Fréttablaðið - 03.04.2010, Síða 17
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 17
Fermingargjöf
sem vex Hafðu samband
— Framtíðarbók Arion banka
Framtíðarbók er góð gjöf frá þeim sem vilja
leggja traustan grunn að framtíð fermingarbarnsins.
Framtíðarbók er verðtryggður innlánsreikningur sem gefur
hæstu vexti almennra verðtryggðra innlánsreikninga.
Innistæðan er laus til úttektar við 18 ára aldur.
Nánari upplýsingar fást hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum
eða á .
Öll fermingarbörn sem leggja 25 þúsund kr.
eða meira inn á Framtíðarbók fá bol að eigin vali
úr versluninni Dogma.
„Ég spurði hann á leiðinni niður eftir hvað hann byggist við að margir kæmu.
Ég hélt það kæmu nú kannski aðeins fleiri en það. En það mættu þúsund
manns á leikinn,“ segir Inga María Friðriksdóttir, um styrktarleikinn sem
gamlir Þróttarar og vinir mannsins hennar, Sigurðar Hallvarðssonar, stóðu
fyrir til styrktar honum og fjölskyldu hans í nóvember síðastliðnum. Sigurður
er þekkt fótboltakempa og er í 8. sæti yfir mestu markaskorara í meistara-
deild frá því á árum sínum í Þrótti.
„Það var stór hópur vina sem stóðu að þessu fyrir okkur. Ég held að hann
hafi kennt íslenskum karlmönnum að gráta þennan dag, því hann stóð á
vellinum og grét og öll stúkan grét með honum,“ segir Inga María. „Á leikinn
mætti ótrúlegasta fólk og sýndi okkur mikinn stuðning. Þegar þetta gerðist
var hann í endurhæfingu inni á Grensási og hann fylltist fítonskrafti eftir
þetta.“
Fjárhæðin sem safnaðist var mikil búbót fyrir þessa stóru fjölskyldu enda
þarf fjársterkt fólk til að takast á við langvarandi veikindi. Inga María segir þó
andlega stuðninginn ekki hafa verið síðri. Allur sá stuðningur sem fjölskyld-
unni hafi borist hafi verið ómetanlegur og honum muni þau aldrei gleyma.
➜ ÓMETANLEGUR STUÐNINGUR FRÁ VINUM
VIÐ UPPHAF LEIKSINS Sigurður og Inga María fylgja leikmönnum inn á völlinn við
upphaf styrktarleiksins fyrir Sigurð.
kannski ekki skrýtið að litli prisn-
inn minn, ellefu ára, segi stundum:
„Veistu það mamma, ég er ógeðs-
lega óheppinn! Ég á pabba sem er
með krabbamein, systir mín er fík-
ill og svo þarf ég að alast upp með
frændum mínum!“
Kletturinn í öldurótinu
Inga María segir börnin sín öll
standa sig vel í þeim verkefnum
sem þau eru að takast á við frá degi
til dags og hún er ánægð því í dag
gengur Írisi dóttur hennar vel að
halda fíklinum í sér í skefjum. En
hún er meðvituð um hlutverk sitt
sem klettur fjölskyldunnar. „Ég
finn að ég er kletturinn sem þau
hin reiða sig á. Þau halda að ekk-
ert bíti á mér. Það er kannski ekki
alveg þannig, það kemur til dæmis
alveg fyrir að ég gráti. En ég kikna
aldrei.
Margir óttast að ég gleymi að
hugsa um sjálfa mig. En ég er mjög
eigingjörn og ég tek mig fram yfir
marga aðra. Ég væri ekki hér ef ég
hugsaði ekki vel um sjálfa mig. Ég
á líka alltaf mína drauma. Ég get
alltaf hoppað í þá og látið einn og
einn þeirra rætast. Og þá hugsa ég:
jess! nú lét ég þennan rætast.“
Þótt verkefnin séu ærin í tengsl-
um við veik-
indi eigin-
mannsins
og þess a
stóru fjöl-
skyldu vinn-
ur Inga sína
dagvinnu
líka. Hún er
kennari við
Rimaskóla
og hefu r
kennt sama
bekknum
frá því börn-
in voru sex
ára en þau
eru tólf ára
í dag. „Mér
finnst bara
gott að fara í
vinnuna, inn
í bekkinn
minn, þar
sem er ekk-
ert óvænt
og maður
ræður við
aðstæðurn-
ar. Þetta er
það skemmti-
legasta sem
ég geri og
ég hlakka til
þess að mæta
í skólann á
hverjum ein-
asta morgni.
Skólastjór-
inn hefur
verið alveg
yndisleg-
ur og hjálp-
legur. Það
spyrja mig
sumir hvað
ég hafi eigin-
lega á hann. Ég hef ekkert á hann.
Hann er bara mannlegur. Stuðning-
ur hans og allra minna góðu vina
í gegnum tíðina hefur verið ómet-
anlegur.“
Framtíðin skipulögð
Nú, þegar Sigurður hefur verið
útskrifaður af Grensási og hefur
lokið lyfjameðferð, er sá tími kom-
inn, í fyrsta skipti um langa hríð,
að Inga María er farin að skipu-
leggja framtíðina. „Um jólin síð-
ustu gat ég ekki hugsað nema um
einn klukkutíma í einu.
Svo fékk ég daginn og svo sem
kennari verð ég að plana vikuna.
Nú er ég farin að hugsa fram á
sumar, sem er mikil framför.“
Óvissan er þó ekki langt undan,
enda niðurstöðunnar úr myndatök-
unni af höfði Sigurðar að vænta á
næstu dögum. „Ég er tilbúin í hvað
sem er og tek því sem að höndum
ber. Það eina sem ég veit núna er
að ég held utan um manninn minn
í kvöld.“
Inga fær oft þá spurningu hvað-
an hún sæki eiginlega allan þann
styrk sem hún svo greinilega býr
yfir. „Ég á mína barnatrú. En ég get
sagt þér það að ég fæ styrkinn ekki
í gegnum nein æðri máttarvöld. Ég
fæ hann bara frá sjálfri mér. ÉG
ræð sjálf mínum farvegi.“
Vandamál er
eitthvað sem
hægt er að
leysa. En það
er ekki svo-
leiðis með
okkar að-
stæður. Flest
af þessu get-
um við ekki
lagað og við
verðum þá
bara að lifa
með því. Og
lífið er bara
skemmtilegt.