Fréttablaðið - 09.04.2010, Blaðsíða 34
22 9. apríl 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ekkert at í
réttarsalnum!
Já Fríða mín. Við
vitum að þú vilt fá
bangsann en við
finnum hann ekki!
Geturðu ekki sofið
án bangsans, bara
í nótt?
Ég er ekki
frá því að við
eigum svefn-
töflur einhvers
staðar...
Pondus! Nú
skulum við
vera alveg
róleg!
Ókei,
ekki
horfa á
mig!
HVAR ERTU
BANN-
SETTUR?!
Hún kemst upp í 80
kílómetra hraða.
Og kemst 30 kílómetra
á bensínlítranum.
Og það er auðvelt
að leggja henni.
Plús að hún færir
mér tíu útlitsstig!
Plússtig eða
mínusstig?
Með nýrri tækni er
aldrei að vita.
Solla mín,
ég ætla út í
timbursölu.
Viltu koma
með?
Það verður gaman! Þú getur
hjálpað mér að velja timbur og
svo sjáum við þegar maðurinn
sagar það með stóru söginni!
Lánaðu mér
húfuna þína.
Þú getur
alveg sagt
nei! Þú
þarft ekki
að gera grín
að mér!
ÁrsfundurEftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka Íslands, boðar til ársfundar þriðjudaginn 27. apríl 2010 kl. 17.15 á Grand Hótel, Háteigi 4. hæð.
Dagskrá:Skýrsla stjórnar.Stjórnarkjör.Önnur hefðbundin ársfundarmál.Allir sjóðsfélagar eiga rétt á setu á ársfundi með mál-frelsi og tillögurétti. Sjóðsfélagar eru hvattir til að mæta.Stjórnin
Aðalfundur Reykjavíkur Akademíunnar, Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna, verður haldinn föstudaginn 16. apríl kl. 16:00 í fundarsal félagsins að Hringbraut 121, 4. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf og stjórnarkjör.Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.akademia.isStjórnin
Þá er lokið stærstu málsháttaveislu ársins. Milljón málshættir, dulbúnir
sem súkkulaðiegg og umvafðir sælgæti í
skrjáfpappír, hafa nú runnið inn í hug og
hjarta landsmanna og -kvenna öllum til
umhugsunar og vonandi sumum til hug-
ljómunar. Það er frábært hversu margir
hafa áhuga á málshættinum inni í páska-
egginu, sumir réttlæta jafnvel óhóflega
súkkulaðineyslu um páska með því að þeir
kaupi páskaeggin bara fyrir málshættina.
EINHVERJIR líta á málsháttinn sinn sem
skilaboð frá framtíðinni, að eggið sé mynd-
líking fyrir framtíð sem enginn veit hvað
ber í skauti sér annað en fullt af súkku-
laði og síðan leyndardómsfull skilaboð
um hvað sé í vændum eða hvernig sé
best að haga lífi sínu fram að næstu
páskum.
MARGIR settu málsháttinn sinn
(enginn þorir að viðurkenna að hafa
fengið fleiri en einn) sem stöðu á fés-
bókinni. Ég gerði það ekki. Þið sem
söknuðuð míns málsháttar úr flór-
unni fáið hann hér: Betri er lítill
fiskur er tómur fiskur. Sem
segir mér að litlu ungarnir
sem skrifa málshættina í
skemmtilegu súkkulaðiverk-
smiðjunni (sem minnir ekkert
á barnaþrælabúðirnar þar sem
alvöru súkkulaði er búið til)
láti ekki prófarkalesa skrif sín. Trúleys-
inginn á heimilinu fékk: Trúin flytur fjöll.
Málsháttaunnendur eru þó ekki skildir
eftir grátandi á berangri eftir páskana, því
finna má málshætti og heilræði víðar en í
páskaeggjum.
TIL dæmis í dagbókum frá dagbókaútgáf-
unni Varmá sem sér mörgum fyrirtækjum
fyrir dagbókum handa starfsmönnum. Þar
má rekast á frábæra og sjaldséða máls-
hætti, heilræði og gamanmál sem auðga
daga og vikur þeirra sem þurfa að skipu-
leggja sig á vinnustað. Ég á svona bók og
hlakka til í ágúst þegar ég get velt fyrir
mér setningunni: „Jafnvel fegursta kona
getur ekki gefið meira en hún á“.
Í október býðst mér að hugleiða að: „kven-
kyn allra tegunda er hættulegast þegar
það sýnist vera að hopa“ og í þriðju viku
desember skal brjóta heilann um þetta:
„Það var leiðinlegt í saumaklúbbnum í
kvöld – þær mættu allar.“ Í mars fékk ég
hins vegar að smjatta á spekinni: „Frjáls-
ar fóstureyðingar eru eingöngu studdar af
fólki sem þegar hefur fengið að fæðast.“
EF einhver þykist sjá kvenfyrirlitningu í
þessum orðum, og jafnvel beinar árásir
á ungar konur, ætti sá hinn sami að líta á
eigið barn og muna að aldrei er góð ýsa of
oft freðin og ei var hátíð fátíð í þátíð. Sem
það nú er.
Málsháttatal