Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 34
KRISTJÁN JÓHANNSSON og söngvinir verða með tón-
leika í KA heimilinu í dag klukkan 17. Með honum koma fram
Diddú, Hulda Björk Garðarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson.
„Þetta verður gaman. Mér hefur
alltaf þótt þetta frábært fram-
tak hjá Mugison og þessum strák-
um og þetta er lyftistöng fyrir bæ
sem hefur verið kvótalaus í mörg
ár,“ segir Rúnar Þór Pétursson,
eða Rúnar Péturs Geirs eins og
hann er betur þekktur fyrir vest-
an, sem kemur fram ásamt hljóm-
sveit á tónlistarhátíðinni Aldrei fór
ég suður á Ísafirði í kvöld. Að því
loknu blæs Rúnar til balls á Krús-
inni, en Mugison mun ætla að taka
lagið með Rúnari á báðum stöð-
um.
Rúnar er Ísfirðingur að upplagi
en flutti til Reykjavíkur um tví-
tugt. Hann heimsækir þó heima-
bæinn reglulega til að koma þar
fram. Hann á íbúð á Ísafirði og
segist alltaf vera á leiðinni vest-
ur aftur.
Þrettán ár eru liðin síðan Rúnar
Þór sendi síðast frá sér plötu. Hann
segist hafa verið orðinn þreyttur
eftir gegndarlausa keyrslu síðustu
tíu árin þar á undan, þar sem hann
spilaði nánast á hverju kvöldi auk
hljóðversvinnu. „Það er fínt að vera
ófrægur. Það er kannski dónalegt
að segja það, en þá sleppur maður
við alla styrktartónleikana og fleira
sem maður er endalaust í annars,“
segir Rúnar Þór.
Útgáfuleysið varir þó að öllum
líkindum ekki lengi enn hjá Rún-
ari, en þessa dagana vinnur hann
að gerð plötu ásamt sjálfum Meg-
asi og Gylfa Ægissyni. „Þetta eru
kallarnir sem tóku mig undir sinn
verndarvæng þegar ég kom frá Ísa-
firði. Fyrst þvældist ég mikið með
Gylfa Ægis, en svo þegar hann
hætti að drekka fór ég að þvælast
með Megasi. Við höfum alltaf ætlað
að vinna saman, en það tók þennan
tíma,“ segir Rúnar Þór.
Hann segir tríóið þegar hafa
tekið upp fyrsta lagið sem sett
verður í spilun af plötunni, og mun
það væntanlega bera titilinn Gígja.
Lagið er eftir Rúnar Þór og textinn
eftir Megas. „Megas er sérstakur
textahöfundur og ég hugsa að lagið
verði kannski bannað, en þá verður
bara að hafa það. Það hljómar eins
og klám, en við syngjum um gígju
sem gítar, að riðlast á gígjunni,“
segir Rúnar Þór og hlær. „Svo
munum við líklega taka lög sem
við höfum gert vinsæl í gegnum tíð-
ina og syngja þau saman eða skipt-
ast á og hafa gaman af þessu. Ég
gæti trúað að þetta verði sérstakt,
að hlusta á gömlu sukkarana taka
lagið saman,“ bætir hann við.
Rúnar segir þá félaga ætla að
reyna að koma plötunni út fyrir
sumarið. Gangi það ekki eftir verði
hún gefin út í síðasta lagi fyrir jólin
næstu. kjartan@frettabladid.is
Vinnur að plötu ásamt
Megasi og Gylfa Ægis
Heimamaðurinn Rúnar Þór Pétursson kemur fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði í
kvöld ásamt hljómsveit. Að því loknu blæs hann til balls á Krúsinni, þar sem Mugison kíkir í heimsókn.
Rúnar Þór segist hafa spilað um hverja
helgi í 25 ár, þar af oft á Ísafirði eins og í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Þriðjudaga
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki