Fréttablaðið - 03.04.2010, Síða 62
42 3. apríl 2010 LAUGARDAGUR
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar tryggðu
sér sæti í undanúrslitum Iceland
Express-deildar karla með sann-
færandi 88-72 sigri á Stjörnunni
í oddaleik í Garðabænum á skír-
dagskvöld.
Tveir leikmenn úr röðum Njarð-
víkinga, Bandaríkjamaðurinn Nick
Bradford og stórskyttan Magnús
Þór Gunnarsson, þekkja ekkert
annað en að vinna saman oddaleiki
og einvígi í úrslitakeppninni. Þeir
urðu Íslandsmeistarar síðustu tvö
skipti sem þeir voru saman (með
Keflavík 2004 og 2005) og lið
þeirra hefur unnið alla fjóra odda-
leikina sem þau hafa spilað.
Nick Bradford og Magnús Þór
Gunnarsson unnu því saman sitt
sjöunda einvígi í röð í úrslita-
keppni og í fjórum þeirra hafa
úrslitin ráðist í oddaleik. Magnús
var með 20 stig í leiknum á móti
Stjörnunni en Nick skoraði 13 stig
og gaf 5 stoðsendingar. Nick hefur
oftast farið á kostum í þessum
oddaleikjum og var fyrir leikinn á
fimmtudaginn með 28,0 stig, 10,0
fráköst og 5,7 stoðsendingar að
meðaltali í oddaleikjum á Íslandi.
Báðir áttu þeir Nick Bradford
stóran þátt í sigrinum á Stjörnunni
á skírdag. Það má segja að Magn-
ús Þór Gunnarsson hafi klárað
Stjörnuliðið með því að setja niður
fjóra þrista á tæplega fimm mín-
útna kafla í seinni hálfleik. Það
var hins vegar Nick Bradford sem
kom Njarðvíkingum inn í leikinn á
erfiðum tímapunkti í fyrri hálfleik
þegar hann nánast upp á sitt eins-
dæmi breytti stöðunni úr 38-32
fyrir Stjörnuna í 42-42 með því að
skora átta stig á tæplega tveggja
mínútna kafla.
Undanúrslitaeinvígin hefjast
bæði á mánudagskvöldið þegar KR
tekur á móti Snæfelli í DHL-höll-
inni og Keflvíkingar taka á móti
nágrönnum sínum úr Njarðvík í
Toyota-höllinni. - óój
Njarðvíkingarnir Magnús Þór Gunnarsson og Nick Bradford í úrslitakeppninni:
Hafa unnið alla oddaleiki saman
TÓK AF SKARIÐ Á RÉTTUM TÍMA Nick
Bradford skorar tvö stig á móti Stjörn-
unni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KLÁRAÐI LEIKINN Magnús Þór Gunnars-
son sýndi mikilvægi sitt á fimmtudag-
inn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ODDALEIKIR NICK OG
MAGNÚSAR SAMAN:
8 liða úrslit 2004
Keflavík-Tindastóll 98-96
Nick 24 stig, Magnús 4 stig
Undanúrslit 2004
Grindavík-Keflavík 89-101
Nick 31 stig, 9 fráköst, 8 stoðsending-
ar, Magnús 11 stig
8 liða úrslit 2005
Keflavík-Grindavík 80-75
Nick 29 stig, 16 fráköst, 6 stoðsend-
ingar, Magnús 9 stig
8 liða úrslit
Stjarnan-Njarðvík 72-88
Magnús 20 stig, sex þristar, Nick 13
stig, 5 stoðsendingar
HANDBOLTI Geir Sveinsson hefur
heldur betur náð að snúa við blað-
inu hjá Gróttuliðinu í fallbaráttu
N1 deild karla í handbolta en liðið
hefur unnið þrjá síðustu leiki sína
á móti Akureyri, FH og Stjörnunni
og þar er ekki síst að þakka frá-
bærri byrjun liðsins.
Geir tók við liðinu af Halldóri
Ingólfssyni þegar Grótta hafði
tapað sjö leikjum í röð og ekki
unnið leik á árinu 2010. Fyrsti
leikurinn tapaðist með einu marki
á móti Haukum en síðan hefur liðið
unnið þrjá leiki í röð.
Grótta komst í 7-1 á móti Akur-
eyri, vann fyrri hálfleikinn 15-9 og
loks leikinn með þremur mörkum,
29-26. Grótta komst í 8-0 á móti
FH, vann fyrri hálfleikinn 16-11
og loks leikinn með sjö mörkum,
30-23.
Á miðvikudaginn komust Gróttu-
menn síðan í 6-2 í upphafi leiks á
móti Stjörnunni og voru 15-10
yfir í hálfleik. Stjörnumenn jöfn-
uðu leikinn en Jón Karl Björns-
son tryggði Gróttu tvö dýrmæt
stig með því að skora tvö síðustu
mörkin, hans tólfta og þrettánda
mark í leiknum. Gróttuliðið hefur
þar með unnið upphafsmínútur
síðustu þriggja leikja 21-3 og fyrri
hálfleikina með samtals 16 mörk-
um eða 46-30.
Næsti leikur Gróttu er á heima-
velli gegn Fram, á annan páska-
dag. Með sigri í þeim leik getur
liðið tryggt sér 6. sæti í deildinni
á næsta ári og þar með áframhald-
andi sæti í deildinni. Það fer fram
heil umferð klukkan 19.30 á mánu-
daginn en þá mætast einnig Akur-
eyri-HK, FH-Valur og Haukar-
Stjarnan. - óój
Geir Sveinsson er búinn að snúa við blaðinu hjá Gróttu sem hefur unnið þrjá leiki í röð í N1 deild karla:
Mæta tilbúnir í leikina undir stjórn Geirs
6 STIG AF 8 MÖGULEGUM Geir Sveins-
son er að gera flotta hluti með Gróttu-
liðið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Leit KR-inga að
markmanni fyrir sumarið er
lokið eftir að Norðmaðurinn Lars
Ivar Moldskred samdi við félagið.
Moldskred er 32 ára markmað-
ur með reynslu úr norsku úrvals-
deildinni þar sem hann spilaði
með Molde, Lillestrøm og Strøms-
godset. Lars fór yfir kosti sína
á heimasíðu samtaka íþrótta-
manna í Noregi: „Góður einn á
móti einum, góðar staðsetningar,
stjórna vörninni vel, viljugur til
að æfa og mikill fagmaður, fljót-
ur að koma boltanum í leik og er
óhræddur,“ sagði Lars þar um
sjálfan sig. - óój
Markmannamál KR á hreint:
Sömdu við Lars
FÓTBOLTI Ryan Babel, leikmað-
ur Liverpool, fékk að líta rauða
spjaldið strax á 30. mínútu þegar
Liverpool-liðið tapaði 1-2 á úti-
velli á móti Benfica í Evrópu-
deildinni á skírdag. Liverpool var
1-0 yfir þegar Babel var rekinn
út af en tapaði leiknum 2-1.
„Þegar upp er staðið þá var þetta
heimskulegt af mér og algjör vitl-
eysa hjá mér að vera að snerta
andlit hans. Ég tel samt að gula
spjaldið hefði verið sanngjarnt,“
sagði Babel. „Hann kom ógnandi
í átt að mér, öskraði og fór alveg
upp að mér. Ég reyndi bara að ýta
honum frá mér,“ sagði Babel. - óój
Rautt á Babel í tapi Liverpool:
Þetta var algjör
vitleysa hjá mér
SAUÐ UPP ÚR Dómarinn stígur hér á
milli Babels og Luisao. MYND/GETTY IMAGES