Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 28

Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 28
2 matur Þetta er bráðsniðugt þegar maður býður fólki í mat og veit ekki hvað því þykir gott og hefur auk þess ekki tíma til að standa í eldhúsinu allan daginn,“ segir Bryndís Haraldsdóttir um þá matreiðsluaðferð að elda á steini. Henni og manni hennar, Örnólfi Örnólfssyni, þykir skemmtileg stemning myndast í kringum slík matarboð. Enda hefur myndast sú hefð að þau bjóði stórum vinahópi í steinasteik til sín á nýárdag. „Þá kemur hvert par með eigin stein og hráefni,“ segir Bryndís en því eru engin takmörk sett hvað elda má á steininum. „Mér finnst miklu skipta að hafa fjölbreytni. Það þarf ekki að vera dýrara, maður kaupir bara lítið af hverju,“ segir hún og nefnir sem dæmi nautakjöt, lamb, svín, humar og hörpuskel. Þá megi steikja hvaða grænmeti sem er. Matmálstíminn er yfirleitt lengri en gengur og gerist þegar steinninn er á borðum. „Þetta getur tekið frá tveimur upp í fimm tíma,“ segir hún kímin og bætir við að það sé hluti af sjarma steins- ins enda gefist þá góður tími til að spjalla. En hvernig virkar stein- ninn? „Hann er settur inn í kaldan ofninn og hitaður í tuttugu mínútur áður en hann er settur á borðið. Þá er kveikt upp í sérstök- um ílátum með rauðspritti eða geli sem heldur steinin- um heitum,“ svarar Bryndís og bendir á að slíka steina megi kaupa í ýmsum búsáhaldabúðum. Þá dugi einn steinn fyrir tvo til fjóra. - sg HEILSUSTOFNUN NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAGS ÍSLANDS AFSÖKUN FYRIR ÁTI Júlía Margrét Alexandersdóttir SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Stefán Karlsson Pennar: Gunnþóra Gunnardóttir, Júlía Margrét Alexandersdóttir, Kjartan Guðmundsson, Ragnheiður Tryggvadóttir, Vera Einarsdóttir og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is STEIKT Á STEINI Matargestir Bryndísar Haraldsdóttur og Örnólfs Örnólfssonar njóta hvers einasta bita enda fá þeir að elda matinn sjálfir á heitum steini á miðju matarborðinu. Fjölbreytileiki hráefnisins er mikill og hægt er að steikja allt frá nautakjöti og hörpuskel til belgbauna og kartaflna. Bryndís og Örnólfur halda nýársboð á hverju ári fyrir stóran vinahóp þar sem fólk kemur með eigin steina og hráefni á þá. FRÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N Á Heilsustofnun Náttúrulækn- ingafélags Íslands í Hvera- gerði er nær eingöngu boðið upp á mat úr lífrænt rækt- uðu hráefni og er grænmeti og fiskur aðallega á borð- um. Dvalargestum er boðið upp á fullt fæði en matsalur- inn er þó opinn öllum og er vel hægt að koma og kaupa sér staka máltíð. „Við leggj- um mest upp úr hádegismatn- um og erum með léttari mat á kvöldin. Fólk getur til dæmis komið hingað í hádegismat á leið í bústaðinn eða gert sér sérstaka ferð því það er ekk- ert sem segir að það þurfi að leggjast í sukk þó að fólk sé í fríi. Eins erum við með brauð, heilsute og okkar eigin grænmeti til sölu sem er upplagt að kippa með sér,“ segir Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri Heilsustofnunar NLFÍ. Starfsmenn Heilsustofnunarinnar rækta um 25-30 tonn af grænmeti á ári. Það er fyrst og fremst hugsað fyrir dvalargesti en umframbirgðir eru seldar til verslana auk þess sem þær eru á boðstólum fyrir almenning á staðnum. Ingi Þór bendir á að nýbúið sé að taka í notkun nýjan salat- bar og fylgir salat, súpa og heilsute með öllum réttum. Góður viðkomustaður Ég ólst ekki upp við sumarbústaðamenningu og sumarbústaðaferðir í æsku get ég talið á fingrum annarrar handar. Síðustu þrjú, fjögur árin hef ég þó verið svo heppin að eiga þess kost að geta farið nær hvenær sem er í sumarbústað í Úthlíð þar sem tengdaforeldrar mínir eiga yndislegt lítið hús. Fyrir mér er því að fara í bústað enn þá fremur nýtt fyrirbrigði og allt- af pínu eins og að fara til útlanda þar sem maður leyfir sér oft meira í mat og drykk en heima hjá sér. Úr æsku er mér sérstaklega minnisstætt, úr einni af þessum fimm sumarbústaðaferðum, að við krakkarnir feng- um kókópöffs í morgunmat. Af því að við vorum í sumarbústað. Næstum 30 árum síðar er sykrað morgunkorn því ofarlega á listanum yfir nauð- synjavörur í sumarbústað. Auðvitað alltaf „keypt inn fyrir krakkana“, enda eitthvað frekar sorrí að horfa á fullorðinn gúffa Lucky Charms eins og tíu ára krakki. En þegar krakkarnir eru komnir út í móa er kappát fullorðna fólksins í morgunkorni og margar skálar af Lucky Charms torgaðar á mettíma. Þær eru nokkrar matarsortirnar, auk morgunkornsins, sem mér finn- ast eiga sérstaklega vel við í sumarbústað og ég snæði ekki innan borg- armarkanna. Einhverra hluta vegna er möndlukaka með bleikum glassúr þar ofarlega á lista en bæði er hún frábær í maulið og svo mjög falleg á disk á sumarbústaðapalli. Kleinur sóma sér þar líka vel, randalína, smjörkaka, egg og beikon, síld, rúgbrauð, kartöflusalat og reyktur lax. Einnig lakkrís, appelsín og æðisbitar. Sveitin er tilvalin afsökun fyrir gúff og um leið gott tæki- færi til að komast í tæri við matarbarnið í sjálfum sér. Enda líklega hvergi annars staðar en þar sem maður situr með lakkrísreimar í skál, kókó- mjólk, á náttfötunum og öskrar „Olsen, olsen“. Hvunndags/til hátíðabrigða Kökur Þarftu að skerpa hugann fyrir prófin? Énaxin jurtablandan eykur einbeitingu og úthald! Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum apótekanna ORKA & KRAFTUR ÚR NÁTTÚRUNNI Hringdu í síma ef blaðið berst ekki M Meðlæti

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.