Fréttablaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 18
18 9. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma,
dóttir, systir, mágkona og frænka,
Rósa Hansen
Baugatúni 6, Akureyri,
lést föstudaginn 2. apríl. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 13. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð fyrir syni
hennar í banka 1145-05-251234 Kt. 150954-4799.
Birgir Óli Sveinsson
Birgir Snær
Óttar Sindri
Sveinn Óli
Hrannar Marel
Ásta Hansen Jóhann Sverrisson
Símon Þorsteinsson
Rúnar Helen
Helga Ösp Oddsteinn
Sandra Björk
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri,
Jón Trausti Haraldsson
frá Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 12. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar eru
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
styrktar reikning 0114-05-065185 kt. 081085-2779.
Guðmundur Heinrich Jónsson Irina Yurievna
Sindri Jónsson
Haraldur Trausti Jónsson
Edda Tegeder
Þóranna Haraldsdóttir
Hermann Haraldsson Brynhildur Jakobsdóttir
Haraldur Haraldsson Sæunn Helena
Guðmundsdóttir
Valborg Elín Júlíusdóttir
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Þórdís Guðrún Jónsdóttir
Reykjamörk 2b, Hveragerði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 5. apríl.
Jarðsungið verður frá Hveragerðiskirkju laugardaginn
10. apríl kl. 13.00.
Guðlaug Bjarnþórsdóttir Davíð Jóhannesson
Sólveig Bjarnþórsdóttir Birgir Sigurðsson
Valdís Bjarnþórsdóttir Þormóður Ólafsson
Jón Ingi Bjarnþórsson
Bjarnþór Bjarnþórsson Jóna Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn hinna látnu.
Elsku hjartans dóttir okkar, systir og
barnabarn,
Alexía Bartolozzi
Túngötu 11, Álftanesi,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 6. apríl.
Útförin fer fram í Möðruvallakirkju í Hörgárbyggð
þriðjudaginn 13. apríl klukkan 14.00.
Ragnheiður Sverrisdóttir Luigi Bartolozzi
Sverrir Bartolozzi
Sverrir Haraldsson Sigurbjörg Sæmundsdóttir
Michele Bartolozzi Franca Di Marco
Magnfríður Júlíusdóttir, lektor í land-
fræði við Háskóla Íslands, flytur fyrir-
lestur á morgun, laugardag, um kven-
stýrð heimili í Simbabve. Magnfríður
dvaldi í Simbabve um nokkurra mán-
aða skeið á árunum 1996-1997 þar sem
hún vann rannsókn á stöðu kvenna eftir
að landið öðlaðist sjálfstæði 1980 og sett
voru lög um réttindi kvenna. Fyrirlest-
urinn er haldinn á vegum UNIFEM og
fer fram í húsnæði Miðstöðvar SÞ að
Laugavegi 42 klukkan 13.
„Hugtakið kvennastýrð heimili nær
yfir heimili þar sem ekki er fullorðinn
karlmaður á heimilinu,“ útskýrir Magn-
fríður en kvennastýrð heimili eru um
þriðjungur heimila í Simbabve. Helm-
ingur þessa hóps eru giftar konur þar
sem eiginmennirnir eru farandverka-
menn, næststærsti hópurinn er ekkjur
og svo frákskildar konur.
„Ég talaði við 160 konur og meirihluti
þeirra var fráskilinn en ég vildi skoða
breytingar á stöðu kvenna í kjölfar sjálf-
stæðis og lagasetningar sem gerði þeim
mögulegt að verða sjálfráða. Fyrir árið
1980 gátu þær ekki skilið við menn sína
og öðlast forræði yfir börnunum. Börnin
tilheyrðu föðurfjölskyldunni og konan
átti ekki tilkall til þeirra. Það hafði hald-
ið konum föstum. Barnasáttmáli Sam-
einuðu Þjóðanna var einnig lögfestur í
landinu í byrjun 10. áratugarins og mín
niðurstaða var sú að hann hefði nýst kon-
unum jafnvel meira en kvenréttindalög-
gjöfin þar sem dómstólar túlkuðu hann
konum í vil og veittu konum forræði yfir
börnunum við skilnað.“
Magnfríður segir stöðu kvennanna
hafa ráðist af menntun þeirra, aldri og
hversu sterkt fjölskyldunet þær höfðu í
kringum sig. Ungar ómenntaðar konur
höfðu það einna verst meðan menntaðar
konur á miðjum aldri höfðu það ágætt
og einnig þær ekkjur sem áttu fullorð-
in börn sem lögðu til heimilisins. Staða
giftu kvennanna fór eftir því hvort
eiginmaðurinn sendi peninga heim.
„Á þessum tíma var versnandi efna-
hagsástand í landinu og hefur versnað
eftir það, svo það er ljóst að þessar ungu
konur og þær eldri sem höfðu ekki börn-
in til að hjálpa standa ekki vel. Landið
er einnig lélegt landbúnaðarland á þeim
svæðum sem Afríkubúum var úthlutað
eftir að nýlendutímanum lauk.
Mín túlkun er þó sú að konur hafi
styrkst við þessar breytingar. Í viðtöl-
unum kom fram að konunum fannst
jákvætt að geta yfirgefið óhamingjusöm
hjónabönd, með forsjárrétti yfir börnun-
um. Það skipti konurnar miklu máli að
geta menntað börnin en markmið þeirra
allra var að koma þeim í framhalds-
skóla. Menntun væri það sem myndi
bæta líf barnanna.“ heida@frettabladid.is
FYRIRLESTUR Á VEGUM UNIFEM: KVENNASTÝRÐ HEIMILI Í SIMBABVE
Staða kvenna hefur styrkst
ÖÐLUÐUST RÉTT TIL BARNA SINNA Magnfríður Júlíusdóttir, lektor við Háskóla Íslands, segir frá rannsókn á stöðu kvenna í Simbabve eftir fengið
sjálfstæði landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dagur húnvetnskrar náttúru
verður haldinn á Gauksmýri
í Línakradal í Húnaþingi
vestra á morgun, 10. apríl.
Hann hefst á því að Skúli
Þórðarson sveitarstjóri
setur samkomuna klukk-
an 9.30 og Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra
ávarpar gesti. Síðan verða
stutt erindi flutt um hin fjöl-
breytilegustu efni sem lúta
að húnvetnskri náttúru, allt
fram til klukkan 17. Súpa
verður á borðum í hádeginu
og kaffisopinn verður heldur
aldrei langt undan.
Að fyrirlestrum loknum
verður boðið upp á veitingar
í húsnæði Selaseturs Íslands
á Hvammstanga. Þar verð-
ur fimm ára afmæli Sela-
setursins fagnað og einnig
tíu ára afmæli Náttúrustofu
Norðurlands vestra en þau
tvö fyrirtæki standa að
þessum fræðsludegi. Sveitar-
félögin í Húnavatnssýsl-
um og fyrirtæki í héraðinu
styrkja líka viðburðinn.
Þátttaka tilkynnist á net-
fangið steini@nnv.is eða í
síma 453 7999.
Húnvetnsk náttúra
UMHVERFISRÁÐHERRA Svandís
Svavarsdóttir verður meðal
Húnvetninga.
Þennan dag árið 1981 varð öskufalls vart í Búr-
felli og hraunstraumar runnu beggja vegna við
Litlu-Heklu að Suðurbjöllum. Þetta var sextánda
gos Heklu frá landnámi og telst seinni hluti tví-
skipts goss sem hófst í Heklu 17. ágúst árið áður.
Fram að þessu hafði Hekla legið í dvala í tíu ár
eða frá því að hún gaus 1970.
Hinn 17. ágúst 1980 drundi í tindi Heklu og
gosmökkur reis upp af fjallinu eftir hádegið
í blíðskaparveðri. Öskubólstrar, vatnsflóð og
hraun rann niður hlíðar fjallsins og sáust eldar á
fjallshryggnum þar sem 8 kílómetra löng sprunga
hafði opnast. Gosið var kröftugt en stóð stutt.
Gjóska barst yfir Mið-Norðurland og olli veikind-
um í búfénaði en 20. ágúst var gosinu lokið.
Fjallið bærði ekki aftur á sér fyrr en aðfaranótt 9.
apríl. Það gos stóð einnig stutt, eða til 16. apríl.
ÞETTA GERÐIST: 9. APRÍL ÁRIÐ 1981
Seinni hluti Heklugoss hefstGUÐNI ÁGÚSTSSON, FYRRVERANDI RÁÐHERRA, ER 61 ÁRS.
„Það eru mannréttindi
að eiga sauðfé.“
Guðni Ágústsson er bóndason-
ur úr Hraungerðishreppi með
búfræðipróf frá Hvanneyrar-
skóla. Guðni var landbúnaðar-
ráðherra í ríkisstjórn Íslands á
árunum 1999 til 2007.
MERKISATBUÐIR
1940 Þjóðverjar ráðast inn í
Danmörku og Noreg.
1942 Tveir Íslendingar og 22
Norðmenn farast með
norska skipinu Fanefeld
á leið frá Bíldudal til Ísa-
fjarðar.
1963 Sextán sjómenn farast í
ofviðri og hörkufrosti sem
gerir um allt land.
1967 Fyrsta Boeing 737-flug-
vélin flýgur jómfrúarflug
sitt.
1991 Georgía lýsir yfir sjálf-
stæði frá Sovétríkjunum.
1992 Manuel Noriega dæmdur
fyrir átta glæpi.
1999 Ibrahim Baré Maïnassara,
forseti Nígeríu, ráðinn af
dögum.