Fréttablaðið - 03.04.2010, Síða 4
4 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
Í grein eftir Loft Jóhannsson flug-
umferðarstjóra um verkfallsrétt og
stjórnarskrána brenglaðist merking
setningar í upphafi greinarinnar.
Setningin á að hljóma svona: „Í mars
2010, nánar til tekið þann 11. mars,
ákvað ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og Steingríms J. Sigfússonar
að afnema verkfallsrétt flugumferð-
arstjóra með lögum.“ Grein Lofts má
lesa í heild sinni á Vísi.is.
LEIÐRÉTTING
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra segist
ekki hissa á orðum Dominique
Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS),
um að tryggja þurfi meirihluta-
stuðning í stjórn sjóðsins áður en
verði af endurskoðun efnahagsá-
ætlunar Íslands. Hann sé frekar
hissa á að Strauss-Kahn hafi sagt
þetta opinberlega.
„Það má lesa það úr orðum
hans að málið strandi á pólitík-
inni, starfsfólk sjóðsins metur það
þannig að ekkert standi efnislega
í vegi fyrir endurskoðuninni. Það
vantar pólitískan stuðning og það
hefur maður lengi vitað.“
Strauss-Kahn sagði, í sam-
tali við Bloomberg, að ekki yrði
nein endurskoðun án meirihluta í
stjórn. „Ef enginn er meirihlutinn
höldum við ekki áfram. Sjálfur
tel ég að gagnlegt væri að halda
áfram með málið núna. En ég get
ekki sagt fyrir um hvort meiri-
hluti er fyrir því.“ Steingrímur
segir að framkvæmdastjórinn
hafi viðrað þessi sjónarmið við
Íslendinga áður.
Engar formlegar viðræður hafa
farið fram við Breta og Hollend-
inga frá því að upp úr viðræð-
um slitnaði 5. mars. Steingrímur
segir þó óformleg samskipti hafa
átt sér stað.
„Menn eru að tala saman yfir
línuna og við vonumst til að hreyf-
ing komi á málið eftir páska. Það
átta sig allir á því að ef gera á
tilraun til að leysa málið verður
hún að vera fljótlega eftir páska.“
Steingrímur segir að annars muni
málið líklega frestast fram yfir
Endurskoðun AGS
strandar á pólitík
Fjármálaráðherra segist bjartsýnn á að endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands
fari fram á næstu vikum hjá AGS. Efnislegar forsendur séu til staðar en strandi
á pólitík. Ef eigi að gera tilraun með Icesave verði það fljótlega eftir páska.
kosningar í Bretlandi og Hol-
landi.
Spurður hvaða áhrif það hefði
á stöðu Íslands segir Steingrímur
það skipta máli hvernig málum er
búið. Ef sátt sé um að setja málið
í bið þá hafi það minna neikvæð
áhrif en ef viðræður væru upp í
loft. Ef ekki náist að klára málið
verði reynt að búa svo um hnútana
að sátt náist um frestun.
Steingrímur segist vonast til að
endurskoðun AGS fari fram sem
fyrst, hvað sem samningum um
Icesave líður. Hann er bjartsýnn
á að það gangi eftir. Best væri þó
að ljúka Icesave-málinu um leið.
kolbeinn@frettabladid.is
2008
október
nóvember
desember
2009
janúar
febrúar
mars
apríl
maí
júní
júlí
ágúst
september
október
nóvember
desember
2010
janúar
febrúar
mars
apríl
maí
júní
júlí
ágúst
september
október
nóvember
desember
Ferill Icesave-málsins
5. desember 2008
- Alþingi samþykkir
þingsályktun um
samninga.
6. október 2008 - Neyðarlög sett
8. október 2008 - Bretar beita
hryðjuverkalögum
24. febrúar 2009
- Ný samninganefnd
undir forystu Svav-
ars Gestssonar.
5. júní 2009 - Samið um Icesave
28. ágúst 2009
- Alþingi samþykkir
samning með fyr-
irvörum. Forsetinn
staðfestir nokkrum
dögum síðar.
5. janúar 2010
- Forsetinn
synjar lögun-
um staðfest-
ingar.
6. mars
2010
- Þjóðar-
atkvæða-
greiðsla.
17. september - Bretar og Hollend-
ingar hafna fyrirvörum.
30. desember
- Lög um
breytingar
á lögunum
frá í ágúst
samþykkt.
BRUSSEL, AP Styrkveitingar Evrópusambandsins
í sjávarútvegi hafa orðið til þess að auka ofveiði
frekar en að draga úr henni, samkvæmt nýrri
skýrslu frá rannsóknarstofnuninni Pew Envi-
ronment Group.
Evrópusambandið hefur reynt að draga úr
fiskveiðum með því að greiða sjávarútvegsfyrir-
tækjum fyrir að taka eitthvað af skipum sínum
úr notkun. Vandinn er sá, segir í skýrslunni,
að útgerðir hafa fengið meira fé til að smíða ný
skip og endurnýja þau gömlu heldur en veitt
hefur verið til þess að fækka fiskveiðiskipum.
Þannig hafa útgerðir í raun aukið fiskveiði-
getu sína − með beinum fjárstuðningi Evrópu-
sambandsins.
„Fé úr opinberum sjóðum hefur verið notað
til að styrkja ofveiði með skelfilegum afleiðing-
um fyrir lífið í hafinu,“ segir Markus Knigge,
framkvæmdastjóri hjá Pew Environment
Group. „Það ætti ekki að fjármagna neitt slíkt
lengur.“
Samkvæmt skýrslunni fengu tíu ríki megnið
af heildarstyrkveitingu ESB til sjávarútvegs á
árunum 2000 til 2006. Spánn fékk mest, en hin
fiskveiðiríkin eru Ítalía, Frakkland, Grikkland,
Danmörk, Bretland, Portúgal, Þýskaland, Pól-
land og Svíþjóð.
Pólland er eina ríkið sem notaði meirihluta
styrkjanna til að draga úr ofveiði. - gb
Styrkveitingar Evrópusambandsins virka þveröfugt við sjávarútvegsstefnuna:
Enn meiri ofveiði í krafti ESB-styrkjanna
EVRÓPSK FISKISKIP Skip við bryggju í Portúgal.
NORDICPHOTOS/AFP
Fréttablaðið brá á leik á skír-
dag, 1. apríl, og birti tvær
ósannar fréttir í því skyni að fá
landsmenn til að hlaupa apríl.
Sú fyrsta snerist um hol-
lenska hernaðarfyrirtækið
E.C.A. sem sagt var ætla að
bjóða fólki í ókeypis flug yfir
gosstöðvarnar á Fimmvörðu-
hálsi í stærðarinnar herflug-
vélum.
Í hinni var fullyrt að Linda
Björg Árnadóttir, fagstjóri
fatahönnunar hjá Listaháskóla
Íslands, hefði verið ráðin list-
rænn ráðunautur í búningadeild
Ríkissjónvarpsins og að hún
hygðist sýna afrakstur fyrstu
búningagerðar sinnar í húsa-
kynnum Listaháskólans.
Þátttakendum í aprílgöbbun-
um er hér með þakkað liðsinnið.
Lesendur látnir hlaupa apríl:
Ókeypis flug
reyndist gabb
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
8°
13°
9°
11°
8°
9°
9°
20°
10°
19°
23°
30°
4°
10°
15°
7°Á MORGUN
Fremur hæg
breytileg átt.
MÁNUDAGUR
NA kaldi eða
strekkingur.
2
1
-1
-2
-4
0
-2
1
2
4
-6
6
9
7
6
10
10
5
8
5
10
5
0
-1 -2
0
1 2
-1 0
2
4
GLEÐILEGA
PÁSKA Í dag má
búast við snjó-
komu eða éljum
á norðanverðu
landinu. Á morgun,
páskadag, verð-
ur hægur vindur.
Horfur eru á éljum
NV-lands en ann-
ars staðar verður
úrkomulítið að
mestu. Á mánu-
daginn hvessir
töluvert.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
LONDON, AP Vísindamenn telja að
hugsanlega megi spá fyrir um
jarðskjálfta með því að fylgjast
með atferli froska.
Þetta er niðurstaða breskra
vísindamanna sem fylgdust með
froskum á Ítalíu á síðasta ári.
Ætlun Rachel Grant og félaga
var að fylgjast með áhrifum
tungslins á atferli froskanna.
Þremur dögum áður en jarð-
skjálfti að stærðinni 6,3 reið yfir
og olli miklum skemmdum og
manntjóni í bænum L‘Aquila tóku
þau eftir því að allir froskar voru
horfnir af svæðinu. - pg
Tímamót í jarðskjálftaspám?
Froskar hurfu
fyrir skjálftann
GRAFIÐ Í RÚSTUM Þremur dögum áður
en skjálfti að stærðinni 6,3 reið yfir á
Ítalíu voru allir froskar horfnir.
BRUSSEL, AP Air Koryo, ríkisflug-
félag Norður-Kóreu, og angólska
flugfélagið TAAG hafa verið
tekin af lista Evrópusambandsins
yfir flugfélög sem bannað er með
öllu að fljúga til ríkja ESB. Starf-
semi þeirra á svæðinu er enn
háð takmörkunum, en ekki jafn-
ströngum og áður.
Samkvæmt nýjum lista, sem
birtur var í gær, hefur öllum
flugfélögum frá Súdan og Fil-
ipps eyjum verið bannað að fljúga
til ríkja Evrópusambandsins og
þrengt hefur verið að möguleik-
um hins íranska Iran Air til að
fljúga til Evrópu.
Um 300 flugfélög víða að úr
heiminum eru á þessum svarta
lista ESB.
Svartur listi flugfélaga:
Slakað á banni
gagnvart
Norður-Kóreu
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 31.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,1856
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,81 128,43
193,58 194,52
172,03 172,99
23,103 23,239
21,46 21,586
17,692 17,796
1,368 1,376
193,89 195,05
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR