Fréttablaðið - 10.04.2010, Blaðsíða 84
44 10. apríl 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Það var árið 1960 sem ég hóaði saman nokkrum músíkölsk-
um Eskfirðingum. Þetta voru Ellert Borgar, bróðir minn,
vinir okkar og frændur og við stofnuðum sex manna band
sem hét Hljómsveit Hauks Þorvaldssonar. Létum útbúa
nótnastanda með stöfunum HÞ – voða virðulegt! Þarna var
spilað á klarinett, trompet, gítar, píanó, bassa og trommur.
Tilefnið var það að við héldum tónleika með ýmsum atrið-
um inn á milli, vorum sparilega klæddir og höfðum voða
gaman af þessu.“
Þannig farast Hauki Þorvaldssyni, forstöðumanni
Íþróttamiðstöðvar Hornafjarðar, orð þegar hann er beðinn
að rifja upp fyrstu hljómsveitartaktana sem nú eru orðnir
að fimmtíu ára samfelldri sögu. Hann rekur reyndar upp-
haf spilamennskunnar lengra aftur því fyrir utan tónlist-
ariðkun á æskuheimilinu byrjaði hann að þenja harmóníku
á böllum barnaskóla Eskifjarðar fjórtán ára að aldri. „Þá
fékk ég þessa bakteríu sem ég hef ekki losnað við síðan,“
segir hann og bætir við. „Ég er klárlega ekki besti hljóð-
færaleikari sem hefur farið á svið en með mér hefur allt-
af valist góður mannskapur og það hefur gefið mér byr í
seglin.“
Þegar Haukur er beðinn að rifja upp nöfn hljómsveitanna
sem hann hefur starfað í koma Ómar fyrst upp í hugann.
„Ómar var mjög vinsæl hljómsveit fyrir austan á tímabilinu
1960-70, var húsband félagsheimilisins Valaskjálf á Egils-
stöðum þegar það var vígt og fyrstu árin á eftir. Eins spil-
uðum við mikið í Egilsbúð á Neskaupstað á síldarárunum,
jafnvel í miðri viku í landlegum. Það voru voðalega hress-
ileg og skemmtileg böll, síldarböllin.“ Haukur kveðst hafa
lært netagerð á Eskifirði hjá Jóhanni Clausen og stundum
hafi bátur beðið við kajann með ónýta nót þegar hann kom
af böllunum. „Þá var ekki um annað að gera en taka upp
nálina og stoppa í,“ segir hann hress.
Haukur er sem sagt Eskfirðingur að uppruna en flutti
til Hornafjarðar 1968 og hefur búið þar síðan. Auðvitað
byrjaði hann strax í danshljómsveit þegar þangað kom. „Ég
lenti beint inn á æfingu hjá Pan kvintett sem var vinsæll
á Hornafirði þá. Síðar urðu til hin ýmsu nöfn með manna-
breytingum, Ein sveitin hét til dæmis Ringuleið og önnur
Hjónabandið.“
Haukur kveðst hafa spilað á svæðinu frá Stykkishólmi til
Vopnafjarðar, miðað við suðurleiðina. „Ég hef ekkert farið
norður,“ segir hann en rifjar upp að á tónlistarskólaárum
í Reykjavík í kringum 1960 hafi hann verið í Tónatríóinu
sem Arnþór Jónsson frá Möðrudal, Addi rokk, hélt úti. „Þar
vorum við Ellert innanborðs og fórum á ýmsa staði á höfuð-
borgarsvæðinu og nágrenni. Eins var ég með Óskari Cort-
es niðri í Ingólfskjallara sem var frægt danshús á sínum
tíma.“
Auk þess að spila um þessar mundir á harmóníku í
gömludansahljómsveitinni Hilmari og fuglunum er Hauk-
ur hljómborðsleikari í eigin bandi sem heitir Hljómsveit
Hauks Þorvaldssonar, rétt eins og það sem hann stofnaði
fyrir fimmtíu árum. Sú sveit hefur starfað í áratugi og
stóð á tímabili fyrir rokkuppfærslum og söngvakeppnum
á Höfn auk þess að spila alhliða danstónlist á skemmtunum.
Söngvarinn og gítarleikarinn hafa verið búsettir á suður-
svæðinu frá árinu 2000 og því segir Haukur nú ekki troðið
upp nema einu sinni til tvisvar á ári. Spurður um lög sem
hafa fylgt honum gegnum tíðina nefnir hann Honky Donk
Women, Lucky lips og Rabarabara-Rúnu. Geirmundarlagið
Nú er ég léttur hefur líka verið á lagalistanum lengi. Þetta
eru allt góð danslög. Kúnstin fyrir hljómsveit sem gefur sig
út fyrir ballbransann er að lesa í mannskapinn. Markmiðið
er alltaf það sama, að gleðja sinn hóp og gera sem flestum
til hæfis,“ segir Haukur og vill að lokum koma á framfæri
þökkum til allra sem hafa spilað með honum gegnum tíðina
og gefið honum góðar minningar. gun@frettabladid.is
HAUKUR HELGI ÞORVALDSSON: Á 50 ÁRA HLJÓMSVEITARFERIL AÐ BAKI
Markmiðið alltaf að gleðja
sinn hóp og gera til hæfis
HAUKUR HELGI ÞORVALDSSON „Ég er klárlega ekki besti hljóðfæra-
leikari sem hefur farið á svið en með mér hefur alltaf valist góður
mannskapur og það hefur gefið mér byr í seglin.“
MYND/SVAVAR SIGURJÓNSSON
MERKISATBURÐIR
1886 Magnús Stephensen er
skipaður landshöfðingi
49 ára gamall.
1905 Vörugeymsluhús Edin-
borgarverslunarinnar í
Reykjavík brennur.
1912 Titanic leggur úr höfn í
Southampton á Englandi
í sína fyrstu og hinstu
ferð.
1933 Togarinn Skúli fógeti
strandar við Grindavík.
Tólf menn farast en 24 er
bjargað.
1940 Íslendingar taka fram-
kvæmd utanríkismála í
eigin hendur.
1970 Paul McCartney gefur út
yfirlýsingu um að Bítlarnir
séu hættir.
JÓNAS KRISTJÁNSSON HAND-
RITAFRÆÐINGUR FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1924.
„Íslensk menning er þannig
vaxin að hún leggur þjóð
sinni sérstakar skyldur á
herðar.“
Jónas er þekktur fyrir fræði-
störf sín sem prófessor og
forstöðumaður stofnunar
Árna Magnússonar á Íslandi.
Friðrik IX. Danakonungur og
Ingiríður drottning komu í
opinbera heimsókn til Íslands
þennan dag árið 1956, fyrst allra
þjóðhöfðingja eftir að Ísland
hlaut sjálfstæði. Þau flugu til
landsins með SAS-flugvélinni Alf
Viking og lentu á Reykjavíkur-
flugvelli þar sem forsetahjónin
Ásgeir Ásgeirsson og Dóra
Þórhallsdóttir tóku á móti þeim.
Veður var hið besta og borgin
fánum prýdd. Mannfjöldi veifaði
hinum tignu gestum á leið þeirra
í Ráðherrabústaðinn við Tjarnar-
götu þar sem konungshjónin
dvöldu
Heimsókn kóngs og drottningar
stóð í fjóra daga. Fyrsta daginn
var þeim boðið til tedrykkju á
Bessastöðum og hátíðakvöld-
verðar á Hótel Borg. Daginn eftir
skoðuðu þau höggmyndasafn
Einars Jónssonar, fóru í messu í
Dómkirkjunni, snæddu hádegis-
verð á Bessastöðum og kvöldverð
í Naustinu og um kvöldið fóru þau
á óperuna Cavalleria Rusticana í
Þjóðleikhúsinu. Þriðja daginn var
Háskóli Íslands heimsóttur, einnig
Reykjalundur í Mosfellssveit og
Þjóðminjasafn Íslands. Lokahóf
var í Þjóðleikhúskjallaranum um
kvöldið og daginn eftir var komið
að brottför.
ÞETTA GERÐIST: 10. APRÍL 1956
Dönsku konungshjónin komu
Stefnt er að því að gera Íslandsmeistara-
keppni í blómaskreytingum sem glæsi-
legasta í ár og kemur hópur frá Noregi til
landsins í tilefni hennar. Þar á meðal einn
af dómurunum. Keppnin verður haldin
sumardaginn fyrsta í Landbúnaðarháskóla
Íslands að Reykjum í Ölfusi. Hún er á dag-
skrá annað hvert ár og nú í fimmta sinn.
Keppt verður í A- og B-flokki. Í þeim
fyrrnefnda eru útskrifaðir blómaskreytar
frá Landbúnaðarháskóla Íslands eða með
sambærilega menntun. Þeir sem keppa
í B-flokki eru nemar eða starfsfólk sem
hafa unnið við blómaskreytingar í verslun
í fimm ár eða lengur. Enn eru laus pláss
og kostnaði er haldið í lágmarki. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu
félagsins www.blomaskreytar.is. Á sömu
síðu er líka hægt að sjá hvaða verslanir
það eru sem hafa menntaða blómaskreyta
í starfi því þær eru merktar með lógói
félagsins, en eins og gefur að skilja skipt-
ir miklu máli að þeir sem meðhöndla blóm
hafi þekkingu á þeim.
- gun
Fagna sumri með keppni
ÍSLANDSMEISTARINN 2008 Berglind Erlingsdóttir
með meistarastykkið. Hún ætlar að verja titilinn
í ár.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sveinbjörn H. Blöndal
listmálari,
Sléttahrauni 19, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. apríl síðastlið-
inn. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 16. apríl
kl. 15.00.
Birna J. Blöndal
Elsa L. Blöndal
Kristján J. Blöndal
Orri Blöndal
Arnbjörg Högnadóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Böðvarsson,
fyrrverandi skólameistari,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn
12. apríl kl. 13.00.
Guðrún Erla Björgvinsdóttir
Björgvin Jónsson Sigríður Dóra Magnúsdóttir
Böðvar Jónsson Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Ásthildur Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Yngvi Þorsteinsson
frá Drangshlíðardal,
áður til heimilis á Hellu
og nú síðast Hvassaleiti 6, Reykjavík, sem lést föstu-
daginn 2. apríl, verður jarðsunginn frá Áskirkju í
Reykjavík, föstudaginn 16. apríl kl. 13.00.
Guðlaug Sæmundsdóttir
Guðlaug Yngvadóttir Steinar Gíslason
Þorbjörg Yngvadóttir Davíð Sigurðsson
Elín Yngvadóttir Guðrún S. Helgadóttir
og afastrákar.
AFMÆLI
TRYGGVI
HANSEN
listamaður
er fimmtíu
og fjögurra
ára.
KRISTÍN
ÞORSTEINS-
DÓTTIR
fyrrverandi
frétta-
maður, er
fimmtíu og
fimm ára.