Fréttablaðið - 10.04.2010, Page 52
10. apríl 2010 LAUGARDAGUR4
Samstarfssjóður Kommunequarfi k
Sermersooq-Reykjavíkur-
Þórshafnar auglýsir eftir
styrkumsóknum fyrir árið 2010
Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðstaða Færeyja, Græn-
lands og Íslands. Sjóðurinn hefur að markmiði að efl a skilning
og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga
íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til
verkefna sem þjóna þessum markmiðum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna
sem tengjast samskiptum milli bæjanna og efl a tengsl þeirra
með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða
íþrótta.
Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ýtarlega, fyrirkomu-
lagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.
Umsókn skal beint til:
Samstarfssjóður Kommunequarfi k Sermersooq-Reykjavíkur-
Þórshafnar
b.t. skrifstofu borgarstjórnar
Ráðhúsi Reykjavíkur
101 Reykjavík
Umsóknir berist eigi síðar en mánudaginn 10. maí nk. og koma
umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu. Sérstök
umsóknareyðublöð fást í upplýsingum í Ráðhúsi Reykjavíkur og
á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi
Reykjavíkur, s: (354) 411 4702.
Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní nk.
Reykjavík, 6. apríl 2010
Skrifstofustjóri borgarstjórnar
FLOKKSTJÓRI, SUMARVINNA
Faxafl óahafnir sf óska að ráða til starfa fl okkstjóra
sumarvinnufl okks.
Starfi ð felst í umsjón með sumarvinnufl okknum sem
vinnur að hirðingu opinna svæða auk minni viðhalds- og
þjónustuverkefna á vegum hafnanna. Um tímabundið
starf er að ræða. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af
garðyrkjustörfum. Vinnufl okkurinn mun hafa starfsstöð í
Bækistöð Faxafl óahafna að Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um starfi ð gefur
Jón Guðmundsson í síma 5258951.
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is
Héðinn hf. óskar eftir að ráða vélvirkja, vélstjóra og
járniðnaðarmenn til starfa á nýju þjónustuverkstæði
fyrirtækisins á Grundartanga.
Umsækjendur verða að hafa sveinspróf.
Um er að ræða krefjandi og áhugaverð verkefni við
vélbúnað, viðhald og nýsmíði. Vinsamlegast sendið
umsóknir til Héðins á netfangið atvinna@hedinn.is
eða fyllið út umsókn á vefsíðu fyrirtækisins
www.hedinn.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nýtt þjónustuverkstæði Héðins tók til
starfa á Grundartanga í byrjun ársins.
Það er 600 fermetrar að stærð, og þar
af er aðstaða starfsmanna 180 fermetrar.
Vélvirkjar / Vélstjórar
Járniðnaðarmenn
Nánari upplýsingar veitir Bergþór Lund
í síma 660 2137, beggi@hedinn.is
Laus störf á þjónustuverkstæði Héðins á Grundartanga
Með doktorsnámi við lagadeild Háskólans í Reykjavík er stefnt að því að þjálfa doktorsnema til rannsóknar- og
kennslustarfa og annarra starfa sem krefjast mikillar vísindalegrar þjálfunar og þekkingar. Náminu er ætlað að
dýpka fræðilega og aðferðafræðilega þekkingu doktorsnema í því skyni að gera þá hæfa til að vinna sjálfstætt
og ígrundað á fræðasviðinu. Til að uppfylla kröfur til að öðlast doktorsgráðu frá lagadeild Háskólans í Reykjavík
skal doktorsnemi, undir leiðsögn doktorsmenntaðs leiðbeinanda, hafa unnið vísindalegar rannsóknir sem fela
í sér sjálfstætt framlag til þekkingarsköpunar á sviði lögfræði. Doktorsgráðu skal því aðeins veita að doktorsnemi
hafi unnið sjálfstæðar frumlegar rannsóknir sem hafi nægjanlegt nýnæmi og vísindalegt gildi og séu af nægu
umfangi til þess að verðskulda gráðuna.
Doktorsnám við lagadeild Háskólans í Reykjavík er fullt þriggja ára nám og svarar til 180 staðlaðra námseininga
(ECTS). Doktorsnemi skal dvelja við erlenda háskólastofnun í allt að 6 mánuði af námstímanum.
Lagadeild HR auglýsir eftir tveimur doktorsnemum en deildin hefur fengið heimild
menntamálaráðuneytisins til að bjóða doktorsnám í lögum (PhD).
Stjórnskipunarréttar, þjóðaréttar og mannréttinda; réttarsögu og stjórnskipunarsögu; bótaréttar og
vátryggingaréttar og heilbrigðisréttar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið meistaranámi í lögfræði eða skyldum
greinum og hafa sýnt afburðaárangur í námi og/eða starfi og vera líklegir til að geta tekið frumkvæði í
þekkingarsköpun á sviði vísinda eða atvinnulífs.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á www.hr.is til skrifstofu lagadeildar fyrir 15. maí 2010.
Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum, feril- og ritaskrá ásamt drögum að rannsóknaráætlun.
Nánari upplýsingar um doktorsnámið er að finna á slóðinni www.hr.is/deildir/lagadeild/doktorsnam.
Einnig veitir skrifstofa lagadeildar frekari upplýsingar í síma 599 6407.
Við lagadeild HR eru um 400 nemendur og 15 fastir akademískir starfsmenn. Hlutverk Háskólans í Reykjavík
er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði. Akademískar deildir skólans eru
fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild
Nemendur eru um 3000 og starfsmenn skólans eru yfir 500 í 270 stöðugildum.
DOKTORSNÁM VIÐ LAGADEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
Lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur að undangengnu gæðamati
erlendrar sérfræðinganefndar fengið heimild menntamálaráðuneytisins
til að bjóða doktorsnám í lögum (PhD).
www.hr.is
Dalshrauni 13, Hafnarfi rði - sími 578 9700
Margmiðlunarfræðingur
Óskar eftir vinnu
Hef mikla tæknilega þekkingu á
helstu forritum tengdri margmiðlun
Hef reynslu af: Myndbandavinnslu
Þrívíddarhönnun
Samsetningu
Eftirvinnslu
HTML
Flash
Nánari upplýsingar
margmidlunarf@gmail.com
www.ingvason.com