Fréttablaðið - 03.04.2010, Síða 44
6 matur
Ma mma er mjög, mjög g ó ð a ð
baka,“ segir Friðrik
Óskar Reynisson
með áherslu. Hann
er fimm ára, að verða sex, sem
honum finnst líka mjög mikilvægt
að komi fram. Spurður hvort hann
sé aðalsmakkarinn segir hann svo
vera. „Ég segi hvort kökurnar séu
góðar eða vondar. Þær eru alltaf
góðar. Á sunnudögum fæ ég alltaf
pönnukökur með sírópi og ávöxt-
um,“ segir hann. En þegar hann
sér að mamma hans, Jenný Björk
Olsen, verður svolítið skrítin á
svipinn, er hann fljótur að bæta
við: „Sko stundum, ef ég bið vel.“
Sjálf segist Jenný hafa haft
gaman af eldamennsku og bakstri
frá unglingsaldri. „Ég leita að
uppskriftum í blöðum og tímarit-
um og klippi
út. Ég á því
dágott úrklippusafn af uppskrift-
um. Þær vil ég helst hafa fljótleg-
ar og einfaldar og góðar.“ Hún seg-
ist oft skella í köku um helgar eða
pönnukökur á sunnudagsmorgn-
um. „Það síðarnefnda er vinsælt
hjá sumum,“ segir hún og bros-
ir. Berglind, tveggja ára dóttir
Jennýjar, á lokaorðið í þessu við-
tali þegar hún bendir á girnilega
kökuna sem mamma hennar hefur
búið til, brosir og segir:,
„Namm, namm.“ Og það
er svo sannarlega satt.
- uhj
Mamma er
„Ég segi hvort kökurnar séu góðar eða vondar,” segir Friðrik, sonur Jennýjar, sem sést hér ásamt systur sinni Berglindi.
Börnin halda mikið upp á
kökuna. Ostarétturinn er ekki
síður í miklum metum hjá þeim.
SÚKKULAÐIKAKA
5 msk. smjör
100 g suðusúkkulaði
3 egg
3 dl sykur
1 tsk. vanilludropar
1½ dl hveiti
1 tsk. salt
4 msk. smjör
1 dl púðursykur
2 msk. rjómi
1 poki pekanhnetur
eða valhnetur
100-150 g suðu-
súkkulaði, saxað.
Bræðið smjör og
súkkulaði saman yfir
vatnsbaði og geymið.
Þeytið egg og sykur
vel saman. Bætið van-
illudropunum út í
eggjablönduna. Þá er
þurrefnunum bætt var-
lega saman við. Hellið
nú súkkulaðinu saman
við deigið og hellið
því svo í form. Kakan
er bökuð í 15 mínút-
ur við 175 C. Á meðan
kakan er í ofninum
hitið þá í potti 4 msk.
af smjöri, 1 dl af púð-
ursykri og setjið síðast
rjómann. Látið blönd-
una sjóða í um eina
mínútu.
Þegar kakan er tilbú-
in er einum poka af
pekan- eða valhnetum
dreift yfir kökuna og
síðan er púðursykur-
skaramellunni hellt yfir.
Kakan er síðan sett
aftur í ofninn og bökuð
áfram í u.þ.b. 20 mín-
útur. Þegar hún er full-
bökuð er 100-150 g
af söxuðu suðusúkku-
laði stráð yfir kökuna.
Frábær eftirréttur með
sterku, góðu kaffi.
EINFALDUR SÆL-
KERAOSTARÉTTUR
Þennan rétt má bæði
nota sem forrétt eða
eftirrétt.
Ostur eins og Bónda-
brie, Kastali eða
Camembert
Hlynsíróp
Pekanhnetur eða val-
hnetur, saxað gróft
Í einfalda ostarétt-
inn er hægt að nota
marga osta eins og
bóndabrie, kastala-
ost eða camembert.
Jenný notaði bónda-
brie í þann sem er á
myndinni.
Setjið ostinn í eldfast
mót og stráið gróft
söxuðum pekanhnet-
um eða valhnetum yfir
hann. Hellið hlynsírópi
yfir og setjið ostinn inn
í ofn í nokkrar mínút-
ur eða þar til hann er
mjúkur en ekki farinn
að renna út. Ostinn má
bera fram með kexi en
hann er mjög góður
einn og sér.
SÚKKULAÐIKAKA OG SÆLKERAOSTARÉTTUR
Nammi
namm!
FRÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
BESTI BAKARINN
Jenný Björk Oslen hefur haft gaman af bakstri frá unglingsaldri. Hún deilir með
lesendum uppskrift að súkkulaðiköku sem er í miklu dálæti hjá börnunum hennar.
BREYTT AUSTUR Veitingastaðurinn Austur – Fusion steikhús kynn-
ir breytingar á matseðli og áherslum veitingastaðarins um næstu helgi,
nánar tiltekið 10. apríl. Til liðs við Austur hafa gengið nokkrir reynslumikl-
ir matreiðslumenn sem innleiða nýjan matseðil sem kynntur verður. þar
munu renna saman alþjóðlegir straumar í matreiðslu með íslensku hráefni
í forgrunni. Þannig verður allt nautakjöt sem borið verður fram á staðn-
um frá Hellu og lambakjötið kemur
beint frá býli í Öxnadalnum. Þess
má geta að sett hefur verið upp
sérsmíðað viðarkolagrill í eldhúsi
staðarins þar sem allt kjöt verð-
ur eldað. Þá hefur Austur látið
framleiða fyrir sig sérstakan bjór,
Austurbjór, sem framleiddur er
af Borgum, litlu brugghúsi Öl-
gerðarinnar.
LÉTT OG GOTT Frekar þungur matur einkennir oftar en ekki sumar-
bústaðaferðir. Slíkt þarf þó ekki að vera neitt lögmál. Gráupplagt er til
dæmis að henda í eins og eitt stykki guacamole-salat, en til þess þarf
einungis avókadó, tómat, rauðlauk, sítrónusafa og salt. Borið fram með
brauði eða flögum og góðri samvisku.
ÞROSKAÐUR OSTUR Nýr mygluostur, dalahringur, er
kominn á markað. Um er að ræða hringlaga hvítmygluost
með gati í miðjunni. í tilkynningu frá MS kemur fram
að lögunin á Dalahring geri það að verkum að hann
þroskist hraðar og verði fyrr tilbúinn til neyslu en
aðrir mygluostar á markaði. Í nafninu Dalahringur
er, auk lögunar ostsins, skírskotað til Dalanna og
Búðardals þar sem hann er framleiddur.
margt smátt
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
Ítalskar snittur
að hætti Jóa Fel
-frábærar á veisluborðið
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín