Fréttablaðið - 12.04.2010, Síða 36
16 12. apríl 2010 MÁNUDAGUR
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
Náðarbrauðið
Við lifum á tímum gegndarlauss upp-náms og ekki var síðasta vika frí af
slíku. Áslaug Guðrúnardóttir, fréttamað-
ur Ríkissjónvarpsins, flutti sláandi frétt
þar sem sýndar voru myndir sem virðast
teknar úr launsátri aftan á fólk sem bíður
í röð eftir náðarbrauði Fjölskylduhjálpar-
innar. Í frétt Áslaugar benti félagsfræð-
ingurinn Harpa Njáls á að stjórnvöld hafi
alla tíð vitað að hér á landi væri greiddur
út lífeyrir sem ekki dygði til framfærslu.
Þess vegna hafi stjórnvöld heldur ekki
viljað reikna út hvað lífeyririnn þyrfti
raunverulega að vera hár.
Á hinum Norðurlöndunum væri félagslega
kerfið byggt upp á jöfnuði en ekki frjáls-
hyggju – eins og hér. Þess vegna þarf fólk
að þola þá niðurlægingu að leita á náðir
hjálparstofnana eftir brýnustu lífsnauð-
synjum. Borgaryfirvöldum finnst mikil-
vægara að atvinnulaust fólk fái tækifæri
til að leika golf en að það geti borðað. Í
hugann kemur frásögnin af fátækrahæl-
inu í bókinni um Emil í Kattholti. Þótt
fátæklingunum hefði verið gefinn jóla-
matur fengu þeir ekki að njóta hans
því ráðskonan stakk honum undan og
át hann sjálf. Reykjavíkurborg virðist
eiga fé en ætlar að verja því í golfvöll.
FLEIRI alvarlegar fréttir rak á fjörur
fréttastofa því ekki höfðum við fyrr
gert okkur grein fyrir því að saklausir
borgarar létu í alvörunni lífið í hernaðar-
átökunum í Bagdad en fjölmiðlar tóku að
fjalla um tölvupósta sem flogið hefðu á
milli helstu hluthafanna í gamla Glitni og
æðstu stjórnenda bankans. Afskipti eigend-
anna þykja hafa verið svona heldur í meira
lagi. Margir hafa líka undrast að þessir
menn hafi látið hanka sig á tölvupóstum í
stað þess að ræða jafnmikilvæg efni í síma
eða á lokuðum fundum en á brotunum sem
Morgunblaðið birti úr tölvupóstunum sést
að menn hafa verið býsna öruggir með
sig. Orðalagið er kokhraust, enda er þetta
skrifað á glæstum tímum þegar allt virtist
mögulegt og orðið „skilanefnd“ var okkur
ekki enn tamt á tungu.
Í einu af tölvuskeytum Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar til Lárusar Welding banka-
stjóra skrifar hann um mál sem hann hafi
verið „að bögga með“ og kveðst setja eitt-
hvað „skýrt upp the bonus way“. Að gera
eitthvað „the bonus way“ varð strax fleygt
og gæti þetta orðatiltæki ef til vill komist
í sama flokk og „Ekkert mál fyrir Jón
Pál“, „Minn tími mun koma“ og „Ísland er
stórasta land í heimi“. Stundum hlotnast
fjölmiðlum sá heiður að skýra okkur frá
því sem við vissum í raun og veru alltaf.
Það er ömurlegt að vera fátækur, fólk deyr
í stríði og þeir sem eru valdamiklir og ríkir
vilja verða enn valdameiri og ríkari.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Bingó! Vitleysing-
urinn þinn! Þú
gleymdir bandinu!
Þú áttir eigin-
lega að festa
þetta við fótinn
á þér!
Ég veit
um einn
sem ætti
að fá
þetta um
hálsinn!
Sorrí!
Ætlarðu
í alvöru að
keyra um
á þessu
Pierce?
Algjör-
lega
maður!
Vespur eru fljótar,
meðfærilegar
og umfram
allt töff!
Hún gefur
mér stíl.
Það er eitthvað
undarlegur stíll.
Flugstöð Gjaldeyrir
Jess! Áskriftin að
sjónvarpsdagskránni
er útrunnin!
Loksins!
Hallelúja!
Og aðrar góðar fréttir; Solla verður
ekki að selja tímaritaáskriftir aftur
þetta árið.
Bíddu, hverjar eru
slæmu fréttirnar?
Góðan daginn
herra minn! Má
bjóða þér að
hjálpa mér að
safna peningum
fyrir skólann minn
með því að kaupa
af mér ljúffengt
sælgæti?
HVAÐ ER Í MATINN?
Á
kynnir skemmtilegan sérvef um
matargerð og hagkvæm matarinnkaup.
Með því að nota einfalt og skemmtilegt
kerfi útbúum við handa þér matseðil eftir
þínu höfði.
Kynntu þér ótrúlegan fjölda gómsætra
uppskrifta á Hvað er í matinn? á
...ég sá það á visir.is