Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 4
4 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 01.06.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,8281
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,56 130,18
187,40 188,32
157,08 157,96
21,112 21,236
19,752 19,868
16,323 16,419
1,4233 1,4317
189,33 190,45
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ALÞINGI Þingmenn allra flokka fordæmdu í
gær árás Ísraelshers á tyrkneskt skip á leið
með hjálpargögn til Gasa í fyrradag. Að
minnsta kosti tíu manns voru drepnir og um
sextíu eru taldir særðir eftir árásina. Utan-
dagskrárumræða fór fram um málið á þingi
í gær.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins standa
ekki að ályktun sem aðrir flokkar sam-
þykktu í utanríkismálanefnd vegna þessa í
gær. Þar er utanríkisráðherra falið að meta
hvaða úrræðum Íslendingar beiti gagnvart
Ísrael. Slit á stjórnmálasambandi komi til
greina.
Eftir nefndarfundinn ræddu þingmenn
árásina í utandagskrárumræðum að frum-
kvæði Ögmundar Jónassonar, þingmanns
VG. Ögmundur sagði að ríkisstjórninni væri
styrkur að ályktun meirihluta utanríkis-
málanefndar.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
sagði ekki hægt að finna nægilega sterk
orð til að lýsa verknaði Ísraelshers. Hann
fagnaði ályktuninni og skjótum viðbrögðum
utanríkismálanefndar. Ríkisstjórn Íslands
legði mikla áherslu á að atburðurinn yrði
notaður til að afla alþjóðlegrar samstöðu
um að aflétta þeirri herkví sem fimmtán
hundruð þúsund íbúum Gasa hefur verið
haldið í síðustu þrjú ár. Rétt sé að skoða
bæði viðskiptaþvinganir og slit á stjórn-
málasambandi gagnvart Ísrael. „Mótmæli
af þessu tagi, jafnvel hótun um slit á stjórn-
málasambandi, skipta máli,“ sagði Össur.
„Hvar munu Ísraelsmenn bera niður næst
ef þeir telja öryggi sínu ógnað af hjálpar-
gögnum og friðarsinnum?“ spurði Birgitta
Jónsdóttir, Hreyfingunni.
Einar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki,
sagði að árás Ísraelsmanna á skipalestina
hefði verið forkastanleg. Enn og aftur hefðu
Ísraelsmenn skaðað eigin málstað. Sjálf-
stæðismenn vilji þó ekki eiga aðild að álykt-
un utanríkismálanefndar því að í henni
Slit á stjórnmálasambandi
við Ísrael koma til greina
Þingmenn allra flokka á þingi fordæma árás Ísraelshers á skip með hjálpargögn til Gasa. Sjálfstæðismenn
eiga þó ekki aðild að ályktun annarra flokka þar sem segir að slit á stjórnmálasambandi komi til álita.
Meirihluti utanríkismálanefndar Alþingis, þ.e. fulltrú-
ar allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins, samþykkti
eftirfarandi ályktun á fundi í gær:
„Meiri hluti utanríkismálanefndar fordæmir
harðlega árás ísraelska hersins á tyrkneskt skip í
skipalest á alþjóðlegri siglingaleið með hjálpargögn
til Gasa-svæðisins. Árásin er brot á alþjóðalögum.
Það stríðir gegn réttlætiskennd manna, að hindra
með ofbeldi að hjálpargögn berist fólki í neyð. Meiri
hlutinn leggur áherslu á að mannréttindasáttmálar,
samþykktir Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög
verði virt í hvívetna í hertekinni Palestínu, á Gasa og
Vesturbakkanum, að meðtalinni Austur-Jerúsalem.
Meiri hlutinn ályktar að fela utanríkisráðherra, í
samráði við utanríkismálanefnd, að skipuleggja ferð
til Gasa-svæðisins og að Ísland standi að því að
senda hjálpargögn til að aðstoða heimamenn og
sýna þannig andstöðu við herkvína sem Ísraels-
menn hafa sett á Gasa í trássi við alþjóðalög. Það
er ólíðandi að í meira en hálfa öld hafi ályktanir
Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi og sjálfs-
ákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar verið virtar
að vettugi. Slit á stjórnmálasambandi við Ísrael
koma alvarlega til álita og er utanríkisráðherra falið
að meta, í samvinnu við aðrar þjóðir, hvaða úrræð-
um verði beitt sem talin eru áhrifaríkust til að knýja
á um breytingar í samræmi við alþjóðalög, svo sem
alþjóðlegri samstöðu um viðskiptaþvinganir eða
slitum á stjórnmálasambandi við Ísrael, beri önnur
úrræði ekki ávöxt.“
Meirihluti utanríkismálanefndar fordæmir árásina
Helsti forsprakki Hjólafærni á Íslandi
hefur í tvígang verið rangnefnd í
Fréttablaðinu að undanförnu og
kölluð Stefanía. Hið rétta er að hún
heitir Sesselja Traustadóttir. Það má
geta þess að hún kallar Trek-hjólið sitt
Stefaníu til heiðurs Fréttablaðinu.
Illugi Gunnarsson var stjórnarmaður
í peningamarkaðssjóði á vegum Glitn-
is, ekki stjórnarformaður eins og sagt
var í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTT
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
20°
14°
19°
22°
16°
17°
17°
24°
23°
25°
31°
33°
20°
21°
19°
12°Á MORGUN
Hæg austlæg eða
breytileg átt.
FÖSTUDAGUR
Stíf A-átt syðst annars
víða hægviðri.
13
11
11
12
10
10
8
7
5
10
7
7
6
53
7
3
5
4
3
4
4
16
5
14
14
16
12
11
16
14
14
17
16
20
20
1816
HLÝNANDI VEÐUR
Flott veður á land-
inu næstu daga
og hitinn verður á
uppleið fram að
helgi. Á morg-
un verður víða
bjartviðri eða að
minnsta kosti bjart
á köfl um en skýjað
syðra. Föstudagur-
inn verður svipaður
en hitinn mun lík-
lega ná um 20°C
norðaustanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
HESTAMENNSKA Formenn hesta-
mannafélaga hér á landi krefj-
ast þess að Matvælastofnun leiti
þegar allra leiða til að koma í veg
fyrir að hrossasjúkdómar berist
hingað frá útlöndum.
„Fundurinn telur að núverandi
framkvæmd sjúkdómavarna
sé verulega ábótavant,“ segir í
ályktun sem samþykkt var á for-
mannafundi Landssambands
hestamannafélaga.
Á fundinum var samþykkt
ályktun þess efnis að skorað er á
Matvælastofnun að láta rannsaka
með hvaða hætti sjúkdómur sá
sem herjar nú á íslenska hrossa-
stofninn barst til landsins.
LANDSMÓT Landsmóti hefur verið
frestað um ár vegna pestarinnar.
Formannafundur LH:
Sjúkdómavörn-
um ábótavant
NEYTENDUR Neytendasamtökin
segja sláandi að fyrirtæki sem
veita svokölluð sms-lán markaðs-
setji þjónustu sína með jafn ágeng-
um hætti og raun ber vitni, svo
stuttu eftir hrunið.
Greinilegt er að mikil sam-
keppni er milli fyrirtækja sem
veita sms-lánin, segir á vef sam-
takanna. Þau beiti ágengri mark-
aðssetningu gegn veikum hópi
neytenda sem auðvelt sé að freista.
Samtökin sendu viðskiptaráðherra
bréf vegna lánanna fyrir hálfu ári
en hafa ekki fengið svar. - bj
Ekkert svar um sms-lánin:
Átelja ágengar
auglýsingar
felist skuldbinding um að Ísland slíti stjórn-
málasambandi við Ísrael ef ekki kemst á
friður. Þessari túlkun Einars hafnaði Siv
Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, sem
sagði að engin slík skuldbinding fælist í
ályktuninni. Hún sendi hins vegar sterk og
mikilvæg skilaboð frá þjóðþingi Íslendinga.
peturg@frettabladid.is
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Utanríkisráðherra
sagði að engin þjóð sæti jafnmikilli kúgun og
Palestínumenn af hálfu Ísraela. Hann fagnaði
samstöðu þingmanna um að fordæma árás
Ísraelsmanna á skip með hjálpargögn.
MENNING Jón Atli Jónasson, eitt af
helstu leikskáldum þjóðarinnar,
neitar að taka við öllum tilnefn-
ingum til Grímunnar, íslensku
leiklistarverðlaunanna, í ár.
„Ástæðan fyrir þessu er einföld.
Ég neita að viðurkenna núverandi
verndara Grímunnar, forseta vorn,
Ólaf Ragnar Grímsson,“ segir Jón
Atli í yfirlýsingu sem hann hefur
sent frá sér.
Hann hvetur kollega sína til
að slást í lið með sér og neita að
þiggja tilnefningar: „Við getum
ekki þegið verðlaun eða tilnefn-
ingar úr hendi forseta hvers for-
setatíð þarf rannsóknar og endur-
skoðunar við.“
Jón Atli hefur meðal annars
samið leikverkin Brim fyrir Vest-
urport, Draugalest fyrir Leikfélag
Reykjavíkur, Rambó 7 fyrir Þjóð-
leikhúsið og er einn af stofnendum
Mindgroup, evrópskra samtaka
leikhúsfólks um tilraunakennda
leiklist. Á síðasta ári leikstýrði
hann einleik sínum Djúpinu í Borg-
arleikhúsinu, en Baltasar Kormák-
ur hyggst gera kvikmynd upp úr
þessu leikverki Jóns Atla.
Tilnefningar til Grímunnar
verða kynntar á föstudag. - gb
Jón Atli Jónasson ósáttur við að Ólafur Ragnar Grímsson sé verndari Grímunnar:
Hafnar öllum tilnefningum
DJÚPIÐ Ingvar E. Sigurðsson leikari og
Jón Atli Jónasson, höfundur og leikstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR