Fréttablaðið - 02.06.2010, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010
HEILBRIGÐISMÁL Vandamál vegna
öskufjúks eru líkleg til að verða
viðvarandi allt þetta ár og jafn-
vel árum saman. Svifryksmengun
vegna öskufjúks var yfir heilsu-
verndarmörkum á höfuðborgar-
svæðinu á mánudag. Öskufjúk
hefur gert fólki lífið leitt víða á
Suðurlandi undanfarna daga. Lítið
hefur rignt og því hafa gosefnin
fokið auðveldlega í stífum vindi.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengu
einnig sinn skammt eins og sást
vel á skítugum bílum í gærmorg-
un og mistri sem lá yfir borginni.
Víða var þeirri spurningu velt upp
hversu lengi öskufjúk muni valda
fólki óþægindum.
Björn Oddsson, jarðeðlisfræð-
ingur á Jarðvísindastofnun, segir
ljóst að öskufjúk muni verða við-
varandi vandamál í sumar. „Hins
vegar ræðst það af veðri næstu
misserin hversu lengi við getum átt
von á öskufjúki í verulegum mæli.
Ef sumarið verður þurrt og vinda-
samt og snjór fellur síðan á ösk-
una verður hún til staðar á næsta
ári. Verði blautt aukast líkurnar á
því að þetta fína efni hverfi. Menn
þurfa hins vegar að búa sig undir
þann möguleika að þetta verði við-
varandi næstu árin og því meiri
líkur á vandamálum sem nær dreg-
ur eldstöðinni.“
Anna Birna Jensdóttir, fram-
kvæmda- og hjúkrunarstjóri hjúkr-
unarheimilisins Sóltúns, segir að
eftir að það byrjaði að gjósa í Eyja-
fjallajökli hafi einkavarnanefnd
Sóltúns fundað, en slíkar nefnd-
ir starfa samkvæmt tilmælum frá
Almannavörnum. Þá voru viðbrögð
við öskufjúki undirbúin. „Við erum
með mjög viðkvæmt fólk hérna hjá
okkur og þess vegna fór áætlunin í
gang á mánudag.“ Anna Birna segir
að slökkt hafi verið á loftræstikerfi
Sóltúns og hurðum og gluggum hafi
verið haldið lokuðum í gær. Hún
segir mestu hættuna felast í því
hversu fínt rykið er og því ósýni-
legt. Þess vegna sé allur vari hafð-
ur á.
Frá Umhverfis- og samgöngu-
sviði Reykjavíkurborgar fengust
þær upplýsingar að svifryksmeng-
unin hafi farið yfir heilsuverndar-
mörk í Reykjavík á mánudag. Loft-
gæði hafi hins vegar verið ágæt í
gær, þó að skítugir bílar hafi bent
til annars. Þar var öskufjúki næt-
urinnar um að kenna. Svifryk í
Reykjavík mældist 400 míkró-
grömm á rúmmetra sem er með því
mesta sem mælist. Svifryksmeng-
un í Reykjavík hefur mælst yfir
heilsuverndarmörkum í þrígang
frá því í apríl vegna öskufjúks frá
Eyjafjallajökli. svavar@frettabladid.is
Öskufjúk mun
verða vanda-
mál allt árið
Svifryksmengun hefur farið yfir heilsuverndarmörk í
Reykjavík vegna öskufjúks frá Eyjafjallajökli. Jarðeðlis-
fræðingur telur líklegt að vandamál vegna fjúks verði
viðvarandi næstu ár. Veður ræður þó miklu þar um.
Við erum í skýjunum!
Nokkur þúsund manns þáðu boð um að gera sér glaðan dag með okkur í tilefni
35 ára afmælis Bílabúðar Benna, í blíðskaparveðri síðastliðinn laugardag.
Við erum alveg í skýjunum með þátttökuna.
Þökkum kærlega fyrir samveruna og vonum að allir hafi notið dagsins
jafn vel og við.
Með sumarkveðju,
starfsfólk Bílabúðar Benna
Viltu reynslua
ka Spark í sex
mánuði?
Þú getur unnið
sex mánaða af
not af Chevrole
t Spark með
því að taka þátt
í Chevrolet bíla
leiknum okkar.
Þú kemst í pott
inn með því að
mæta í Chevrol
et salinn á
Tangarhöfða og
reynsluaka Che
vrolet gæðabíl.
Sá heppni verð
ur dreginn út 1
8. júní á Bylgju
nni.
35 ára
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - www.benni.is - benni@benni.is
Chevrolet Spark
L kr. 1.990.000
LS kr. 2.290.000
REYKJAVÍK Í GÆR Fínt öskulag var greinilegt í gærmorgun eftir öskufjúk um nóttina.
Í Reykjavík má búast við lítilsháttar óþægindum í sumar en viðvarandi vanda næst
eldstöðinni lengi enn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STANGVEIÐI Þýski sjóstangveiði-
maðurinn Frank Petzold veiddi
um helgina 130 sentimetra hlýra
sem vó 20 kíló. Þetta mun vera
stærsti hlýri sem veiðst hefur
á sjóstöng við strendur Íslands.
Frank hefur ásamt hópi þýskra
sjóstangveiðimanna verið við
veiðar við Flateyri og Suðureyri
undanfarnar vikur.
„Maímánuður hefur verið með
eindæmum góður fyrir þýsku
sjómennina en þeir hafa raðað
inn stórlúðunum síðastliðnar
vikur,“ sagði Róbert Schmidt,
leiðsögumaður hjá Hvíldarkletti,
sem gerir út sjóstangveiðibáta á
svæðinu. Hann bætti við að auk
hlýrans hefðu bæði 108 og 110
kílóa stórlúður komið á land á
síðustu dögum.
Kunnugir hafa hingað til talið
það nær ógerlegt að veiða hlýra
á sjóstöng en auk þess stóra hafa
19,2 og 15 kílóa hlýrar komið á
land undanfarið.
Búist er við um þúsund ferða-
mönnum til Flateyrar og Suður-
eyrar í sumar sem koma þangað
gagngert til þess að stunda sjó-
stangveiði. - mþl
Einstök tíð hjá veiðimönnum fyrir vestan:
Langstærsti hlýri sem
veiðst hefur á sjóstöng
LAUN ERFIÐISINS Þýskur stangveiði-
maður nýbúinn að landa risahlýra