Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 33
H A U S
MARKAÐURINN
Ú T T E K T
7MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2010
Tæpur helmingur fyrirtækja er í skilum með
lán sín við Íslandsbanka og tæp tíu prósent á at-
hugunarlista. Rétt rúm fjörutíu prósent fyrir-
tækja eru í vanskilum. Sjávarútvegsfyrirtæki eru
flest í skilum við bankann en tæp áttatíu prósent
eignarhaldsfélaga. Þetta kom fram í máli Birnu
Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, á morgun-
fundi Samkeppniseftirlitsins um yfirtöku banka á
atvinnufyrirtækjum fyrir rúmri viku síðan.
Birna benti á að inni í eignarhaldsfélögunum
væru oft á tíðum traust félög sem væru ýmist í skil-
um eða í fjárhagslegri endurskipulagningu. Jafn-
framt kom fram í máli hennar að bankinn hefði
ekki tekið mörg fyrirtæki yfir. Þau sem lent hafi í
höndum bankans fari hins vegar sem fyrst í sölu-
ferli sem sé opið og gagnsætt ef því verði komið
við.
Birna kvaðst hins vegar hafa efasemdir um
skráningu fyrirtækja í eigu bankanna á mark-
að við núverandi aðstæður. Hún sagði markaðs-
skráningu vera ábyrgðarhluta og að vinna verði
með fyrirtækin og laga til í rekstri þeirra áður en
að skráningu geti komið. Þá sagði Birna það væn-
legri leið að selja fyrirtækin fyrst fjárfestum,
sem síðan kynnu að innleysa hagnað þegar þau
yrðu skráð síðar á hlutabréfamarkað. - jab/óká
MORGUNFUNDUR Fjárhagsleg endurskipulagning þarf að fara fram áður en hægt verður að skrá fyrirtæki á markað, segir banka-
stjóri Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bíða verður með skráningu
Rúm fjörutíu prósent fyrirtækja eru í vanskilum við Íslandsbanka
Félögum í Kauphöllinni (Nasdaq OMX Iceland) hefur fækkað veru-
lega og varð náttúrulega mesta blóðtakan með falli bankanna
haustið 2008. Núna eru einungis níu fyrirtæki skráð á aðallista
Kauphallarinnar og þrjú eru skráð á First North-markaðinn. Af félög-
um á aðallista eru fjögur færeysk: Føroya Banki, Eik Banki, Atlantic
Airways og Atlantic Petroleum. Íslensku fyrirtækin eru svo Icelandair
Group, Marel, Nýherji, Sláturfélag Suðurlands og Össur.
Það er hins vegar ekki svo að hér á landi sé ekki að finna fyrirtæki
tæk á markað. Allmargir telja raunar að hér sé að finna fjölda
fyrirtækja sem bæði gætu haft af því hag að sækja fjármögnun á
markað og fjárfestar kynnu að hafa áhuga á. Eitt slíkt fyrirtæki hefur
þegar upplýst um fyrirætlan sína um skráningu en það er nýsköp-
unarfyrirtækið Marorka, sem hannar og framleiðir orkusparandi
búnað fyrir skip.
Hér fer á eftir listi yfir fyrirtæki sem kynnu að koma upp í hugann
þegar velt er upp kostum hér innanlands sem erindi kynnu að eiga
í endurreista Kauphöll. Taka ber fram að listinn er ekki tæmandi og
segir ekkert um áhuga aðstandenda þessara fyrirtækja á því að leita
skráningar:
66° Norður - framleiðandi útivistar- og vinnufatnaðar.
Arion Banki - banka- og fjármálaþjónusta á landsvísu.
Brim - útgerðarfélag með starfsemi víða um land.
CCP - hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur að þróun og framleiðslu tölvuleikja.
Eimskip - flutningafyrirtæki með starfsemi heima og erlendis.
Hagar - verslunarfyrirtæki með fjölda verslana (m.a. Bónus og Hagkaup).
Icelandic Group - samstæða fyrirtækja í framleiðslu og sölu sjávarafurða.
Íslandsbanki - sinnir banka- og fjármálaþjónustu á landsvísu.
Jarðboranir - sérhæft fyrirtæki á sviði jarðhitanýtingar.
Landsbankinn - sinnir banka- og fjármálaþjónustu á landsvísu.
MP Banki - banka- og fjármálaþjónustufyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík.
Promens - framleiðslufyrirtæki í plastiðnaði með starfsemi víða um heim.
Fasteignafélagið Reitir - þjónustufyrirtæki sem leigir út atvinnuhúsnæði.
Skeljungur - olíufélag með þjónustu- og verslunarrekstur um land allt.
Vodafone - fjarskipta- og símafyrirtæki með starfsemi um land allt.
Samherji - flutningafyrirtæki með starfsemi heima og erlendis.
Síminn - fjarskipta- og símafyrirtæki með starfsemi um allt land.
Sjóvá - Sjóvá-Almennar líftryggingar, tryggingafélag með starfsemi um land allt.
TM - Tryggingamiðstöðin er tryggingafélag með starfsemi um land allt.
Valitor - þjónustufyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar.
VÍS - Vátryggingafélag Íslands, stærsta tryggingafélag landsins.
Þ E S S I K Y N N U A Ð E I G A E R I N D I Í K A U P H Ö L L I N A
Í KAUPHÖLLINNI Magne Arge, forstjóri Atlantic Airways og Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Kauphallarinnar, við skráningu Atlantic Airways á markað hér á landi undir árslok
2007. MARKAÐURINN/VILHELM
er í fínum rekstri og ágætri stöðu. Hverjum dettur
til dæmis í hug að draga þá ályktun að fyrirtæki á
borð við CCP sé ekki skráningarhæft. Það er bara
eigendanna þar að taka ákvörðun um skráningu.“
AÐHALD KOMI VÍÐAR AÐ EN
FRÁ EFTIRLITSSTOFNUNUM
Forstjóri Kauphallarinnar varar við einhliða sýn
á stöðu mála og óþarfa svartsýni. „Það þarf líka
að horfa á jákvæðu hliðarnar. Innan um erum við
með fyrirtæki í fínum rekstri sem eiga fullt erindi
á markað og væri hið besta mál að skrá. Síðan er
það að sjálfsögðu forsvarsmanna fyrirtækjanna að
leggja í þá vegferð með svolítinn metnað að leiðar-
ljósi, að gera þetta vel, vera til fyrirmyndar, vera
framsækið, fylgja reglum og góðum stjórnarhátt-
um og umgangast markaðinn almennt af virðingu.
Jafnframt tel ég að fjárfestar og eigendur fyrirtækja
hafi lært það af kreppunni að sá háttur sem var á
hjá okkar fyrirtækjum sé engin leið til að byggja á
til framtíðar.“
Fyrsta skrefið í að byggja upp markaðinn segir
Þórður vera að skrá eitt fyrirtæki. Síðan annað og
svo koll af kolli. „Það þarf ekki mikið til að fara af
stað. Ég hef þá staðföstu trú að í sjálfu sér sé sjálf-
sagt fyrir okkur að fara hægt, en að nauðsynlegt
sé að fara af stað. Áfram er verið að byggja upp
og viðhalda þekkingu í bönkunum og fjármálafyr-
irtækjunum. Ekki á að sitja á höndunum. Að sitja
á tækifæri er glatað tækifæri.“
Þórður segist hafa hlustað á marga þá gagnrýni
sem sett hafi verið fram um umgjörð þá sem Kaup-
höllinni sé búin, og einfaldlega ekki alveg sammála
öllum þeim sem sett hafa hana fram. „Þótt settar
séu fram góðar og gildar athugasemdir þá er verið
að gera úrbætur og í það minnsta mat stjórnvalda
að þar hafi tekist að gera ágæta hluti. Svo er hitt
sem ég tel vera meginmál, að umhverfið núna er
þannig úr garði gert að það er engin leið til að hlut-
ir fari jafn aflaga. Maður þarf að vera mjög nei-
kvæður og svartsýnn til að ætla að menn reyni ekki
að gera betur en áður.“ Þórður segir ekki rétta leið
að setja mál þannig upp að búa verði til fullkomið
regluverk um markaðinn áður en af stað sé farið
á ný. „Menn eiga hins vegar að vinna með laga-
og reglugerðarbreytingar eins og verið er að gera
núna. Ég er sannfærður um að fyrirtæki, sem ætlar
að fá til sín fjárfesta, munu leggja áherslu á að um-
gangast hlutaðeigandi af virðingu og virða lög og
reglur sem þar um gilda. Öðruvísi eiga menn þess
engan kost að ná í fjármagn á markaði.“
Þá telur Þórður að verðugt verkefni kynni að vera
fyrir félag á borð við Samtök fjárfesta, með Vil-
hjálm Bjarnason í fararbroddi, að setja upp kerfi hjá
fagfjárfestum þar sem væri leiðbeiningaþjónusta
um ábendingar vaknaði grunur um að eitthvað væri
ekki í lagi. „Mér fyndist upplagt að virkja þenn-
an vettvang í þá veru, ef menn hefðu til að mynda
áhyggjur af því að menn ætluðu aftur í gömlu spor-
in.“
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir
Þeir sem kunna að meta stuttar
boðleiðir og skjóta ákvarðanatöku
...eru fljótastir að flytja sig til okkar.
Ágústa Finnbogadóttir, viðskiptastjóri Ármúla