Fréttablaðið - 02.06.2010, Síða 8
8 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
1. Hvaða fyrrverandi borgar-
stjóri vinnur nú að ritun ævi-
sögu sinnar?
2. Hvað er Einar Vilhjálmsson
spjótkastari gamall?
3. Hver er nýr formaður sam-
takanna SAMFOKS?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
Slow Food
Slow Food samtökin voru stofnuð
á Ítalíu árið 1989 og hafa gegnt
stóru hlutverki í varðveislu, endur-
vakningu og nýtingu staðbund-
inna matvæla um heim allan.
Hugmyndafræði samtakanna er
að maturinn sé góður, hreinn og
sanngjarn – hvaða verðmæti geta
skapast á Íslandi við að fylgja
þessari stefnu? Varpað verður
ljósi á leiðir innan Evrópusam-
starfsins og Slow Food til að
viðurkenna matvæli út frá upp-
runa, gæðum og hefðbundnum
vinnsluaðferðum.
Slow Food Reykjavík
Eygló Björk Ólafsdóttir:
Verkefni Slow Food til verndar
og kynningar á upprunalegum,
staðbundnum matvælum.
Matís
Þóra Valsdóttir og Guðjón Þorkelsson:
Sérstaða íslenskra matvæla.
Uppruni, gæði, afurðir.
Eddu hótelin
Friðrik V. Karlsson:
Gamla skyrið í nýju eldhúsi.
Fiskverkun E.G. Flateyri
Guðrún Pálsdóttir:
Vestfi rskur harðfi skur
- saga og sérstaða.
Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið, í samvinnu
við Slow Food samtökin og Matís, efna til
málþings um gildi staðbundinna matvæla
fyrir menningu, ferðaþjónustu og samfélag.
Skráning hjá Kristin@chamber.is
Í dag kl. 15.00-17.00
Hús verslunarinnar,
Kringlan 7, 14. hæð
FÓTBOLTI Fótboltakrakkarnir á
Íslandi verða í sviðsljósinu á Stöð
2 Sport næstu tvö sumur eftir að
Stöð 2 og KSÍ gerðu með sér sam-
komulag um samstarf þar sem
markmiðið er að stórauka stuðn-
ing og umfjöllun um fótboltaiðkun
æskunnar.
Samningurinn var undirritaður í
gær og í honum felst meðal annars
að Stöð 2 Sport skuldbindur sig til
að minnsta kosti 35 beinna útsend-
inga frá leikjum í Pepsi-deild karla,
fimm leikja í Visa-bikarkeppni
karla, útsendinga frá útileikjum
A-landsliðs karla og vináttulands-
leikja þess á Íslandi.
Stöð 2 Sport hefur gert vel í að
sýna frá íslenska fótboltanum
undanfarin ár en nú ætla menn
þar á bæ að gera enn betur og þá
sérstaklega að fjalla mun meira
um fótboltaiðkun yngri flokka hér
á landi. Stöð 2 mun fjalla ítarlegar
um sumarmótin vinsælu, sem stöð-
in hefur þegar gert góð skil í sér-
stökum þáttum undanfarin sumur.
Að auki verða framleiddir og sýndir
á Stöð 2 Sport vandaðir þættir um
fótboltaiðkun ungs fólks og munu
sportstöðvar Stöðvar 2 einnig taka
að sér framleiðslu og sýningar á
kennslumyndböndum í boltatækni.
„Aukin þáttagerð tengd iðkun
ungmenna er liður í áherslubreyt-
ingum á Sportstöðvunum þar sem
meiri áhersla er lögð á fjölskyldu-
efni samhliða útsendingum frá
stærstu íþróttaviðburðum hér á
landi og um heim allan. Okkur
rennur líka blóðið til skyldunnar
því að niðurstöður nýlegrar könn-
unar sýna fram á að Sportstöðv-
arnar höfða meira til fjölskyldna
en við gerðum okkur grein fyrir.
Sama könnun leiddi í ljós að það er
vöntun á því efni sem við erum að
leggja meiri áherslu á. Það má því
segja að leiðir okkar og KSÍ liggi
saman að því markmiði að bæta úr
þessu,“ sagði Ari Edwald, forstjóri
365 miðla, í fréttatilkynningu. - óój
Krakkarnir í sviðsljós-
inu næstu tvö sumur
Stöð 2 Sport og KSÍ hafa gert samning sem felur í sér stóraukna umfjöllun um
fótboltaiðkun yngri flokkanna. Liður í áherslubreytingum á Sportstöðvunum.
SAMINGURINNN Í HÖFN Geir Þorsteinssson, formaður KSÍ, og Ari Edwald, forstjóri
365 miðla. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MENNTUN Þrettán nemendur í 8. bekk
í Egilsstaðaskóla vinna þessa dag-
ana að byggingu torfbæjar. Verk-
efnið er eitt margra sem nemendum
býðst að taka þátt í á vordögum skól-
ans. Nemendurnir sjá að mestu leyti
sjálfir um verkið og þurfa meðal
annars að reka niður staura, hlaða
bæinn og mála hann. Framkvæmd-
irnar fara fram á lóð Safnahússins á
Egilsstöðum.
„Ég held að flestum finnist þetta
mjög gaman,“ sagði Karen Björns-
dóttir, sem er nemandi í hópnum og
bætti því við að krakkarnir vonuð-
ust eftir því að torfbærinn stæði
óhreyfður næstu árin.
Nemendurnir fóru í vettvangsferð
að Galtastöðum fyrir helgi og nota
torfbæinn þar sem fyrirmynd.
Nemendurnir hófu störf á mánu-
daginn og stefndu að því að klára
verkið í dag. Þeim var skipt í tvo
hópa, annar sér um að reisa bæinn
og hinn um kynningu á verkefninu.
Verkefnið er styrkt af Barnamenn-
ingarstjóði og er samstarfsverkefni
Egilsstaðaskóla, Minjasafns Austur-
lands, Þjóðminjasafnsins og Fljóts-
dalshéráðs. - mþl
Krakkarnir í Egilsstaðaskóla sinna fjölbreyttum verkefnum á vordögum skólans:
Þrettán skólakrakkar reisa torfbæ
UNNIÐ HÖRÐUM HÖNDUM Nemendurnir njóta sumarblíðunnar við störfin.
DÓMSMÁL Þætti Ara Gísla Braga-
sonar bóksala í ákæru vegna stór-
fellds þjófnaðar bóka úr dánarbúi
Böðvars heitins Kvaran var vísað
frá dómi í gær. Böðvar Yngvi Jak-
obsson játaði hins vegar sök í mál-
inu fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur.
Málið snýst um hundruð verð-
mætra bóka og korta sem stolið
var úr dánarbúinu seinni hluta árs-
ins 2006 og fyrri hluta ársins 2007.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur og sonur Böðv-
ars, kærði málið til lögreglunnar
sumarið 2007.
Ari Gísli var sakaður um að hafa
tekið við fornbókum til sölu. Hann
er nú laus allra mála og verjanda
hans hafa verið dæmd málsvarn-
arlaun úr ríkissjóði.
Aðstandendur Böðvars Kvarans
krefjast um 33 milljóna í skaðabæt-
ur fyrir horfnu bækurnar, sem eru
samkvæmt ákæru um 300 talsins.
Þar á meðal var útgáfa af Snorra-
Eddu og Völuspá frá 17. öld og Kon-
ungasögur Snorra Sturlusonar frá
árinu 1633. Verðmæti bókanna
samtals er áætlað um 40 milljón-
ir króna.
„Þetta er bara í ferli,“ sagði
Böðvar Yngvi þegar Fréttablaðið
náði tali af honum vegna málsins í
gær og bætti við að hann vildi ekki
tjá sig um það við fjölmiðla.“ - jss
Í DÓMSAL Ari Gísli Bragason og Böðvar Yngvi Jakobsson ásamt verjanda í dómsal.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fyrirtaka í máli vegna bókaþjófnaðar úr dánarbúi:
Ari Gísli fornbókasali
er nú laus allra mála
VEISTU SVARIÐ?