Fréttablaðið - 12.04.2010, Qupperneq 41
MÁNUDAGUR 12. apríl 2010 21
NÝTT
Ný kynslóð af liðvernd
Hýalúrónsýra
Viðheldur heilbrigðum liðum og liðleika
Bionovex olía
Hefur bólgueyðandi eiginleika
Hýalúrónsýra er lykilefni í brjóski og í liðvökvanum
í liðamótum. Hýalúrónsýra er talin auka virkni liðvökvans sem
virkar smyrjandi og höggdeyfandi á liðina. Með aldrinum gengur á
þessar birgðir og með því að taka inn
Regenovex endurhlöðum við þessar birgðir líkamans.
Þegar magn og gæði liðvökvans sem umlykur liðina er ekki nægjanlegt
geta beinin í liðnum farið að nuddast saman, mynda bólgur og valda
sársauka. Bionovex olían er unnin úr grænkræklingi og er því náttúru-
leg. Bionovex olían inniheldur einstaka omega 3 olíu sem finnst aðeins í
þessari tegund grænkræklings og hefur sýnt bólgueyðandi eiginleika.
Regenovex hentar öllum sem leita að bættri
heilsu í liðum en kjósa náttúlegar lausnir fram yfir lyf
m.a. vegna mögulegra aukaverkana þeirra.
Gel Perlur Plástur
Almennt um liðverki
Vandamál í liðum skapast með áreynslu á liðina sem með tímanum
geta skemmt liði og/eða brjósk og valdið óþægindum og sársauka.
Hýalúrónsýra er meginefni í liðvökvanum sem umlykur beinin og
brjóskið og höggverndar beinin í liðnum.
Hýalúrónsýran virkar sem smurning og höggdeyfir á liðina og bætir
liðleikan.
Þegar við eldumst framleiðir líkaminn minna magn af Hýalúrónsýru
sem leiðir til þess að magn liðvökvans fer minnkandi og er í kjölfarið
ekki eins áhrifaríkur í að hlífa liðum við minniháttar höggum og
áreynslu sem leiðir til þess að flísast getur úr beinunum.
Fæst í apótekum
Kynntu þér málið á regenovex.is
og fáðu sent frítt sýnishorn
Einstök samsetning Regenovex
unað ekki sársauka
FIMLEIKAR Norðurlandamótið fór
fram í Finnlandi um helgina og
þar stóð íslenska kvennaliðið sig
með miklum sóma.
Stelpurnar nældu í silfur í liða-
keppninni en þetta var í fyrsta
sinn frá árinu 2004 sem Ísland
er með lið á verðlaunapalli í full-
orðinskeppni. Tvær úr liðinu
frá 2004 eru í íslenska liðinu í
dag. Það eru þær Thelma Rut
Hermannsdóttir og Dóra Sigur-
björg Guðmundsdóttir.
Gerplustelpan Tinna Óðinsdótt-
ir gerði sér síðan lítið fyrir og
fékk gull á jafnvægisslá.
Dóra Sigurbjörg, einnig úr
Gerplu, fékk silfur í gólfæfingum
og Dominiqua Belanyi úr Gróttu
nældi í brons á tvíslánni. - hbg
NM í fimleikum:
Stelpurnar
slógu í gegn
FLOTTUR ÁRANGUR Thelma Rut Her-
mannsdóttir er í íslenska liðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÚDÓ Bjarni Skúlason kom, sá og
sigraði á Íslandsmótinu í júdó um
helgina.
Bjarni, sem keppir í -90 kg
flokki, gerði sér lítið fyrir og
vann opna flokkinn þar sem hann
mætti talsvert þyngri mönnum.
Hann lagði fremsta júdókappa
landsins, Þormóð Árna Jónsson,
meðal annars á leið sinni í úrslit-
in. Þormóður er 125 kg en mað-
urinn sem Bjarni lagði í úrslitun-
um, Björn Sigurðarson, er rúm
130 kg.
Þormóður Árni mætti síðan
Birni í úrslitum í +100 kg flokki
og hafði þar sigur. Hinn fertugi
Björn náði afar eftirtektarverð-
um árangri engu að síður en hann
lagði Þormóð í glímu fyrir nokkr-
um misserum.
Í kvennaflokki stal Anna Vík-
ingsdóttir senunni en hún sigraði
tvöfalt. Vann bæði í -78 kg flokki
sem og í opna flokknum. - hbg
Íslandsmótið í júdó:
Bjarni vann
opna flokkinn
ÞORMÓÐUR ÁRNI Varð að játa sig sigr-
aðan í opna flokknum um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Bikarúrslitahelgin í
Þýskalandi fór fram um helgina.
Á laugardag var spilað í undanúr-
slitum og úrslitaleikurinn fór síðan
fram í gær.
Það voru heimamenn í Hamburg
sem tryggðu sér bikarmeistaratit-
ilinn eftir sigur á Rhein-Neckar
Löwen, 34-33, eftir framlengingu.
Ólafur Stefánsson var langbesti
maður Löwen í leiknum, skoraði
átta mörk, þar af fimm úr vítum,
og átti þess utan hverja snilldar-
stoðsendinguna á fætur annarri.
Snorri Steinn Guðjónsson var
einnig góður í liði Löwen og skoraði
tvö mörk á milli þess sem hann
mataði félaga sína á sendingum.
TuS N-Lübbecke nældi sér síðan
í brons með 29-26 sigri á Gum-
mersbach. Þórir Ólafsson komst
ekki á blað hjá TuS N-Lübbecke
í leiknum en Róbert Gunnarsson
skoraði tvö mörk fyrir Gummers-
bach.
Löwen vann Gummersbach
örugglega í undanúrslitaleiknum,
31-21, á meðan Hamburg skellti
TuS N-Lübbecke, 37-32, í leik þar
sem TuS N-Lübbecke var aldrei
langt undan en gaf eftir á loka-
sprettinum. - hbg
Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn fengu silfur:
Hamburg bikarmeistari
GÓÐUR Snorri Steinn spilaði mjög vel í gær og sést hér skora eitt af tveimur mörkum
sínum í leiknum. NORDIC PHOTOS/BONGARTS