Fréttablaðið - 18.05.2010, Page 12
12 18. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
fyrir “efi
n” í lífin
u
Hvað ef...
Hver veit?
Við vitum aldrei hvað dregur á daga
OKKAR. Því er gott að vita að það séu
traustar undirstöður til staðar þegar við
þurfum á þeim að halda.
o
þ
Fréttir
frá
blaðinu!
Við
tökum
ekki.
RÁÐHÚSIÐ Í REYKJAVÍK 21 listi býður
fram í sveitarstjórnarkosningunum í
Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri í lok
mánaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Rétt tæplega þrjú þús-
und manns eru á þeim 185 listum
sem bjóða fram í 76 sveitarstjórn-
um í kosningunum í lok mánaðar.
Þetta jafngildir 1,2 prósentum af
öllum kjörgengu fólki í landinu,
að því er fram kemur á kosninga-
vef dóms- og mannréttindaráðu-
neytis.
Flestir eru listarnir í Reykja-
vík, eða átta. Þá eru sjö listar í
boði í Kópavogi og sex á Akur-
eyri.
Á vef ráðuneytisins kemur
fram að óbundnar kosningar
verða í átján sveitarfélögum. Þar
eru allir kjósendur í viðkomandi
sveitarfélagi í kjöri. - jab
Nærri þrjú þúsund fara fram:
Flestir listarnir
eru í Reykjavík
BRUNI Betur fór en á horfðist þegar
eldur kom upp á salerni í risi í aust-
urhluta Austurbæjarskóla í hádeg-
inu í gær. Greiðlega gekk að rýma
skólann og engin slys urðu. Eldur-
inn var slökktur áður en hann náði
að breiða úr sér. Reykræsta þurfti
hluta skólans í kjölfarið.
Viðvörunarbjöllur fóru í gang
og brugðust starfsmenn og kenn-
arar skjótt við og rýmdu skólann.
Nemendum var mörgum hverjum
brugðið. Eldsupptök eru ókunn.
Eldur kom upp í risi Austurbæjarskóla:
Nemendur skelkaðir
en sluppu ómeiddir
LOGANDI HRÆDD Þótt engum nemenda Austurbæjarskóla hafi orðið meint af eldin-
um var mörgum þeirra brugðið eins og þessari stúlku á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMSKIPTAÞÝÐA Dmitrí Medvedev,
forseti Rússlands og Viktor Janúkovitsj
forseti Úkraínu í Kænugarði. Forsetarn-
ir vinna að þíðu í samskiptum ríkjanna
og auknu samstarfi.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Rannsókn sérstaks
saksóknara á viðskiptum Exeter
Holdings ehf. með stofnfjárbréf
í Byr er langt á veg komin þó er
óljóst hvenær og hvort ákærur
verði gefnar út. Þetta staðfestir
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari.
Byr lánaði Exeter Holdings 1,4
milljarða króna í tveimur hlut-
um í október og desember 2008.
Féð nýtti félagið til þess að kaupa
1,8 prósenta stofnfjárhlut í Byr á
yfirverði. Seljendur voru eigend-
ur og stjórnendur Byrs. Félag-
ið var í meirihlutaeigu Ágústs
Sindra Karlssonar lögmanns.
Til rannsóknar er grunur
um brot á auðgunarbrotakafla
almennra hegningarlaga í tengsl-
um við umrædda sölu á stofn-
bréfum og lánagerningum sem
tengjast þeim. Um er að ræða
verulega fjárhagslega hagsmuni
og rannsóknin tengist fjölda
manns.
Sérstakur saksóknari fór
meðal annars tvisvar í húsleit
vegna málsins á síðasta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
sérstökum saksóknara þá er
rannsóknin á lokastigi.
Sérstakur saksóknari rannsakar viðskipti fyrrverandi stjórnenda Byrs með stofnfjárbréf:
Rannsókn á Exeter Holding vel á veg komin
BYR Sérstakur saksóknari rannsakar viðskipti með stofnfjárbréf í Byr.