Fréttablaðið - 02.06.2010, Qupperneq 6
6 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNMÁL Kristinn Þór Jakobsson, oddviti
Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, náði
kjöri sem bæjarfulltrúi í sveitarstjórnar-
kosningunum síðasta laugardag. Krist-
inn Þór var nýr í framboði og hefur því
þátttöku í stjórnmálum á sama tíma og
systir hans, Sigrún Björk Jakobsdótt-
ir, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri,
kveður þau. Sem kunnugt er sagði Sig-
rún Björk af sér sem oddviti Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri og bæjarfulltrúi
í kjölfar kosninganna.
„Við erum fimm systkini og
erum öll alin upp við mikla
pólitíska umræðu,“ sagði
Kristinn Þór og bætti því
við að skoðanir systkinanna
skiptust nokkuð jafnt eftir
hinu pólitíska litrófi.
Kristinn Þór segist hafa
verið virkur í Framsóknarflokknum frá árinu 2004
en var nú í fyrsta skipti á lista.
Aðspurður hvort hann hefði
fengið góð ráð hjá Sigrúnu
Björk svaraði hann „Við
höfum ólíkar nálganir á
málunum og ólíkar skoð-
anir en við leitum mikið í
reynslubanka hvors annars.“
Sigrún Björk sagðist viss
um að Kristinn Þór myndi
standa sig vel í stjórn-
málum en var óviss
um hvað tæki við
hjá henni sjálfri.
Hún ætlaði þó að
taka sér frí og
ganga á fjöll. - mþl
DÓMSMÁL Málshöfðun á hendur
fyrrverandi fyrirsvarsmönnum
Baugs vegna meintra skattalaga-
brota var í einhverjum tilvik-
um andstæð mannréttindasátt-
mála Evrópu. Þetta kemur fram
í úrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur, sem vísaði í gær frá dómi
ákæru á hendur Baugsmönnum.
Telur dómurinn að vísa verði
málinu frá að hluta þar sem skatta-
yfirvöld hafi þegar refsað ákærðu
að hluta með því að leggja álag á
skattgreiðslur þeirra. Dómarinn
hefur þar með skipt um skoðun frá
fyrri úrskurði, þar sem hann hafn-
aði því að vísa bæri málinu frá.
Hann rökstyður niðurstöðu sína
með tilvísun í nýlegan dóm Mann-
réttindadómstóls Evrópu.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota hjá ríkislög-
reglustjóra, segir nauðsynlegt að
fá endanlega niðurstöðu fyrir mál
af þessu tagi, og því verði úrskurð-
inum skotið til Hæstaréttar.
Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu
héraðsdóms gæti það kallað á
umtalsverðar breytingar á skatta-
lögum, segir Helgi Magnús. Þá
verði að meta hvort málum verði
vísað til lögreglu áður en ákvörð-
un um álag á skatta verði tekin,
svo mönnum sé ekki gerð refsing
tvisvar vegna sama máls.
Ákærð í málinu eru Jón Ásgeir
Jóhannesson, fyrrverandi stjórnar-
formaður Baugs, Kristín Jóhannes-
dóttir, framkvæmdastjóri Gaums,
og Tryggvi Jónsson, fyrrverandi
aðstoðarforstjóri Baugs. Þá er fyr-
irtækið Gaumur einnig ákært.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru
ákærðir vegna eigin skattskila.
Þeir eru báðir ákærðir fyrir meint
brot Baugs á skattalögum. Jón
Ásgeir og Kristín eru svo ákærð
sem fyrirsvarsmenn Gaums fyrir
brot félagsins á skattalögum.
Eftir frávísun héraðsdóms í gær
standa aðeins eftir ákærur á þre-
menningana sem fyrirsvarsmenn
Baugs og Gaums. Ákærum á hend-
ur Jóni Ásgeiri og Tryggva vegna
persónulegra skattskila, sem og
Gaumi vegna skattskila fyrirtæk-
isins, var vísað frá.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, segir að verjendur hafi
túlkað niðurstöðu mannréttinda-
dómstólsins öðruvísi en dómarinn
kjósi að gera.
Verjendur vilja þannig meina
að lög verndi menn fyrir tvöfaldri
málsmeðferð vegna eins og sama
málsins. Dómarinn telur hins
vegar að ekki megi sækja menn
til saka tvisvar vegna sama máls-
ins.
Það þýðir að þó fyrirsvarsmenn
Baugs og Gaums hafi verið kall-
aðir fyrir við meðferð skattamála
félaganna hafi þeir ekki verið sótt-
ir sjálfir til saka, og ekki þolað
viðurlög vegna þeirra mála sjálfir.
Því er ákærum vegna þeirra mála
ekki vísað frá.
Búist er við að Hæstiréttur fjalli
um málið í júní. Málsmeðferð í því
sem eftir stendur eftir niðurstöðu
Hæstaréttar fer þó varla fyrir
héraðsdóm fyrr en í haust.
brjann@frettabladid.is
Jón Ásgeir Jóhannesson
X Ákærður fyrir brot á skattalögum vegna eigin skatta.
V Ákærður vegna brota Baugs á skattalögum.
V Ákærður vegna brota Baugs á skattalögum.
Ákærur vegna brota í starfi standa
Kristín Jóhannesdóttir
V Ákærð vegna brota Gaums á skattalögum.
Tryggvi Jónsson
X Ákærður fyrir brot á skattalögum vegna eigin skatta.
V Ákærður vegna brota Baugs og Gaums á skattalögum.
Gaumur
X Félagið ákært fyrir brot á skatta-
lögum.
X Félagið ákært fyrir brot á skatta-
lögum. Fallið var frá ákæru eftir
að félagið varð gjaldþrota.
X Vísað frá
V Stendur eftir
Gæti kallað á breyt-
ingar á skattalögum
Héraðsdómur vísaði í gær frá ákæru vegna meintra skattsvika Baugsmanna.
Ákæra á hendur þeim sem fyrirsvarsmanna Baugs og Gaums stendur óhögguð.
Dómarinn skipti um skoðun vegna nýlegs dóms Mannréttindadómstóls Evrópu.
Geggjuð tilboð á
veiðivörum í júní
Daiwa kaststangir afsl
Daiwa einhendur afsl
Daiwa rennslisstangir afsl
Daiwa Tvíhendur afsl
Daiwa Spinnhjól afsl
Daiwa fluguhjól afsl
Daiwa veiðitöskur afsl
Frábær tilboð á Guideline veiðivörum
50%
30%
30%
30%
30%
50%
50%
HANNAÐ AF FAGFÓLKI - Á VERÐI FYRIR ÞIG
DÖKKT HÁR
Sérhönnuð hárvörulína fyrir
Lengir tímann sem liturinn endist í hárinu
Á Ísland að slíta stjórnmála-
sambandi við Ísrael?
Já 76,8%
Nei 23,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er krónan komin yfir það
versta?
Segðu skoðun þína á visir.is
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra sækir nú leið-
togafund Eystrasaltsráðsins sem
hófst í gær og lýkur í kvöld. Fund-
urinn er haldinn í Vilníus í Litháen
en til umræðu er styrking svæðis-
bundins samstarfs, meðal annars á
sviði efnahags- og orkumála. Einn-
ig verður rætt um baráttu ráðsins
gegn skipulagðri glæpastarfsemi
og mansali.
Sæti í ráðinu eiga Norðurlöndin,
Eystrasaltslöndin þrjú, Rússland,
Pólland og Þýskaland auk fram-
kvæmdastjórnar ESB. - mþl
Jóhanna á leiðtogafundi:
Forsætisráð-
herra í Litháen
HESTAMENNSKA Mótshaldarar Lands-
móts hestamanna á Vindheimamel-
um, sem nú hefur verið frestað um
ár, þurfa að endurgreiða um 40
milljónir króna óski fólk eftir því.
Búið var að selja hátt í 4.000 miða
í forsölu, sem þarf að endurgreiða.
Þá er um að ræða endurgreiðsl-
ur á stúkum og hjólhýsastæðum
sem keypt hafa verið vegna lands-
mótsins. Þetta segir Jóna Fanney
Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri
Landsmóts hestamanna ehf.
„Við biðjum fólk að senda okkur
tölvupóst til að fá endurgreiðslu. Við
munum næstu daga ganga skipu-
lega til verks við að endurgreiða,
en bendum á að þar sem viðskiptin
fóru að mestu leyti fram sem kredit-
kortaviðskipti í gegnum netmiða-
sölukerfi okkar, getur liðið einhver
tími frá því að Landsmót kreditfær-
ir og þar til eiginleg endurgreiðsla
berst inn á reikning viðskiptavinar,“
segir hún. „Við biðjum viðskiptavini
Landsmóts að hafa þetta í huga og
búa sig undir að greiðslur í gegnum
kreditkortafyrirtæki berist ekki
strax og gætu jafnvel borist í fleiri
en einni greiðslu.“ - jss
Mótshaldarar Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum:
Munu endurgreiða 40 milljónir
LEIÐBEININGAR Leiðbeiningar hafa verið
sendar út er varða endurgreiðslur vegna
Landsmóts.
Sigrún Björk Jakobsdóttir yfirgefur stjórnmálin en bróðir hennar hefur þátttöku:
Systkini skipta um hlutverk
SIGRÚN BJÖRK JAKOBSDÓTTIRKRISTINN ÞÓR JAKOBSSON
KJÖRKASSINN