Fréttablaðið - 03.04.2010, Side 50
30 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
Pétur Eysteinn Stefánsson
Hraunbæ 8,
lést 26. mars sl. á Landakotsspítala. Útför hans fer fram
frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 8. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórhalla Björgvinsdóttir
Ólafur B. Pétursson Bjarney Sif Ólafsdóttir
Stefán Víðir Martin Maria Irena Martin.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Birna Árnadóttir
Hamraborg 32, Kópavogi
(áður Kópavogsbraut 82)
sem lést á Landspítalanum 24. mars, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju 7. apríl kl. 13.00. Þeim sem vildu
minnast hennar er bent á blóðlækningadeild 11G,
Landspítala við Hringbraut í síma 543-1159.
Árni Steingrímsson Valborg Björgvinsdóttir
Jóhanna Steingrímsdóttir Stefán Árni Arngrímsson
Birna Steingrímsdóttir Hafþór Freyr Víðisson
Ásdís Steingrímsdóttir Gunnar Carl Zebitz
Sigríður Steingrímsdóttir Bjarki Þór Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, systur, mágkonu, ömmu
og langömmu,
Jónu Guðrúnar
Ólafsdóttur
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum
og heiðruðu minningu hennar. Sérstakar þakkir færum
við starfsfólki Hraunbúða.
Ólafur Eggertsson
Gunnar Marel Eggertsson Þóra Guðný Sigurðardóttir
Guðfinna Edda Eggertsdóttir Kristinn Hermansen
Sigurlaug Eggertsdóttir Halldór Kristján Sigurðsson
Einar Ólafsson Viktoría Ágústa Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
EDDIE MURPHY ER 49 ÁRA
„Kvikmyndagerð er samvinna. Stund-
um ganga hlutirnir ekki upp. Ég veit
að það mun koma fyrir að ég leiki í
lélegri kvikmynd.“
Eddie Murphy sló í gegn í bandarísku
grínþáttunum Saturday Night Live árið
1980 og skaust upp á stjörnuhimininn í
kvikmyndunum 48 Hrs frá 1982 og Bever-
ly Hills Cop I, II og III. Hann hefur átt
brokkgengan feril síðustu ár. Murphy á
átta börn, þar af eina dóttur með Mel B.,
söngkonu Spice Girls.
Harry S. Truman, forseti
Bandaríkjanna, sem tók
við af Franklin D. Roosevelt
og sat árin 1945 til 1953,
staðfesti Marshall-áætlunina
svokölluðu á þessum degi
fyrir 62 árum. Bandaríska
utanríkisráðuneytið átti
hugmyndina að áætluninni
sem fól í sér fjárhagslegan
stuðning við þau lönd í
Evrópu sem orðið höfðu illa
úti í seinni heimsstyrjöld-
inni. Framleiðsla í mörgum löndum hafði nær
stöðvast og áttu þau afar lítinn erlendan gjaldeyri
til milliríkjaviðskipta. Sextán Evrópulönd fengu
aðstoðina, sem ekki síst
var ætlað að sporna gegn
útbreiðslu kommúnisma frá
þáverandi Sovétríkjunum.
Íslendingar högnuðust mjög
á Marshall-áætluninni enda
runnu hingað 43 milljónir
dala frá Bandaríkjunum.
Fyrir hana var togaraflot-
inn endurnýjaður, keyptar
dráttarvélar, og landbúnað-
arvélar auk þess sem ráðist
var í byggingu frystihúsa
og aðrar framkvæmdir. Á meðal þess sem enn
stendur eftir Marshall-áætlunina eru Sogsvirkjun
og Laxárvirkjun.
ÞETTA GERÐIST: 3. APRÍL 1948
Marshall-áætlunin fer af stað
MERKISATBURÐIR
1948 Harry S. Truman, forseti
Bandaríkjanna, kynnir
Marshall-áætlun til stuðn-
ings stríðshrjáðum löndum
Evrópu. Íslendingar áttu
eftir að fá umtalsvert fé í
gegnum þá áætlun.
1975 Bobby Fischer neitaði að
mæta Anatoly Karpov í
heimsmeistaraeinvígi í
skák. Karpov verður heims-
meistari.
1984 Banni við hundahaldi í
Reykjavík, sem staðið hafði
síðan 1971, aflétt.
2004 Ráðist að húsi á Spáni þar
sem íslamskir hryðju-
verkamenn sem tengd-
ust sprengingum á lestar-
stöðvum í Madríd 11. mars
héldu sig. Þeir fyrirfóru sér.
Fjögur ár eru liðin frá því að MFM-
miðstöðin tók til starfa. Á þeim tíma
hafa um 700 manns leitað sér hjálp-
ar við matarfíkn og skyldum kvillum
hjá Esther Helgu Guðmundsdóttur og
samstarfsmönnum hennar.
„Árangurinn hefur verið alveg stór-
kostlegur,“ segir Esther. „Við höfum
fengið einstaklinga sem hafa alla tíð
verið of þungir. Við höfum verið með
fólk alveg upp í 200 kíló sem hefur
tekist að komast í þetta svokallaða
fráhald og fundið batalausn fyrir sig
til framtíðar,“ segir hún.
Esther segir að vandamál tengd mat
séu oft öll sett undir sama hattinn og
kölluð offita. Í raun sé hins vegar um
þrjá sjúkdóma að ræða. „Offita er
sjúkdómur út af fyrir sig ef þú ert of
þungur, síðan eru það átraskanir sem
er tilfinningalega tengt át, og loks
matarfíkn, sem er fíkn í ákveðin efni
í matvælum,“ útskýrir Esther.
Hjá MFM-miðstöðinni sé áherslan
á matarfíknina, en einnig sé reynt að
ráða bót á hinum tveimur sjúkdóm-
unum enda séu þeir nátengdir mat-
ar fíkninni og fylgi henni gjarnan.
Esther segir meðferðina við mat-
arfíkninni áþekka því sem tíðkast
við alkóhólisma. „Það sem við gerum
í meðferðarmiðstöðinni er að hjálpa
fólki að finna mataræði sem inni-
heldur ekki þessar fæðutegundir sem
valda löngun og fíkn hjá viðkomandi.
Þetta eru svipuð vísindi og liggja að
baki alkóhólisma og annarri vímu-
efnanotkun. Fólk er í rauninni í sama
vítahring nema að það hefur verið að
nota sykur og hveiti og annað slíkt og
þessi efni virka eins í líkama þeirra
sem eru fíknir í þau eins og áfengi
fyrir alkóhólista,“ segir Esther sem
hefur persónulega reynslu af sjúk-
dómnum og hefur verið í samfelldum
bata í sjö ár.
Meðferðin byggist upp á námskeið-
um, hópfundum og einstaklingsviðtöl-
um og í náinni framtíð stefnir Esther
að því að bjóða einnig upp á innlagnir.
Ekki er óalgengt, eins og með önnur
meðferðarúrræði, að fólk þurfi að
sækja sér hjálp oftar en einu sinni.
Meðferðin getur tekið frá þremur
mánuðum og allt upp í tvö ár. Sjálf
telur Esther eins árs meðferð, eða þar
um bil, árangursríkasta. Fimm manns
starfa hjá MFM-miðstöðinni; fíkniráð-
gjafar og næringarfræðingur.
stigur@frettabladid.is
ESTHER HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR: REKUR MFM-MIÐSTÖÐINA
Matarfíklum hjálpað í fjögur ár
700 HJÁLPAÐ Esther Helga er stofnandi og framkvæmdastjóri MFM-miðstöðvarinnar. Hún hefur sjálf reynslu af matarfíkn en hefur verið í sam-
felldum bata í sjö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hreinn Óskarssonar, skógarvörður á Suðurlandi, tók í vik-
unni á móti verðlaunagrip sem handhafi Uppsveitabross-
ins 2009.
Hreinn tók á móti verðlaununum fyrir hönd Skógræktar
ríkisins á Suðurlandi, sem þykir hafa staðið sig með ein-
dæmum vel í að auka veg sunnlenskra skóga og gera þá
að vinsælum útivistarsvæðum allt árið um kring, jafnt
fyrir heimamenn sem ferðamenn. Eru Haukadalsskógur
og Þjórsárdalsskógur sérstaklega nefndir í því samhengi,
en þar má meðal annars finna merkta göngustíga og sér-
hannaða stíga fyrir hjólastóla.
Uppsveitabrosið er óáþreifanlegt en því fylgir ævinlega
gripur úr smiðju handverks- eða listamanns úr uppsveitum
Árnessýslu. Að þessu sinni er gripurinn eftir listakonuna
Önnu Magnúsdóttur á Flúðum – máluð mynd af tré í haust-
litum sem ber heitið Úr sálargarðinum.
Brosið er á hverju ári veitt einstaklingi eða fyrirtæki
sem þykir hafa lagt ferðaþjónustunni í uppsveitum Árnes-
sýslu lið á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og stuðlað að
samvinnu. Þetta er í sjötta sinn sem brosið er afhent.
Fær Uppsveitabros fyrir skógrækt
HREINN MEÐ VERÐLAUNAGRIPINN Hreinn tekur við verðlaunagripn-
um, listaverki eftir Önnu Magnúsdóttur á Flúðum.