Fréttablaðið - 07.04.2010, Blaðsíða 16
7. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
Lokafrestur til að skila inn
hugmyndum í hönnunar-
samkeppni verslunarinnar
Kraum, Listasafns Reykja-
víkur og Hönnunarmiðstöð
Íslands rennur út á morgun
8. apríl klukkan 17. Þetta er
í annað sinn sem þessir aðil-
ar standa fyrir hönnunar-
samkeppni þar sem sjónum
er beint að ákveðnum lista-
manni. Á síðasta ári voru
verk Errós lögð til grund-
vallar í samkeppninni en að
þessu sinni er óskað eftir til-
lögum að nytjahlut sem end-
urspeglar hugarheim og verk
myndhöggvarans Ásmundar
Sveinssonar.
Verðlaunin eru að verð-
mæti 500 þúsund krónur en
Kraum, Listasafn Reykja-
víkur, Samtök atvinnulífsins
og Samtök iðnaðarins leggja
þau til, auk þess sem hlutur-
inn verður seldur í versl-
unum Kraums í Aðalstræti
og á Kjarvalsstöðum og í
safnverslunum Listasafns
Reykjavíkur í Hafnarhúsi
og Ásmundarsafni. Einn-
ig má gera ráð fyrir því að
fleiri munir í samkeppninni
verði valdir til sölu á næstu
mánuðum.
Gripurinn á að vera hann-
aður undir áhrifum frá
Ásmundi, en má ekki vera
eftirlíking af verkum hans.
Engar takmarkanir eru á
verði vörunnar. Þátttakend-
ur sjá sjálfir um framleiðslu
á þeim vörum sem verða
fyrir valinu eða finna fyr-
irtæki til að gera það fyrir
sig.
Úrslit keppninnar verða
kynnt við opnun sumarsýn-
ingar Ásmundarsafns 1. maí
2010.
Hannað í anda Ásmundar
ÁSMUNDUR SVEINSSON Ásmundur hélt alla tíð tryggð við þá hugmynd
að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess.
Farfuglaheimilið í Laug-
ardal og Farfuglaheimilið
við Vesturgötu í Reykjavík
fengu í gær vottun nor-
ræna umhverfismerkisins
Svansins, til staðfestingar
á góðum árangri í umhverf-
ismálum. Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra
veitti leyfið við athöfn í Far-
fuglaheimilinu í Laugardal.
Farfuglaheimilið í Laugar-
dal hlaut í fyrsta sinn vottun
árið 2004 en heimilið leggur
áherslu á umhverfisfræðslu
og hefur hvatt gesti sína
til að taka þátt í umhverf-
isstarfi. Farfuglaheimilið
við Vesturgötu opnaði vorið
2009 og hefur unnið að því
að takmarka áhrif reksturs-
ins á umhverfið.
Sigríður Ólafsdóttir,
rekstrarstjóri Farfugla-
heimilanna í Reykjavík,
segir ferðamenn vilja geta
valið þjónustu frá fyrir-
tækjum sem gera betur í
umhverfismálum. Farfuglar
birtu umhverfisstefnu sína
árið 1999 og hafa því verið
leiðandi í umhverfisstarfi
í ferðaþjónustu á Íslandi í
meira en áratug.
- rat
Farfuglaheimili fær Svan
REKSTRARSTJÓRI Sigríður Ólafsdóttir segir ferðamenn vilja geta valið
þjónustu frá fyrirtækjum sem gera betur í umhverfismálum.
Félag áhugafólks um heim-
speki efnir til fyrirlestra-
raðar á vordögum undir
yfirskriftinni „Hrunið og
heimspekin“, en þar verður
rýnt í íslenskan veruleika
samtímans og síðari ára,
eftir hrun, með augum heim-
spekinnar.
Fyrirlestrarnir verða
fimm talsins og allir haldn-
ir á fimmtudögum klukk-
an 17 í Amtsbókasafninu á
Akureyri.
Á morgun ríður Páll
Skúlason, fyrrverandi rekt-
o r H á s k ó l a
Íslands, á vaðið
með fyrirlestri
sínum „Sam-
félag og ríkis-
vald: Hvað fór
úrskeiðis?“
Hrunið og
heimspekin
PÁLL SKÚLASON
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Jórunn Eyjólfsdóttir
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík,
andaðist sunnudaginn 4. apríl sl. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 12. apríl kl 15.00. Blóm
og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á að láta Barnaspítala
Hringsins njóta þess.
Eyjólfur Jónsson
Arndís Jónsdóttir
Gunnar Jónsson Erla Sigtryggsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Agnar Urban
Heiðarvegi 4, Selfossi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 31. mars sl.
Útför fer fram frá Hveragerðiskirkju 9. apríl kl. 13.00.
Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir
Agnar Þór Agnarsson Karólína Ómarsdóttir
Guðlaugur Stefánsson Auður Inga Ólafsdóttir
Hrönn Þorsteins Magnús Haukur Hannesson
Friðrika Jóhanna
Sigurgeirsdóttir Þorvaldur Guðmundsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
frá Auðunarstöðum,
sem lést 27. mars sl. á Heilbrigðisstofnuninni
á Hvammstanga, verður jarðsungin frá
Víðidalstungukirkju mánudaginn 12. apríl kl. 14.00.
Kristín Jóhannesdóttir
Margrét Jóhannesdóttir Guðmundur Gíslason
Guðmundur Jóhannesson Kristín Björk
Guðmundsdóttir
Ólöf Jóhannesdóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri,
Jón Trausti Haraldsson
frá Vestmannaeyjum,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 31. mars síðast-
liðinn. Útför auglýst síðar.
Guðmundur Heinrich Jónsson
Sindri Jónsson
Haraldur Trausti Jónsson
Valborg Júlíusdóttir
Þóranna Haraldsdóttir
Hermann Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Edda Tegeder
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi G. Ingimundarson
Hjallaseli 55, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala 1. apríl síðastliðinn.
Rósa Helgadóttir
Þóra Helgadóttir
Ingimundur Helgason Svanhildur Pétursdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Móðir okkar,
Guðrún Theodóra
Sigurðardóttir
lést á líknardeild Landspítalans að kvöldi skírdags
1. apríl. Útförin verður auglýst síðar.
Sigríður Steinunn, Eiríkur og Sigurður Sverrir Stephensen.
Elskulegur tengdasonur minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Árni
Bjarnason
Smárahvammi 2, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 31.
mars. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstudag-
inn 9. apríl kl. 11.00.
Guðríður Guðbrandsdóttir
Þorsteinn Guðmundsson Björg Sigurðardóttir
Júlíana Ósk Guðmundsdóttir Ólafur Björn
Heimisson
Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir Gylfi Bergmann
Heimisson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Birna R. Þorbjörnsdóttir
frá Sporði,
Hvammstangabraut 20, Hvammstanga,
verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju föstudaginn
9. apríl kl. 15.00.
Ágúst Jóhannsson
Þorbjörn Ágústsson Oddný Jósefsdóttir
Jóhanna Sigurða Ágústsdóttir Guðmundur Vilhelmsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Böðvarsson
fyrrverandi skólameistari,
lést á Landspítalalanum í Fossvogi á páskadag. Útför
hans fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 12.
apríl kl.13.00.
Guðrún Erla Björgvinsdóttir
Björgvin Jónsson Sigríður Dóra Magnúsdóttir
Böðvar Jónsson Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Ásthildur Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.