fólk í
nágrenninu sá atvikið og kom
drengnum til hjálpar.
Hann var fluttur á sjúkrahús-
ið í Neskaupstað og þaðan til
Reykjavíkur til nánari skoðun-
ar. Hann verður líklega útskrif-
aður af Landspítalanum í dag.
- þeb
Grjóthrun á Eskifirði:
Sex ára dreng-
ur slasaðist
ATVINNUMÁL Ísland er í 14. sæti
af 33 Evrópulöndum í nýrri
mælingu Evrópusambandsins á
nýsköpunarvirkni þjóða. Ísland
fellur í flokk fylgiþjóða (e. inn-
ovation followers), ásamt Aust-
urríki, Belgíu, Kýpur, Eistlandi,
Frakklandi, Írlandi, Lúxemborg,
Slóveníu og Hollandi.
Sá flokkur er talinn standa
úrvalsþjóðunum (e. innovation
leaders) að baki en er þó að jafn-
aði ofan við eða nálægt meðal-
tali Evrópusambandslandanna,
að því er segir í tilkynningu frá
Rannís. - sh
Ísland í öðrum flokki:
Fjórtándu í ný-
sköpunarvirkni
Funda í Kaupmannahöfn
Claus Hjort Frederiksen, fjármálaráð-
herra Danmerkur, er gestgjafi á fyrsta
fundi norrænu fjármálaráðherranna á
formennskutíma Dana í Norrænu ráð-
herranefndinni árið 2010. Fundurinn
hefst í dag. Ráðherrar frá Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi og Noregi
sitja fundinn, auk staðgengla frá
Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi.
NORÐURLÖND
AFGANISTAN, AP Þrettán óbreyttir
borgarar féllu á sunnudag í
Helmand-héraði í Afganistan.
Tíu féllu og sjö særðust í
sjálfsmorðsárás í borginni Ger-
eshk. Árásin var gerð í næsta
nágrenni við afganska hersveit.
Þá féllu tveir þegar vega-
sprengja sprakk og eldri maður
var skotinn til bana af afgönsk-
um og erlendum hermönnum.
Leynilegar viðræður hafa
átt sér stað á milli talibana og
afganskra stjórnvalda, með
þátttöku alþjóðasamfélagsins.
Á sama tíma hefur hermönnum
Bandaríkjamanna og Nató
fjölgað gríðarlega í landinu. - kóp
Skálmöld í Afganistan:
Þrettán féllu á
sunnudaginn
MENNING Fjórir rithöfundar fengu
Fjöruverðlaunin í gær, en þau
eru bókmenntaverðlaun kvenna.
Þetta er í fjórða
skipti sem verð-
launin eru veitt.
Ingunn Snæ-
dal fékk verð-
laun í flokki
fræðirita fyrir
ljóðabókina
Komin til að
vera, nóttin. Í
flokki fræði-
rita hlaut Þór-
dís Elva Þorvaldsdóttir verðlaun
fyrir Á mannamáli. Þá hlutu tvær
bækur verðlaun í flokki barna-
og unglingabóka; Arngrímur
apaskott og fiðlan eftir Kristínu
Arngrímsdóttur og Aþena (ekki
höfuðborgin í Grikklandi) eftir
Margréti Örnólfsdóttur. - kóp
Bókmenntaverðlaun kvenna:
Fjöruverðlaun í
fjórða skipti
VATÍKANIÐ, AP Benedikt sextándi páfi
baðst afsökunar á kynferðisbrotum
innan kaþólsku kirkjunnar á Írlandi
á laugardag. Það gerði hann í bréfi
sem var lesið upp í messum um allt
landið.
Páfinn minntist ekki á upp-
ljóstranir um kynferðislega mis-
notkun innan kirkjunnar í öðrum
Evrópulöndum. Hann hefur sjálf-
ur verið sakaður um að hafa hylmt
yfir kynferðisbrot þegar hann var
erkibiskup í Þýskalandi. Yfir þrjú
hundruð kynferðisbrotamál innan
kirkjunnar þar í landi hafa komið
upp á yfirborðið á þessu ári, meðal
annars í kaþólskum kór sem bróðir
páfans stjórnaði lengi.
Talsmenn fórnarlambanna á
Írlandi hafa gagnrýnt páfa fyrir
að grípa ekki til refsinga gagnvart
kynferðisbrotamönnunum. Hann
hefur einnig verið gagnrýndur fyrir
að minnast ekki á ábyrgð Vatíkans-
ins í málinu. Í vikulegri ræðu sinni
í gær vék páfinn að fyrirgefning-
unni og bað fólk um að dæma ekki
þá sem hafi syndgað. - þeb
Benedikt sextándi páfi sendi fórnarlömbum misnotkunar bréf um helgina:
Baðst afsökunar á misnotkun
BENEDIKT PÁFI Páfinn baðst afsökunar á
misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar á
Írlandi en minntist ekki á önnur lönd.
MARGRÉT
ÖRNÓLFSDÓTTIR JALAL TALABANI
ÍRAK, AP Jalal Talabani, forseti
Íraks, krafðist þess í gær að
atkvæði yrðu talin á ný, en
kosið var til
þings í Írak 7.
mars. Taln-
ingu atkvæða
er ekki lokið
og hefur ríkt
pólitísk óvissa
í landinu frá
kosningum.
Talabani
sagði á heima-
síðu sinni að telja þyrfti allt á
ný til að „eyða öllum efa og mis-
skilningi“. Hann sagðist setja
kröfuna fram sem forseti ríkis-
ins og sem slíkur væri það hans
hlutverk að vernda stjórnar-
skrána. Krafa forsetans kemur
í kjölfar yfirlýsingar helsta
keppinautar hans, forsætisráð-
herrann Nouri al-Maliki, sem
lýsti sig, á laugardag, hlynntan
endurtalningu. - kóp
Óvissa í Írak eftir kosningar:
Forsetinn vill
að talið sé á ný
STJÓRNMÁL Íslensk stjórnvöld undirbúa nú endur-
skoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (AGS). Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er unnið að því að sú endurskoðun
fari fram, þrátt fyrir að Icesave-deilunni sé ekki
lokið. Sú vinna er á lokastigi af Íslands hálfu.
Stjórnvöld hafa þrýst á Norðurlandaþjóðirnar um
að taka þátt í fjármögnun á Íslandi þótt Icesave sé
ekki lokið. Jóhanna Sigurðardóttir hefur rætt við
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, á síð-
ustu dögum, og þeir Össur Skarphéðinsson og Jonas
Gahr Störe, utanríkisráðherrar þjóðanna, hafa einn-
ig ræðst við sem og fjármálaráðherrar þjóðanna
tveggja.
Háttsettur embættismaður frá hollenska utanrík-
isráðuneytinu var hér á ferð í síðustu viku og ræddi
við fjölda embættismanna. Svo virðist sem Hollend-
ingar hafi verið tregir að setjast að samningaborð-
inu og innan íslenska stjórnkerfisins er það metið
þannig að þeir vilji hlé frá viðræðunum. Óvíst er
hverju það sætir og hvort það tengist þeirri stað-
reynd að nú situr starfsstjórn í landinu. - kóp
Forsætisráðherra hefur rætt við norskan starfsbróður sinn um AGS:
Undirbúa endurskoðunina
STOLTENBERG Jóhanna Sigurðardóttir ræddi nýverið við Jens
Stoltenberg um fjármögnun á Íslandi þrátt fyrir að ekki hafi
samist um Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FRAKKLAND, AP Hægriflokkur
Nicolas Sarkozy Frakklands-
forseta tapaði í sveitarstjórnar-
kosningum um helgina.
Þegar um
80 prósent
atkvæða höfðu
verið talin
í gærkvöldi
hafði banda-
lag undir for-
ystu Sósíalista-
flokksins hlotið
rúm 53 pró-
sent atkvæða
á landsvísu. Flokkur forsetans,
UMP, og bandalag hans höfðu
fengið rúm 35 prósent. Franski
þjóðarflokkurinn hafði fengið 10
prósent atkvæða.
Forsætisráðherrann Francois
Fillon viðurkenndi ósigur UMP
og sagðist ætla að ræða stöðuna
við forsetann í dag.
- þeb
Kosningar í Frakklandi:
Flokkur Sar-
kozy tapaði
NICOLAS SARKOZY