Fréttablaðið - 02.06.2010, Side 18
18 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
Neyðaraðstoð
Þórir
Guðmundsson
sviðsstjóri alþjóðasviðs
Rauða kross Íslands
Aðstæðum á jarðskjálftasvæð-inu á Haítí verður vart með
orðum lýst og þær eiga bara eftir
að versna. Rigningatímabilið hófst
sem betur fer með seinna móti þetta
árið en nú er farið að rigna fyrir
alvöru. Fólk sem missti heimili sín
í jarðskjálftanum 12. janúar veður
elginn á daginn og sefur í bleytunni
á nóttunni.
Sendifulltrúar Rauða kross
Íslands starfa nú á þrennum víg-
stöðvum í baráttunni við yfirstand-
andi neyð – við umönnun sjúkra,
gerð hreinlætisaðstöðu og dreifingu
hjálpargagna. Alls hafa 20 sendi-
fulltrúar Rauða krossins farið til
starfa á Haítí, flestir í 4-6 vikur í
senn og allt bendir til að fleiri fari
á næstu vikum og mánuðum. Nú eru
þar fjórir íslenskir sendifulltrúar
– þrír hjúkrunarfræðingar og sér-
fræðingur um vatn og frárennslis-
mál.
Hjálparstarfið fer fram við hrika-
legar aðstæður og þarfir þeirra
sem búa við nístandi neyð virðast
stundum yfirgnæfa getuna til að
aðstoða. Þéttbýl og fjölmenn höfuð-
borg fátæks lands er rústir einar. Ef
húsarústunum yrði safnað saman og
þær settar í haug sem væri 33 x 33
metrar að flatarmáli myndi haugur-
inn ná upp í 21 kílómetra hæð. Full-
trúi Sameinuðu þjóðanna segir að
það tæki 1.000 vörubíla 1.000 daga
að flytja þetta allt í burtu.
Milljónir á vergangi
Allt að 300 þúsund manns létu lífið
í skjálftanum fyrir fjórum mán-
uðum. Hundruð þúsunda slösuð-
ust og margir þeirra þurfa enn á
læknisaðstoð að halda. Á þriðju
milljón manna er komin á vergang.
Í yfirfullum flóttamannabúðum
búa konur og börn við ógnvekjandi
öryggisleysi sem lýsir sér meðal
annars í óþolandi ofbeldisverkum,
sem erfitt hefur reynst að stemma
stigu við.
Gífurleg þrengsli eru á þeim
svæðum þar sem eftirlifendur haf-
ast við, bæði í höfuðborginni Port-
au-Prince og í stærri bæjum sem
urðu illa úti. Fjöldi manna lætur
fyrir berast undir plastrenningum
við húsarústir sem eitt sinn voru
heimili þeirra. Víða er ekki hægt
að dreifa tjöldum því það er einfald-
lega ekki pláss fyrir þau.
Við þessar kringumstæður hefur
hjálparstarf Rauða krossins í raun
gengið ótrúlega vel. Ríflega 80 þús-
und fjölskyldur hafa fengið plast-
ábreiður, verkfæri og annað sem
þarf til að koma sér upp bráða-
birgðaskýli. Fjórir spítalar og 41
færanleg sjúkrastöð á vegum Rauða
krossins hafa sinnt 100 þúsund sjúk-
lingum.
Rauði krossinn hefur dreift 230
þúsund teppum, 130 þúsund mosk-
ítónetum, 60 þúsund pökkum með
eldunaráhöldum og 90 þúsund
hreinlætispökkum. Samtals 120
þúsund rúmmetrum af vatni hefur
verið veitt til rúmlega 300 þúsund
manna. Um 185 þúsund plastábreið-
um hefur verið dreift og tæplega sjö
þúsund tjöldum. Allt þetta leggst
við það sem önnur hjálparsamtök
hafa gert, bæði stofnanir Samein-
uðu þjóðanna og frjáls félagasam-
tök, lítil og stór.
Í heild væri hægt að leggja plast-
renningana saman, sem búið er að
dreifa á Haítí, og þá næðu þeir frá
Reykjavík til Moskvu. Hjálparsam-
tök hafa gert áætlanir um að reisa
125.000 traust fellibylja- og jarð-
skjálftaheld skýli fyrir 625.000
manns – tvöfalt fleiri en búa á
Íslandi – á næstu 18 mánuðum. Ef
við viljum einfalda dæmið getum
við hugsað okkur að það þurfi að
byggja einföld hús fyrir hverja ein-
ustu íslenska fjölskyldu – og verk-
inu þurfi að ljúka fyrir apríl á
næsta ári.
Enn mikið óunnið
Framundan eru óþrjótandi verk-
efni við að mæta grunnþörf-
um allra þeirra sem enn búa við
ömurlegar aðstæður og nagandi
óvissu um framtíðina á Haítí.
Fellibyljatímabilið hefst um mitt
sumar og varir fram á haust, ef
að líkum lætur. Ljóst er að fáir
verða komnir í þolanlegt bráða-
birgðahúsnæði fyrir þann tíma.
Stórhætta er á að farsóttir blossi
upp, sérstaklega ef ekki tekst að
koma upp fleiri kömrum í yfir-
fullum flóttamannabúðum, forða
því að skolp og rusl dreifist um
allt með flóðvatninu og útvega
vatn til drykkjar og hreinlætis.
Rauði kross Íslands hefur ein-
sett sér að styðja áfram hjálp-
arstarfið á Haítí næstu mánuði,
á meðan hættuástandið vegna
rigninganna varir. Áhersla okkar
verður á að koma upp hreinlætis-
aðstöðu í flóttamannabúðum – í
þeim tilgangi að minnka sótt-
hættu – og áframhaldandi heil-
brigðisaðstoð, sem gífurleg þörf
er fyrir hvort sem tekst að koma í
veg fyrir farsóttir eða ekki.
Í þessu skyni munu íslenskir
hjálparstarfsmenn áfram fara
til starfa á Haítí næstu vikur og
mánuði. Að auki mun Rauði kross
Íslands leggja sig sérstaklega
fram um að styðja hreinlætis-
starf Alþjóða Rauða krossins í
yfirfullum flóttamannabúðun-
um.
Framundan er tímabil mikilla
þrenginga fyrir fólk sem hefur
mátt þola hrikalegar hamfarir.
Ljóst er að á stundum mun okkur
þykja framlagið frá Íslandi van-
máttugt í ljósi hinna gífurlegu
þarfa sem til staðar eru. En við
gerum það sem við getum til að
lina þjáningar þeirra sem við
náum til og getum verið stolt af
því sem þegar hefur áunnist.
Hugum að Haítí