Fréttablaðið - 13.05.2010, Side 38
13. maí 2010 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 13. maí 2010
➜ Tónleikar
16.00 Reykjalundarkórinn heldur sína
árlegu vortónleika í Fella- og Hólakirkju
við Hólaberg 88. Efnisskráin verður
fjölbreytt, létt og skemmtileg.
17.00 Rúnar Óskars-
son klarínettuleikari
heldur tónleika í Hafn-
arborg við Strandgötu í
Hafnarfirði. Á efniskránni
verður nýleg íslensk
tónlist og klassísk verk.
Enginn aðgangseyrir.
20.00 Söng- og leikkonan Jana
María Guðmundsdóttir og Valmar
Valjaots flytja tónlistardagskrá tileinkaða
Ellý Vilhjálms í Samkomuhúsinu við
Hafnarstræti á Akureyri.
21.00 Hljómsveitin The Esoteric
Gender heldur tónleika á Kaffibarnum
við Bergstaðastræti.
22.00 Hipp Hopp vs. Rokk tónleikar
á Sódóma Reykjavík við Tryggvagötu.
Fram koma Ástþór Óðinn, Stjörnuryk,
Orri Err, Nögl, Narfur og No Matches.
Allur ágóði rennur til ABC Barnahjálp.
➜ Opnanir
17.00 Katrín Elvarsdóttir opnar sýn-
ingu á nýjum verkum í ljómyndaröðinni
Equivocal í Gallerí við Baldursgötu 12.
➜ Pub Quiz
20.00 Fótbolta Pub Quiz fer fram á
Enska barnum við Austurstræti. Vegleg
verðlaun í boði og enginn aðgangseyrir.
Nánari upplýsingar á www.sammarinn.
com.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
HVAR
ÞRENGIR
AÐ?
DAGSKRÁ:
Málefnaþingið verður haldið föstudaginn14. maí kl. 14 - 17
í Háskóla Íslands, Háskólatorgi, stofu 105.
Fundarstjóri Gísli Pálsson prófessor og varamaður í stjórn Rauða kross Íslands.
EKKERT ÞÁTTTÖKUGJALD - ALLIR VELKOMNIR!
Kl. 14:00 Setning.
Ungt fólk í atvinnuleit.
Niðurstöður skýrslunnar Hvar þrengir að?
Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands.
Álit á niðurstöðum skýrslunnar Hvar þrengir að?
Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og
félagsþjónustusviðs Reykjanesbæjar.
Lára Björnsdóttir, formaður Stýrihóps velferðarvaktarinnar.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Kl. 15:10 Kaffihlé.
Fátækt á Íslandi.
Guðný Björk Eydal, félagsráðgjafi og prófessor við Háskóla Íslands.
Rauði krossinn og efnahagsþrengingar í Evrópu.
Georg Habsburg, formaður Rauða krossins í Ungverjalandi.
Stefna Rauða kross Íslands.
Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða kross Íslands.
Kl. 17:00 Fundarlok.
MÁLEFNAÞING UM NIÐURSTÖÐUR SKÝRSLU RAUÐA KROSSINS HVAR ÞRENGIR AÐ?”“
Skráning á skraning@redcross.is
Nánari upplýsingar á raudikrossinn.is
Hvaða hópar eru berskjaldaðir í íslensku samfélagi?
Fröken
Reykjavík
Sigga Thorlacius syngur, Þórdís Nadía og Hlín Agnars
segja okkur frá því fyndnasta í tilverunni. Halldóra
Geirharðs, Gerður Kristný, Guðlaug Elísabet og fl eiri
stíga á stokk með örstuttar eldmessur.
Leynigestur, léttar veitingar o.fl .
Eigum góða stund saman í hópi frábærra kvenna!
Kvennapartý í dag kl. 17
að Grandagarði 8
Allar konur, vinkonur, mæður, dætur,
frænkur og systur velkomnar!
Styrmir Gunnarsson er
kominn í hóp afkastamestu
rithöfunda eftir að hann
komst á eftirlaunaaldur
og lét af störfum ritstjóra
Morgunblaðsins. Hann
hefur nú sent frá sér tvær
bækur á hálfu ári. „Hruna-
dans og horfið fé“ heit-
ir sú seinni og er útlegg-
ing Styrmis á þeim atriðum
sem hann telur að skipti
mestu í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis. Hann
las skýrsluna á einni viku
og skrifaði bókina á ann-
arri. Hún kom í búðir í gær,
útgefin af Bjarti.
„Það sem kom mér mest á óvart
þegar ég las þessa skýrslu var
hvernig bankarnir hafa stundað
viðskipti með hlutabréf í sjálf-
um sér. Það kom mér gersam-
lega í opna skjöldu hvað þetta
var víðtækt. Ég hafði gert mér
grein fyrir að það væri reynt með
ýmsum ráðum að halda uppi verði
á hlutabréfum í fyrirtækjum sem
voru skráð á markað en ekki að
það væri unnið að því með svona
skipulögðum hætti. Mér finnst
þetta eiginlega mestu tíðindin í
skýrslunni.“
Verðmyndunin var fölsk
Niðurstaða þín er að hér hafi
aldrei verið til alvöru hlutabréfa-
markaður.
„Í ljósi þess að verðmyndun
á þeim hlutabréfamarkaði sem
hér var starfræktur hefur verið
algerlega fölsk þá er ekki hægt
að komast að annarri niðurstöðu
en þeirri að hér hafi ekki verið
neinn alvöru markaður. Verð-
myndunin var fölsk, bankarn-
ir voru ekki bara að hafa áhrif
á verð hlutabréfa í sjálfum sér
og hver í öðrum. Þeir sem voru
stærstu þátttakendur í viðskipta-
lífinu hafa unnið að því með ein-
hverjum svipuðum aðferðum og
bankarnir notuðu með eigin bréf
og kannski að einhverju leyti með
aðstoð bankanna.“
Athugasemdir án aðgerða
Hvers vegna fékk gervihluta-
bréfamarkaður að þrífast hér
árum saman?
„Þetta er náttúrulega hin stóra
spurning sem við hljótum sem
þjóð og samfélag að spyrja okkur
að. Það er mjög athyglisvert að
lesa lýsingu skýrslunnar á starf-
semi Fjármálaeftirlitsins. Þetta
stjórnsýsluapparat sinnti með
formlegum hætti því sem því bar
að sinna, gerði athugasemdir og
skrifaði skýrslur um hitt og þetta
en fylgdi ekki sínum niðurstöðum
eftir af nægilega mikilli festu og
hörku. Hvers vegna gerði Fjár-
málaeftirlitið það ekki? Það er
hin stóra spurning. Var það vegna
þess að það hefur ekki nægileg-
an pólitískan bakstuðning til að
fylgja þessu fast eftir? Eða bara
fámennið, kunningjasamfélag-
ið og tengsl á milli manna? Mér
finnst erfitt að finna svör við
þessum spurningum og verð að
viðurkenna að ég á engin skýr
svör við þeim. Ég held að þetta
sé partur af skýringunni. Þarna
er veikleiki í okkar samfélagi
sem er smátt og smátt að koma
fram.“
Annað atriði sem Styrmir ræðir
hvað mest um í bókinni er umfjöll-
un rannsóknarnefndarinnar um
innistæðutryggingar, tilskipun
ESB þar að lútandi og lögleiðingu
tilskipunarinnar hér á landi. Hann
segir að þarna sé loksins búið að
vinna vandaða og ítarlega lög-
fræðilega úttekt á því máli.
Óskiljanlegt
„Það er gersamlega óskiljanlegt
hvernig á því stendur að íslenska
stjórnkerfið hafi ekki látið taka
saman svona ítarlega lögfræði-
lega greinargerð eins og þarna
birtist um þessa tilskipun og þýð-
ingu hennar á íslenska stjórnkerf-
ið snemma á árinu 2008 og jafnvel
fyrr,“ segir hann. Nefndin taki af
öll tvímæli um hið stóra deilumál
í íslensku samfélagi síðustu miss-
eri, Icesave-málið: „Við Íslending-
ar sem þjóð berum ekki ábyrgð á
þessum skuldbindingum. Og það er
Verðmyndunin var ö
hér var aldrei alvöru
STYRMIR GUNNARSSON er sestur í helgan
stein sem ritstjóri Morgunblaðsins en hefur
skrifað tvær bækur á hálfu ári, auk þess að
ritstýra vefriti Evrópuandstæðinga.