Fréttablaðið - 02.06.2010, Síða 28

Fréttablaðið - 02.06.2010, Síða 28
 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR4 REYKJANESBÆR Keflavíkurkirkja 1915 er yfirskrift gamaldags guðsþjónustu sem haldin verður í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 6. júní. Gamaldags guðsþjónusta verður haldin í Keflavíkurkirkju klukkan 19.15 næsta sunnudag. Yfirskrift guðsþjónustunnar er Keflavíkur- kirkja 1915 og verður saga kirkj- unnar rifjuð upp auk þess sem gamlir en þekktir sálmar verða sungnir. Prestur er séra Skúli S. Ólafs- son, organisti Arnór Vilbergsson og Jóhann Smári Sævarsson syng- ur einsöng. - eö Gamaldags guðsþjónusta Gamaldags guðsþjónusta verður haldin í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn og gamlir sálmar sungnir. 750 ungmenni fá sumarstörf hjá Reykjanesbæ í sumar. Ungmenn- in hefja störf í þessari viku og þeirri næstu. Um 500 ungmenni sóttu um störf hjá Vinnuskólanum í Reykjanesbæ sem byrjar í næstu viku. Auk þess ákvað bæjarfélagið að bjóða skóla- fólki á aldrinum 17 til 20 ára störf við ýmis verkefni í sumar og sóttu um 200 ungmenni á þeim aldri um vinnu. Allir sem sóttu um fengu vinnu og ef taldir eru með þeir sem voru ráðnir sem flokksstjórar við vinnuskólann og í sumarátak eða afleysingar hjá stofnunum bæj- arins hefja alls um 750 ungmenni störf í þessari viku og þeirri næstu hjá bæjarfélaginu. - eö Sumarstörf fyrir 750 Um 500 ungmenni hefja störf hjá vinnuskólanum í næstu viku. „Við sinnum bæði rannsóknum og fræðslumálum,“ útskýrir dr. Sveinn Kári Valdimarsson, for- stöðumaður Náttúrustofu Reykja- ness. Auk hans eru þar þrír starfs- menn en að jafnaði starfa tíu til fimmtán manns í húsinu við rann- sóknir, bæði Íslendingar og erlend- ir vísindamenn. „Við erum í töluverðu samstarfi við ýmsa aðila en á síðustu fimm árum hafa gistinætur erlendra vísindamanna á vegum stofunn- ar verið um 260 á ári og hér geta verið allt upp undir fimmtán þjóð- erni í einu að vinna. Núna eru hér Hollendingar og Ameríkumenn að rannsaka strandfugla,“ segir Sveinn Kári en undanfarin sex ár hafa fuglarannsóknir verið stór hluti af vinnu stofunnar. Nýlega fékk Náttúrustofan verð- laun fyrir ritgerð um B-vítamín- skort í fuglum sem kom út á síð- asta ári en sú ritgerð var unnin í samvinnu við Háskólann í Stokk- hólmi. „Verðlaunin heita Cozzarelli og eru veitt af The National Acad- emy of Science. Þau eru gríðarleg viðurkenning.“ Sveinn Kári segir verkefni Nátt- úrustofunnar flest unnin að frum- kvæði stofunnar en tengjast einn- ig mastersverkefnum, til dæmis við Háskóla Íslands. Meðal yfirstand- andi verkefna stofunnar er kort- lagning fjörunnar á Reykjanes- skaganum og mastersverkefni við HÍ, Eldfjallagarður á Reykjanes- skaga, þar sem sjálfbærni í ferða- mennsku er meðal rannsóknar- efna. „Það verkefni miðar að því að kynna og sýna það sem ferðamenn eru komnir hingað til að sjá, á sem sjálfbærastan og náttúruvænstan hátt. Við eigum gríðarlegan fjársjóð í náttúrunni og þar leynast sóknar- færi sem verður hægt að byggja á þessari rannsóknarvinnu.“ Friðun hafsvæða og möguleg- ir þjóðgarðar í sjó er annað viða- mikið verkefni sem Náttúrustofan hefur nýlokið. Þar rannsökuðu vís- indamenn stofunnar þá möguleika sem friðun hafsvæða gæti haft á fiskveiðar og fiskveiðistjórnun og verndun líffræðilegs fjölbreyti- leika í sjónum. Niðurstöður rann- sóknarinnar segir Sveinn Kári geta nýst stjórnvöldum, meðal annars til að uppfylla þá alþjóðasamninga sem gerðir hafa verið um líffræði- legan fjölbreytileika og fiskveiði- stjórn. Hann segir hafið lítið hafa verið rannsakað og næg verkefni fram undan. „Það kom í ljós við þessa vinnu hvað vantar mikið af upplýsingum og hvað við vitum alltof lítið um þá fiskistofna sem í kringum okkur eru. Því er mikilvægt að sinna rannsóknum og safna upplýsing- um í gagnagrunna.“ Nánar má kynna sér starfsemi Náttúrustofu Reykjaness á heima- síðunni, nr.is heida@frettabladid.is Rannsóknir á Reykjanesskaga Náttúrustofa Reykjaness er ein af sex náttúrustofum landsins. Umdæmi hennar er allur Reykjanesskaginn og hefur stofan nú starfað í tíu ár að rannsóknum á fuglalífi, lífríki hafsins og náttúrufari Reykjanesskagans. Sýni tekið til greiningar á fuglaflensu. MYND/NÁTTÚRUSTOFA REYKJANESS Gunnar Þór Hallgrímsson, Ellen Magnúsdóttir og Bob Dusek við veiðar á sanderlum við Garðskaga en rannsóknir á fuglum eru viðamikill hluti starfsemi Náttúrustofu Reykjaness. MYND/JEROEN RENEERKENS Ásbrú er samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs sem hefur verið að byggjast upp í Reykjanesbæ á undanförnum þremur árum. Hér er stærsti háskólagarður íslands, metnaðarfullt nám hjá Keili, eitt stærsta frumkvöðlasetur landsins, auk fjölda annarra spennandi verkefna á borð við orkurannsóknarsetur, heilsuþorp og alþjóðlegt gagnaver. Ertu með viðskiptahugmynd? Í frumkvöðlasetrinu Eldey býður Kadeco í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands upp á frábæra aðstöðu fyrir frumkvöðlafyrirtæki. Bæði skrifstofuaðstaða og smiðjurými eru laus. Eldvörp er glæsilegt, nýuppgert skrifstofuhótel byggt á hugmyndafræði norrænna vísindagarða þar sem þekkingarfyrirtæki eru í návist hvort við annað og deila fundarherbergjum og ráðstefnusal. Í boði eru skrifstofur fyrir smáfyrirtæki eða jafnvel einstaklinga í verkefnavinnu jafnt sem stærri skrifstofur. Samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs hefur risið á Ásbrú Í REYKJANESBÆ www.eldvorp.is Til að sækja um aðstöðu í Eldey eða Eldvörpum hafið samband við Kadeco í síma: 425-2100 eða fyrirspurnir@kadeco.is www.asbru.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.