Fréttablaðið - 22.03.2010, Page 46
30 22. mars 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Önnur plata Hjaltalín, Terminal, kemur út
í Evrópu 24. maí með hjálp ýmissa útgáfu-
og dreifingarfyrirtækja víða um álfuna.
Sveitin er ekki með eiginlegan útgáfusamn-
ing erlendis og er því með marga á sínum
snærum við að koma sér á framfæri.
„Þetta er eins og gengur og gerist núna
á þessum tímum þegar plötusala er svona
lítil,“ segir söngvarinn og gítarleikarinn
Högni Egilsson. „Maður reynir að gera
þetta til að platan sé til alls staðar og fólk
geti nálgast hana. Svo spilar maður bara á
tónleikum og vonar það besta.“
Þrír aðilar starfa á vegum Hjaltalín í
Bretlandi, þar sem einna mikilvægast er að
fanga athyglina. Einn bókar tónleika, annar
er í samskiptum við dagblöð og sá þriðji
reynir að koma sveitinni að í útvarpi.
Högni segir mikilvægt að ýta á alla rétta
takka til að ná eyrum almennings. „Þetta
snýst um að pota og pota. Stór útgáfufyrir-
tæki taka ekki bönd nema þau hafi gefið út
tvær til þrjár plötur og séu með „nethæp“.
Það eru engir peningar í plötusölu og á end-
anum þurfa allir að spila músík til að afla
sér tekna. Það er erfiðara fyrir bönd að vera
bókuð því það eru allir að spila svo mikið.“
Hjaltalín fer í stóra tónleikaferð um Evr-
ópu í haust til að fylgja plötunni eftir auk
þess sem einhverjir tónleikar verða haldnir
í maí. Tónleikaferð um Bandaríkin er einnig
fyrirhuguð í haust en óvíst er hvenær platan
kemur út þar í landi.
Umsagnir um Terminal eru væntanlegar
í bresku tónlistartímaritunum Q, Mojo og
Clash og verður forvitnilegt að sjá hvaða
móttökur platan fær. Hún var kjörin besta
poppplatan á Íslensku tónlistarverðlaunum
og var efst hjá tónlistarspekúlöntum Frétta-
blaðsins yfir bestu plötur síðasta árs.
-fb
Terminal til Evrópu 24. maí
HÖGNI EGILSSON Hljómsveitin Hjaltalín gefur út plötu
sína Terminal í Evrópu 24. maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Chris Biggs, einn af framleiðend-
um hryllingsmyndanna Hostel
eftir Eli Roth, verður einn af
framleiðendum íslensku glæpa-
myndarinnar Svartur á leik sem
byggð er á samnefndri bók Stef-
áns Mána. Danski kvikmynda-
leikstjórinn Nicholas Wind-
ing Refn verður einnig einn af
framleiðendum myndarinnar en
hann er hvað þekktastur fyrir
undirheimamyndir sínar Pusher
sem nutu mikilla vinsælda hér á
landi. Þórir Snær Sigurjónsson
hjá ZikZak er náinn vinur Refns
en Þórir framleiddi Valhalla-
mynd leikstjórans sem skartaði
Mads Mikkelsen í aðalhlutverki.
Að sögn Óskars Þór Axels-
sonar, leikstjóra myndarinnar
og handritshöfundarins, er það
mikill fengur fyrir myndina að fá
þessa tvo aðila til liðs við mynd-
ina. „Biggs er mikill Íslandsvin-
ur, kemur hingað reglulega og
hreifst af handritinu. Hann hefur
sínar hugmyndir um hvernig hún
getur verið eins íslensk og mögu-
legt er,“ segir Óskar þegar Frétta-
blaðið settist niður með honum
og Stefáni Mána. Rithöfund-
urinn sjálfur var ákaflega
spenntur fyrir því að sjá bók-
ina lifna við á hvíta tjaldinu
og hann er sáttur við hand-
ritið. „Það sem mér finnst
eiginlega skemmtilegast er
að bókin er ekki eins og
kvikmyndin og kvik-
myndin er ekki eins
og bókin. Sá sem
hefur lesið bókina
er því ekki búin að
sjá kvikmyndina
og svo öfugt,“ segir
Stefán.
Ó sk a r s e g i r
stefnt á tökur
um miðjan júlí en
eins og Fréttablað-
ið hefur greint frá
mun Þorvaldur
Davíð Kristj-
ánsson koma
beint úr námi
sínu við Julli-
ard-skólann í
New York og
leika aðal-
hlutverk-
ið, sjálfan
Stebba Sækó.
Jóhannes
Haukur Jóhann-
esson mun síðan leika dyravörð-
inn Tóta, hrottann ógurlega.
„Hann þarf að leggja mikið á sig
líkamlega, taka vel á því í rækt-
inni, krúnuraka sig og safna
hökutopp. En mér skilst að hann
hlakki bara mikið til enda er
þetta mesta áskorunin fyrir leik-
ara, að taka svona hlutverk að
sér,“ skýtur Stefán inn í en það
eru framleiðslufyrirtækin Film-
us og ZikZak sem standa að gerð
myndarinnar. -fgg
STEFÁN MÁNI SIGÞÓRSSON: GET EKKI BEÐIÐ EFTIR ÚTKOMUNNI
Hostel-framleiðandi vinnur
að íslenskri glæpamynd
SPENNTIR Stefán Máni og Óskar Þór geta vart beðið eftir því að tökur á
kvikmyndinni Svartur á leik hefjist. Myndin er gerð eftir samnefndri bók
Stefáns en það eru þeir Þorvaldur Davíð og Jóhannes Haukur sem leika
aðalhlutverkin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Eina ráðið mitt í sambandi við konur er að
halda við tvær eða þrjár,“ segir fótboltahetjan
Dwight Yorke í viðtali við breska dagblaðið
Daily Express.
Yorke hefur reglulega boðið Akureyrarmær-
inni Kristrúnu Ösp Barkardóttur út til sín und-
anfarin misseri og nú síðast fóru þau í rómant-
íska siglingu í Karíbahafinu. Ummælin koma
ekki illa við Kristrúnu, sem ítrekar að þau séu
ekki saman, þrátt fyrir að þau hafi verið að
hittast í tvö ár. „Hann hefur ekki hugmynd um
hvað ég er að gera þegar við erum ekki saman
og ég veit ekki hvað hann er að gera heldur,“
segir hún. „Þó ég myndi ákveða að fara að vera
með honum og flytja út til hans, þá myndi ég
ekki vita það vegna þess að hann ferðast mikið.
Ég geri mína hluti og hann gerir sína.“
Dwight Yorke gerði það gott með liðum á
borð við Manchester United og Aston Villa á
árum áður og var um tíma á meðal fremstu
sóknarmanna heims. Kristrún segir að hann
sé frábær, enda komi hann afar vel fram
við hana. „Við erum alltaf að gera eitthvað
skemmtilegt og kynlífið er gott,“ segir hún.
„Ég er ekki tilbúin til að fara í samband og
byrja að búa með einhverjum. Af hverju ætti
ég þá að vera spá í því hvort hann sé með
öðrum konum?“
Hvað framtíðin ber í skauti sér verður að
koma í ljós segir Kristrún. „Við töluðum mikið
saman þegar ég var úti í hjá honum i Englandi
í vikunni og hann var að ýta undir að það yrði
meira eitthvað meira úr þessu hjá okkur,“
segir hún. - afb
Dwight gerir sína hluti og ég geri mína
EKKI SAMAN Kristrún Ösp og Dwight Yorke eru ekki
saman þótt þau hittist reglulega.
LÁRÉTT
2. ómskoðun, 6. hola, 8. forsögn, 9.
stilla, 11. fyrir hönd, 12. flatfótur, 14.
kvk nafn, 16. skóli, 17. fax, 18. fugl,
20. skóli, 21. staðarnafn.
LÓÐRÉTT
1. skítur, 3. fyrirtæki, 4. ósigur, 5. lík,
7. land í Evrópu, 10. írafár, 13. angan,
15. ilmur, 16. skammst., 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómun, 6. op, 8. spá, 9.
róa, 11. pr, 12. ilsig, 14. lilja, 16. ma,
17. mön, 18. önd, 20. fg, 21. oddi.
LÓÐRÉTT: 1. sori, 3. ms, 4. uppgjöf,
5. nár, 7. pólland, 10. asi, 13. ilm, 15.
angi, 16. möo, 19. dd.
„Sjónvarpsþátturinn minn er
Nurse Jackie, ég sakna hans
alveg ógurlega. Þetta var svo
skemmtilega raunsæ týpa.“
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Það var skammt
stórra högga á milli
hjá sjónvarpsmannin-
um Ómari Ragnars-
syni í fyrrakvöld. Hann
kom sér fyrir í
sjónvarpsveri
Stöðvar 2
Sport og lýsti
æsilegum
bardaga
Wladimirs
Klitschko
gegn Eddie
Chambers
þar sem rothöggið kom fimm sek-
úndum áður en bardaginn var úti.
Ómar hefur væntanlega búist við
því að þar með væri dagurinn úti
enda komið nálægt miðnætti.
Ómar var hins vegar varla kominn
til síns heima en hann var sestur
upp í jeppabifreið sína og keyrði
ásamt dóttur sinni og fréttamanni
RÚV, Láru Ómars-
dóttur, í átt að
Fimmvörðuhálsi þar
sem byrjað var að
gjósa. Og ævintýrin
virtust elta Ómar
uppi þetta kvöld því
hann aðstoðaði
á leið sinni
jarðfræðinga
sem höfðu
komist í
hann
krapp-
an.
Garðbæingar tryggðu sér sæti í
úrslitum Útsvars, spurningakeppni
sveitarfélaganna eftir æsispenn-
andi keppni við Fljótdalshérað.
Vilhjálmur Bjarnason sýndi
óvænta kunnáttu í páfa-fræðum
Vatíkansins þótt hann vildi ekki
gefa upp hvaðan sú vitneskja væri
komin. Það ræðst síðan í næstu
viku hvort það verð-
ur Reykjanesbær
eða Reykjavík sem
mæta Vilhjálmi og
félögum. -fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI