Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 63

Fréttablaðið - 03.04.2010, Page 63
LAUGARDAGUR 3. apríl 2010 43 FÓTBOLTI Miðjumaðurinn meiðsl- ahrjáð,i Owen Hargreaves, hefur ekki spilað aðalliðsleik síðan í september 2008. Hann hefur þó getað æft með Manchester Unit- ed af krafti undanfarna daga og fær líklega pláss á bekknum gegn Chelsea. Hargreaves þurfti að gangast undir uppskurð á báðum hnjám og hefur verið á meiðslalistanum síðan. John O’Shea er einnig að snúa aftur eftir meiðsli og gæti líka verið meðal varamanna í þessum stórleik tímabilsins. - egm Owen Hargreaves: Verður til taks á bekknum FÓTBOLTI Wayne Rooney þarf að sætta sig við að vera meðal áhorf- enda í dag þegar Manchester Unit- ed fær Chelsea í heimsókn í topp- slag ensku úrvalsdeildarinnar. Rooney verður frá næstu tvær til þrjár vikurnar en Sir Alex Fergu- son tilkynnti það á blaðamanna- fundi í gær. Búlgarinn Dimitar Berbatov fær það hlutverk að taka stöðu Rooney í fremstu víglínu í dag. Hann hefur mátt þola mikla gagnrýni síðan hann var keyptur fyrir morðfjár frá Tottenham. Andy Cole, fyrr- verandi sóknarmaður United, treystir Berbatov vel til að fylla þetta skarð. „Wayne hefur verið stórfeng- legur á þessu tímabili en án hans burstuðum við Bolton um síðustu helgi. Berbatov var þar aðalmað- urinn og skoraði tvö mörk. Mér fannst hann leika einstaklega vel,“ sagði Cole í viðtali við sjónvarps- stöð United. „Vissulega er Chelsea mun sterkari andstæðingur en þetta er tækifærið fyrir Berba til að sýna hvers hann er megnugur. Þetta gæti verið leikurinn þar sem hann leikur listir sínar og allir skilja af hverju félagið borgaði 30 milljónir punda fyrir hann.“ Ferguson hefur ekki marga kosti þar sem Michael Owen er einn- ig á meiðslalistanum. Federico Macheda og Mame Biram Diouf eru sóknarmennirnir sem verða til taks á bekknum. „Þeir eru báðir ungir og með fullri virðingu fyrir þeim þá er bara einn leikmaður sem kemur til greina í þessari stöðu. Sá maður er Berbatov,“ sagði Cole. - egm Búlgarinn Dimitar Berbatov fær það hlutverk að leysa af einn heitasta sóknarmann heims: Vandfyllt skarð Rooney er hausverkur DIMITAR BERBATOV Fær heldur betur tækifæri til að láta ljós sitt skína. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI D id ier D rogba , sóknarmaður Chelsea, hefur síðustu mánuði verið að leika í gegnum meiðsli. Hann var hvíldur um síðustu helgi en Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að meiðslin séu ekki alvarleg og Drogba muni ekki missa af neinum leikjum vegna þeirra. „Hann hefur verið að glíma við kviðslit og finnur smá sársauka eftir leiki. Meiðslin eru þó ekki alvarleg og há honum ekki neitt. Ef hann þarf að gangast undir aðgerð eftir tímabilið er hún aðeins smávægileg og hann verður bara frá í viku. Það er þó ekki víst að hann þurfi í aðgerð,“ segir Ancelotti en þessi meiðsli hans hafa staðið yfir í þrjá til fjóra mánuði. „Hann var nokkuð þreyttur fyrir síðasta leik gegn Aston Villa og ég ákvað að taka enga áhættu og hvíldi hann. En hann er tilbúinn í slaginn og leikur á Old Trafford,“ segir Ancelotti. Drogba hefur gert tíu mörk í síðustu átta deildarleikjum. Endurkoma hans þýðir væntanlega að Joe Cole sest aftur á tréverkið og Nicolas Anelka færist örlítið aftar á vellinum. Ancelotti hefur gengið vel gegn Sir Alex Ferguson og unnið fimm af síðustu sex viðureignum þeirra á milli. Hann veit þó vel að United berst fram á síðustu sekúndu enda var hann við stjórnvölinn hjá Juventus þegar Rauðu djöflarnir komu til baka og tryggðu sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 1999. Manchester United tapaði í vikunni gegn Bayern München í Þýskalandi en liðið hefur tapað þremur af fjórum deildarleikjum sínum í vetur sem koma í kjölfarið á ósigri á útivelli í Evrópukeppninni. - egm Chelsea verður ekki án síns helsta sóknarmanns í stórslagnum á Old Trafford: Drogba er tilbúinn í slaginn MARKAHÆSTUR Drogba er markahæsti leikmaður Chelsea á tímabilinu en hann hefur skorað 24 mörk í deildinni. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, reyndi að láta leik- mannahóp sinn hlaupa 1. apríl. Sú tilraun misheppnaðist algjörlega. „Ég sagði þeim að ég ætlaði að hafa tvöfalt lengri æfingu en venjulega þar sem ég ætlaði að gera tilraunir með nýtt leikkerfi gegn Manchester United. Michael Ballack sá strax í gegnum þetta og sagðist meðvitaður um að það væri 1. apríl,“ sagði Ancelotti í viðtali á heimasíðu Chelsea. - egm Ancelotti ekki góður lygari: Misheppnað aprílgabb ANCELOTTI Húmoristi. NORDICPH/GETTY FÓTBOLTI Mike Dean fær það verkefni að dæma stórleikinn á Old Trafford í dag. Það kætir Brian Laws, stjóra Burnley, ekki að Dean fái þetta risaverkefni. Dean dæmdi leik Burnley gegn Blackburn um síðustu helgi og dæmdi ranglega vítaspyrnu. Blackburn skoraði úr vítinu og vann leikinn 1-0. „Það er algjör vitleysa að verðlauna manninn með því að láta hann dæma stærsta leik tímabilsins,“ sagði Laws. - egm Dómarinn Mike Dean: Verðlaunaður fyrir mistök MIKE DEAN Gerði dýrkeypt mistök um síðustu helgi. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.