Fréttablaðið - 22.03.2010, Side 43
MÁNUDAGUR 22. mars 2010 27
KLÁRAÐU
LEIKINN
–með nýju og endurbættu Soccerade
Er byggt á Leppin Smart Energy
Inniheldur flókin kolvetni
Ekkert koffín, taurín eða önnur örvandi efni
Náttúruleg litarefni
Án Aspartam
KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur gátu
tryggt sér áfram í úrslitaeinvígi
Iceland Express-deildar kvenna
í gær hefði þeim tekist að vinna
Hamar á heimavelli sínum. Það
fór hins vegar á annan veg.
Konurnar frá blómabænum
Hveragerði sýndu ótrúlega öfl-
ugan varnarleik og framkvæmdu
slátrun á heimakonum í sláturhús-
inu í Keflavík. Leikurinn endaði
91-48 fyrir Hamar og sá Keflavík
aldrei til sólar í leiknum.
Hamar vann alla leikhlutana
fjóra en mestur var munurinn í
fjórða leikhluta sem liðið vann
26-4. Heimakonur skoruðu aðeins
fjögur stig í leikhlutanum sem er
með hreinum ólíkindum.
Staðan í einvíginu er því jöfn
eftir þessi úrslit, 2-2, og eigast
liðin við í oddaleik í Hveragerði
annað kvöld. Þá kemur í ljós hvort
liðið etur kappi við KR í úrslita-
einvíginu. KR sló út Íslands- og
bikarmeistara Hauka á föstudags-
kvöldið.
Bryndís Guðmundsdóttir var
stigahæst í Keflavíkurliðinu með
14 stig, Birna Valgarðsdóttir var
með 13 stig og Kristi Smith 9.
Hjá gestunum frá Hveragerði
var Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í
aðalhlutverki með 22 stig, 9 frák-
öst og 5 stoðsendingar. Koren
Schram skoraði 19 stig og Krist-
rún Sigurjónsdóttir 15 auk þess að
eiga 7 stoðsendingar.
Hreint ótrúlegur sigur Hamars
og ljóst að einstaklega spennandi
leikur er eftir í þessu athyglis-
verða undanúrslitaeinvígi. - egm
Keflavík tókst ekki að komast í úrslitin í gær þegar liðið fékk Hamar í heimsókn:
Var slátrað í eigin sláturhúsi
ODDALEIKUR Hamarskonur fá heimaleik
á morgun í einvíginu gegn Keflavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI José Mourinho, þjálfari
Inter, er sagður hafa áhuga á að
koma aftur til Englands og taka
við stjórastöðunni á Anfield.
Aftur á móti segir Mourinho að
hann hafi ekki áhuga á starfinu
hjá Liverpool meðan Tom Hicks
and George Gillet eru eigendur
félagsins.
Liverpool á í viðræðum við
Rhone Group sem vilja fjárfesta
í félaginu. Ef það gengur eftir
er líklegt að þeir félagar Tom
og George sleppi taumunum og
Rhone Group stjórni ákvörðunum
félagsins. - rog
José Mourinho í umræðunni:
Tekur hann við
Liverpool?
LITRÍKUR Mourinho liggur ekki á skoð-
unum sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Lionel Messi fór mikinn
í liði Barcelona sem vann Real
Zaragoza 4-2 í gær. Messi fiskaði
vítaspyrnu, skoraði þrjú mörk og
þar á meðal eitt eftir glæsilegt
einstaklingsframtak.
Zaragoza minnkaði muninn í
eitt mark þegar ein mínúta var
til leiksloka. Barcelona brunaði
fram í sókn. Lionel Messi dans-
aði með boltann innan teigs, var
sparkaður niður í kjölfarið og
vítaspyrna dæmd.
Zlatan Ibrahimovic fór á
punktinn og skoraði örugglega
og tryggði þar með dýrmæt stig
fyrir Barcelona í titilbaráttunni
á Spáni.
Barcelona hefur nú jafnað Real
Madrid á stigum en bæði lið eru
nú með 68 stig á toppi spænsku
deildarinnar.
Messi er kominn með ellefu
mörk í síðustu fimm leikjum
Börsunga. - rog
Hinn magnaði Lionel Messi:
Ellefu mörk í
fimm leikjum
ÓTRÚLEGUR Lionel Messi er funheitur
um þessar mundir. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI AC Milan mistókst að
ná toppsætinu í ítalska boltan-
um þegar liðið gerði 1-1 jafntefli
gegn Napoli í gær. Þar sem Inter
gerði jafntefli á laugardaginn
gátu Leonardo og lærisveinar
hans komist í toppsætið.
Hugo Campagnaro kom Napoli
yfir eftir varnarmistök frá Mass-
imo Oddo en gamli refurinn Fil-
ippo Inzaghi jafnaði með skalla
eftir fyrirgjöf frá Ronaldinho
sem fagnaði 30 ára afmæli sínu
í gær.
AC Milan er eftir þessi úrslit
ennþá stigi á eftir Inter. Diego
Milito kom Inter yfir gegn Pal-
ermo á laugardaginn en Edinson
Cavani jafnaði á 24. mínútu og
þar við sat. - egm
Grannarnir Inter og AC Milan:
Jafntefli hjá
báðum liðum