Fréttablaðið - 02.06.2010, Síða 38
40 30 400ár eru síðan versluninni Blómaval var komið á laggirnar. milljarðar er áætlaður hámarksgengishagn-aður Seðlabankans vegna kaupa lífeyris-sjóðanna á íbúðabréfum. íslensk fyrirtæki eru skráð án stjórnarmanna.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Meðalaldurinn var í hærri kant-
inum á hádegisverðarfundi við-
skiptafræðinga og hagfræðinga
í gær en þar ræddu reynslu-
boltar úr atvinnulífinu um gildin
í viðskiptalífinu á árum áður og
græðgina í aðdraganda hrunsins.
Meðal frummælenda var Guðrún
Lárusdóttir, sem stofnaði útgerð-
ina Stálskip í Hafnarfirði með
eiginmanni sínum árið 1970.
Líkt og fleiri frum-
mælendur staldraði
Guðrún um stund við
haftatímabilið þegar
gengisfellingar voru
tíðar og í boði aðeins
tvær gerðir af flís-
um, bláar og
gular.
Gamalt og gott?
Guðrún sagðist ekki hafa lært
ráðdeild og sparnað fyrr en hún
fluttist til Danmerkur á sjöunda
áratug síðustu aldar. Ekki var þó
ljóst af orðum Guðrúnar hvort
ráðdeildarsama húsmóðirin tal-
aði á hádegisverðarfundinum eða
útgerðarkonan þegar hún sagði:
„Við eigum að nýta aðeins meira
af gæðum landsins og hafna inn-
göngu í Evrópubandalagið,“ en
hún lagði jafnframt áherslu á að
auka hér atvinnu og gera landið
hagfellt í augum fjárfesta. Undir
lok erindisins lýsti hún svo fyrir
gestum þeirri ánægju sem hún
fann á leið sinni á fundinn og
sá skip fyrirtækisins sigla inn í
höfn með fullfermi sem selja má
fyrir rúmar tvö hundruð millj-
ónir króna.
Ofnýtt land
og lokað
Sólon R. Sigurðsson, fyrrverandi
bankastjóri Búnaðarbankans,
síðar Kaupþings, var jafn-
framt með skemmtilegt inn-
legg á hádegisverðarfundinum.
Sólon er reynslubolti í banka-
heiminum en hann hóf störf hjá
Landsbankanum árið 1961. Sólon
fór síðar yfir til Búnaðarbankans
og byggði upp erlend viðskipti
hans í skugga takmörkunar á
erlendum gjaldeyri. Þegar að
höftunum kom – sem var all-
oft – vísaði hann á að Bjarni
Bragi Jónsson, fyrrverandi
aðstoðarseðlabankastjóri, sem
sat fundinn, gæti ýmist leið-
rétt hann eða vitað meira um
málið. „Ekki kenna mér um
allt!“ svaraði Bjarni
og lét í ljós óánægju
sína með böggið.
Ljóst er að hann
flýr seint fortíðina
en hann var aðstoðar-
seðlabankastjóri
á árunum 1983 til
1994.
Böggið hættir seint
Yfirsýn og aukin afköst
með MindManager
Hlíðarsmára 2 201 Kópavogi Sími 565 7272 www.verkefnalausnir.is
Elín Þ.
Þorsteinsdóttir
Sigrún
Stefánsdóttir
Leiðbeinendur
Kynningarfundur
og hraðnámskeið
Hugarflug
Grunnæfingar
Tölulegar upplýsingar
Gerð skipurita
Fundarstjórnun
Ritgerðasmíð og skýrslugerð
Verkefnastjórnun og skipulagning
Samspil Outlook og MindManager
Kynningar
Stjórnun upplýsinga
Af hverju MindManager?
Eykur afköst starfsmanna um 7%.
Auðveldar verkefnastjórnun og
skipulagningu.
Minnkar tíma við skýrsluskrif um 50%.
Markvissari og styttri fundir.
Öflugt tól í hugarflug, þarfagreiningu
og stefnumótun.
Ókeypis opinn kynningarfundur
4. júní kl. 9.00-10.00
MindManager hraðnámskeið
10. júní kl. 8.30-16.30
Forkröfur: Að vera vel tölvufær
Júní tilboð - frítt JCVGantt með MindManager 8 PC
JCVGantt, að verðmæti kr. 26.065 kr. (með vsk) fylgir frítt með í kaupunum,
bæði á uppfærslum og nýjum MindManager 8 leyfum fyrir PC. Gildir einnig
um skólaleyfi. Atvinnulausir njóta þeirra kjara.
JCVGantt er mjög hagnýt lausn sem sýnir MindManager hugkort á tímaás og
gerir kleift að áætla tíma, kostnað og forða á örskömmum tíma.
HELSTU
NÁMSKEIÐS-
ÞÆTTIR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki