Fréttablaðið - 09.04.2010, Side 6
6 9. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
Skipt verður upp í eftirfarandi hópa og hópstjóra:
1. Peningamálastefna – Benedikt Jóhannesson
2. Stefna í gjaldmiðlamálum – Eyþór Arnalds
3. Umgjörðin um atvinnulífið – Þorsteinn Víglundsson
4. Skattastefna – einstaklingar – Sigríður Dís Guðjónsdóttir
5. Skuldavandi heimila – Erla Ósk Ásgeirsdóttir
6. Endurreisn atvinnulífs – Thomas Möller
7. Hagræðing í opinberum rekstri – Magnea Guðmundsdóttir
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins munu taka virkan þátt í starfi hópanna.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, leiðtogi sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og varaformaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, mun flytja ræðu við upphaf fundarins.
Skráning á fundinn og í hópa er hjá Guðmundi Skarphéðinssyni á netfangið
gudmundur@xd.is og í síma 892-1846.
Allir eru velkomnir til að taka þátt í stefnumótun þessara
málaflokka hjá Sjálfstæðisflokknum.
Stefnumótunarfundur
í Valhöll
Laugardaginn 10. apríl nk. kl. 10 – 14
Fundurinn er undir stjórn tveggja málefnanefnda
Sjálfstæðisflokksins; atvinnumálanefndar og efnahags-
og skattanefndar.
Í upphafi fundar verður rætt um hvað hægt er að gera
á næstu tveimur árum og síðan horft lengra til framtíðar.
Umhverfisgæði & náttúruauðlindir
Ársfundur Umhverfisstofnunar
Fundurinn er
haldinn í dag,
9. apríl, á Grand
Hóteli og hefst
klukkan 13:00
Allir velkomnir
13:00 Setning ársfundar
13:05 Ávarp umhverfisráðherra, Svandísar
Svavarsdóttur
13:15 Umhverfisgæði og náttúruauðlindir,
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri
13: 30 Nils Hallberg frá sænsku Umhverfis-
stofnuninni: Fugla- og búsvæðatil skipun
ESB í Svíþjóð. Getur löggjöf ESB styrkt
náttúruvernd á Íslandi?
14:00 – 14:40
» Dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi
» Heilnæmi laugarvatns og öryggi á sundstöðum
» Hættuleg efni í umhverfi okkar
» Losun mengandi efna
» Gögn sem koma að gagni
» Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull - saga og jökull
» Friðlýsingar: Hindrun eða tækifæri?
» Aðgerðir gegn akstri utan vega
14:40 Kaffi
15:10 – 15:45
» Breytingar á veiðikortakerfinu
» Upplýsingar á friðlýstum svæðum:
Merkilegt samstarf
» Saman um vatnið
» Vákort af N-Atlantshafi: Hættur og viðbrögð
» Erfðabreyttar lífverur og samfélagið
» Urðað í sátt við umhverfið
» Svansmerkt - Betra fyrir umhverfið og heilsuna
15:45 Umræður
16:00 Ársfundi slitið
Dagskrá ársfundarins
Fundarstjóri er Þórunn Sveinbjarnardóttir
ALÞINGI Skipa á nefnd til að rann-
saka verklag og ákvarðanatöku
fjármálafyrirtækja frá hruninu
haustið 2008 og til ársloka 2009,
samkvæmt frumvarpi sem Guð-
laugur Þór Þórðarson, Sjálfstæð-
isflokki, og tíu aðrir þingmenn
flytja.
Í frumvarpinu segir meðal
annars að nefndin eigi að eyða
tortryggni og grunsemdum um
óeðlileg vinnubrögð innan fjár-
málastofnana og leggja mat á
hvort mistök, mismunun eða
óeðlilegir starfshættir hafi átt
sér stað.
Í greinargerð
er bent á að ekk-
ert eftirlit hafi
verið með verk-
lagi og ákvarð-
anatöku fjár-
málafyrirtækja
frá hruni til árs-
loka 2009 en þá
tók til starfa
sérstök eftir-
litsnefnd þar
um.
„Ýmsar sögusagnir hafa gengið
um ósamræmd og ógagnsæ vinnu-
brögð og hafa margir leitt að því
líkur að fjármálafyrirtæki hafi
mismunað viðskiptavinum sínum
og hvorki hugað að samkeppnis-
sjónarmiðum né jafnræðissjónar-
miðum,“ segir í greinargerðinni.
Þessu hafi fjármálafyrirtækin
vísað á bug.
Fram kemur að nefndin, sem á
að vera skipuð hæstaréttardóm-
ara auk tveggja sérfræðinga,
skuli huga sérstaklega að því, með
almannahagsmuni að leiðarljósi,
að birta í skýrslu sinni upplýs-
ingar um hvaða aðilar hafi feng-
ið felldar niður skuldir sínar við
fjármálafyrirtæki. - bþs
Nefnd rannsaki verklag og ákvarðanatöku bankanna frá hruni til ársloka 2009:
Upplýst verði um lánaafskriftir
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
AFGANISTAN, AP Hamid Karzai,
forseti Afganistans, hótaði því
aldrei að ganga til liðs við tali-
banahreyfinguna, segir Waheed
Omar, talsmaður forsetans.
Hann segir ekkert hæft í full-
yrðingum þingmanna um slíkar
hótanir. Hann sagði Karzai enn
sem áður staðráðinn í að halda
áfram baráttunni gegn uppreisn-
arhreyfingu talibana.
Hins vegar sagði Omar forset-
ann standa við gagnrýni sína á
erlendan þrýsting vegna forseta-
kosninganna á síðasta ári. - gb
Karzai dregur í land:
Hafði aldrei
uppi hótanir
UTANRÍKISMÁL Íslendingar þurfa að
gera upp hug sinn og ákveða hvar
þeir vilja vera í samfélagi þjóða.
Það væri jafnvel betra að fresta
yfirstandandi viðræðum við ESB
en að halda þeim áfram í óvissu um
hvert sé stefnt.
Þetta segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrrum utanríkisráð-
herra, í viðtali við Clemens Boms-
dorf, blaðamann þýska Financial
Times, sem birtist í gær á netsíðu
hans, High North.
Blaðamaðurinn spyr Ingibjörgu
hvernig hún meti líkindi þess að
Ísland gangi í Evrópusambandið.
„Ég veit það ekki. Ég held að
það verði ekki samþykkt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Þetta gæti breyst,
en þá þurfum við einhvern til að
berjast fyrir inngöngu. Það er eng-
inn að því núna. Af hverju veit ég
ekki. Kannski eru þau hrædd við
að taka umræðuna því almennings-
álitið er svolítið á móti öllu sem
erlent er. Útlendingar eru vondu
gæjarnir um þessar mundir. Að
tala fyrir meiri samvinnu við ESB
er ekki líklegt til vinsælda,“ segir
Ingibjörg. Hún nefnir að ekki sé
meirihluti fyrir aðild á Alþingi.
Misheppnaður Evrópuleiðangur
og einangrun landsins sé það sem
hún hafi mestar áhyggjur af og
hugsi um daglega. Yngri kynslóð-
in og „besta fólkið okkar“ muni
ekki telja það góðan kost að búa á
einangruðu Íslandi.
„Í gegnum aldirnar hefur okkur
ávallt farnast best í samvinnu við
önnur lönd,“ segir hún.
Í stað þess að skilgreina hags-
muni landsins og rækja sam-
band við alla bandamenn sína séu
Íslendingar „að gera þetta mjög
illa. Við erum að stofna til slags-
mála á hverjum vettvangi og ég
held að það sé rangt. Við erum lítið
land sem þarf á bandamönnum að
halda,“ segir hún. Kjánalega hafi
til að mynda verið farið með sam-
bandið við Bandaríkjamenn, allar
götur síðan um aldamót. Þrjóska
hafi einkennt þau samskipti. Íslend-
ingar hafi krafist þess að fjórar
þotur skyldu vera á landinu, þegar
öllum mátti vera ljóst að það þjón-
aði engum tilgangi.
Ingibjörg Sólrún hafnar því að
velja skuli eina þjóð, svo sem Þýska-
land eða Noreg, sem sérstaka vina-
þjóð, komi það niður á sambandinu
við aðrar þjóðir. Jafnvel hagsmun-
ir Norðmanna geti verið andstæðir
íslenskum. klemens@frettabladid.is
Frestur væri bestur
á aðildarviðræðum
Fyrrum utanríkisráðherra er ósáttur við þá leið sem Íslendingar fara að hugs-
anlegri ESB-aðild. Enginn sé að berjast fyrir inngöngu í sambandið og ólíklegt
að aðildarumsókn verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Fyrrum utanríkisráðherra hefur miklar áhyggjur af
því að landið sé að einangrast og telur allra mikilvægast að ákveðið verði hvar landið
eigi að standa meðal annarra þjóða. Einhver þurfi að koma fram og tala með ESB-
aðild. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALÞINGI Nauðsynlegt er að sporna við aukningu á
ólöglegri happdrættis- og veðmálastarfsemi hér á
landi í gegnum netið. Þetta er mat Rögnu Árnadótt-
ur, dómsmála- og mannréttindaráðherra, sem lagt
hefur fram frumvarp sem girða á fyrir auglýsingar
erlendra happdrætta hérlendis.
Til happdrætta teljast fjárhættuspil og veðmál
ýmiss konar, samkvæmt lögum um happdrætti.
Frumvarpið lætur lítið yfir sér. Aðeins bætast tíu
orð við gildandi lagaákvæði sem snýst um bann við
að auglýsa, kynna eða miðla upplýsingum um happ-
drætti sem ekki hefur leyfi samkvæmt lögunum.
Viðbótin tekur til starfsemi sem rekin er erlendis.
Á síðasta ári féll sýknudómur í Hæstarétti í máli
sem höfðað var vegna auglýsinga erlenda veðmála-
fyrirtækisins betsson.com. Óumdeilt var að fyrir-
tækið hefði ekki leyfi til starfseminnar en þar
sem það var erlent töldust auglýsingarnar ekki
brjóta í bága við lögin. Við þessu ætlar ráðherra að
bregðast.
Í athugasemdum frumvarpsins segir að á síðustu
árum hafi þátttaka í fjárhættuspilum og veðmál-
um á netinu aukist. Einkum sé um að ræða veðmála-
fyrirtæki sem staðsett séu erlendis og visti netsíður
sínar erlendis. Í mörgum tilvikum sé í raun um að
ræða veðmálastarfsemi sem sérstaklega sé beint að
íslenskum ríkisborgurum, meðal annars með aug-
lýsingum sem birtar eru í íslenskum fjölmiðlum,
þar á meðal á vefsíðum. - bþs
Koma á í veg fyrir auglýsingar happdrætta sem ekki hafa leyfi samkvæmt lögum:
Girt fyrir erlendar veðmálaauglýsingar
RAGNA ÁRNADÓTTIR Dómsmála- og mannréttindaráðherra
segir nauðsynlegt að sporna við aukningu á ólöglegri happ-
drættis- og veðmálastarfsemi hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN
Hefur þú skoðað eldgosið á
Fimmvörðuhálsi í vefmyndavél-
um Mílu?
Já 57,7%
Nei 42,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú fyrrum eigendur
Glitnis hafa misnotað bankann
fyrir hrun?
Segðu skoðun þína á Vísi.is