Fréttablaðið - 02.06.2010, Qupperneq 40
20 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
CHARLIE WATTS ER 69 ÁRA Í DAG.
Ég hef verið að spila á tromm-
ur í mörg, mörg ár og þær
eru enn þá ögrandi verkefni.
Mér finnst enn þá gaman að
nota trommukjuða og sneril-
trommu.
Charlie Watts er enskur trommu-
leikari og meðlimur í hljómsveit-
inni The Rolling Stones.
Skotfélag Reykjavíkur var
stofnað fyrir 143 árum og er
elsta íþróttafélag landsins.
Fyrstu æfingar félagsins fóru
fram við tjörnina í Reykjavík
og var æfingahús þess nefnt
Reykjavig Skydeforenings
Pavillon en það gekk alltaf
undir nafninu skothúsið. Skot-
húsvegur við Tjörnina dregur
nafn sitt af þessu æfingahúsi.
Skothúsið var síðar notað sem íbúðarhús áður en
það var rifið árið 1930.
Margir helstu fyrirmenn bæjarins mættu
reglulega á æfingar hjá Skotfélaginu eftir stofnun
þess. Æfingarnar voru haldnar á litlum tanga
sem lá út í tjörnina og var
skotfélagsmönnum gert að
skjóta í áttina að Skildinga-
nesi. Skotstefnan var samsíða
Suðurgötu í átt að Skerjafirði.
Margar keppnir voru í skotfimi
og verðlaun voru veitt fyrir
góðan árangur.
Starfsemi Skotfélags
Reykjavíkur lá að mestu niðri
á styrjaldarárunum og milli
stríða en formleg starfsemi félagsins var endurreist
árið 1950. Starf félagsins var þó ekki endurreist við
Reykjavíkurtjörn heldur í Leirudal við Grafarholt en
varð að víkja fyrir íbúðabyggð árið 2000. Frá árinu
2007 hefur útiskotsvæði félagsins verið á Álfsnesi.
ÞETTA GERÐIST: 2. JÚNÍ 1867
Skotfélag Reykjavíkur stofnað
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Ingvarsdóttir
áður til heimilis að Lokastíg 28,
Reykjavík,
lést á Sóltúni hjúkrunarheimili, þann 31. maí síðast-
liðinn. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
mánu daginn 7. júní kl. 13.00.
Anna Sveinsdóttir
Jón Sveinsson Guðrún Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Einlægar þakkir fyrir samúð og vinar-
hug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður, afa og
langafa
Þórs Jóhannssonar
húsgagnabólstrara, Efstasundi 19.
Elín Rannveig Eyfells og fjölskylda.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar bróður okkar,
mágs og frænda
Benedikts Jóhannssonar
frá Háagerði í Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Aspar- og Beykihlíð
fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Aðalsteinn Jóhannsson Guðbjörg Stefánsdóttir
Guðrún Jóhannsdóttir
Freygerður Anna Geirsdóttir Örn Hansen
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og frænka,
Jónína Valgerður
Sigtryggsdóttir
sem lést föstudaginn 28.05.2010 á Vífilsstöðum
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 03.06.2010 kl. 13.00.
Margrét Haukdal Marvinsdóttir Einar Emil Magnússon
Anna Valgerður Einarsdóttir
Heiða Guðrún Einarsdóttir Sigurður Arnar Ólafsson
Magnús Baldvin Einarsson Fowzya Allomeda
Marvin Haukdal Einarsson
Sigrún Garðarsdóttir
Helga Björg Hermannsdóttir
barnabarnabörn.
Lilja Sveinsdóttir er með augnsjúkdóm-
inn RP sem lýsir sér í æ versnandi sjón
og algerri blindu í myrkri. Hún hefur
komist leiðar sinnar undanfarin ár með
blindrastaf og þurft að stóla á aðstoð
fjölskyldu og vina. Fyrir tæpum tveim-
ur árum fékk hún hins vegar leiðsögu-
hundinn Asítu, svarta labradortík, sem
hefur breytt lífi hennar til hins betra.
„Maður er ekki eins háður fjölskyldu
og vinum að komast um,“ segir Lilja
sem finnur einnig mikinn mun á eigin
heilsu. „Ég er til dæmis í mun betri
þjálfun núna. Ég geng mun meira
með hundinn og geng líka hraðar og
er öruggari með mig,“ segir hún glað-
lega. „Þá hef ég líka alveg losnað við
vöðvabólgu úr öxlunum sem ég þjáð-
ist af áður því nú er ég svo slök þegar
ég labba.“
En var ekki erfitt að læra að nota
hundinn? „Nei, erfiðast var að læra
að treysta henni,“ svarar Lilja og telur
að það hafi tekið hana um viku að ná
tökum á hundinum. „En eftir á að
hyggja var ég ekki fullkomlega örugg
með hana fyrr en eftir svona ár,“ segir
hún.
Asíta var ein af fjórum leiðsöguhund-
um sem fluttir voru inn fyrir tveimur
árum af Blindrafélaginu í samstarfi
við Heilbrigðisráðuneytið og með öfl-
ugum stuðningi Lions-hreyfingarinnar
á Íslandi. Þar með eru leiðsöguhundar
á Íslandi fimm talsins. En var auðvelt
fyrir Lilju að fá slíkan hund? „Á sínum
tíma var óskað eftir þeim sem hefðu
áhuga á því að fá leiðsöguhund. Sex
sóttu um og við þurftum öll að fara út
til Noregs í alls kyns próf,“ lýsir Lilja
en þar var meðal annars athugaður
gönguhraði fólksins og skapgerð þess.
Að tæpum mánuði liðnum fékk Lilja
að vita að hún fengi hund til umráða.
Það eru því ekki aðeins hundarnir sem
eru sérvaldir heldur fólkið líka. Lilja
segir frá því að fjórar tegundir hunda
þyki best henta til þjálfunar leiðsögu-
hunda, en það eru labrador retriver,
golden retriver, sjeffer og kóngapúðli.
Þá eru einnig sérvaldir þeir hvolpar
innan þessara tegunda sem þykja hafa
skapgerðina til að verða leiðsöguhund-
ar en þeir fara síðan í gegnum stranga
þjálfun.
Hundar hafa í gegnum tíðina ekki
verið sérlega velkomnir á almennings-
stöðum í Reykjavík. Því er nærtækt að
spyrja Lilju hvort hún geti farið með
Asítu allra sinna ferða. „Ég hef aðeins
einu sinni lent í vandræðum enda eru
leiðsöguhundar viðurkennd hjálpar-
tæki blindra. Í Krónunni á Selfossi var
mér hins vegar meinaður aðgangur og
sagt að ég mætti ekki fara inn í búð-
ina með gæludýr,“ segir Lilja en tekur
fram að margir séu farnir að vakna
til vitundar um mikilvægi leiðsögu-
hunda fyrir blinda. „Hins vegar veð
ég aldrei inn í verslanir án þess að fá
leyfi fyrst,” tekur hún fram.
En er Asíta þá ekki fjölskylduhund-
ur? „Hún er bara vinnudýr þegar hún
er með hvíta beislið á sér. Þegar það
er tekið af er hún venjulegur hundur
og ein af fjölskyldunni,“ svarar Lilja
ánægð með Asítu sína.
solveig@frettabladid.is
LILJA SVEINSDÓTTIR: LEIÐSÖGUHUNDURINN BREYTTI LÍFINU
Ekki jafn háð aðstoð annarra
Í BETRI ÞJÁLFUN Lilja segir að blindrahundurinn Asíta sé eins og ein af fjölskyldunni þegar hvíta beislið er farið af henni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR
1707 Bólusótt berst til lands-
ins með Eyrarbakkaskipi.
Hún geisaði í tvö ár og
þriðjungur Íslendinga lést
úr henni.
1875 Alexander Graham Bell
hringir í fyrsta sinn úr
síma.
1953 Krýningu Elísabetar 2.
sjónvarpað um Bretland.
1957 Dvalarheimili aldraðra
sjómanna í Reykjavík,
Hrafnista, tekið í notkun.
1979 Jóhannes Páll páfi annar
heimsækir Pólland, fyrst-
ur páfa til að heimsækja
kommúnistaríki.
2004 Ólafur Ragnar Grímsson
synjar fjölmiðlafrumvarp-
inu staðfestingar.
Sauðfjársetrið á Ströndum opnar sýninguna
Sauðfé í sögu þjóðar í dag eftir vetrarfrí.
Þetta er áttunda árið sem Sveitasetrið í
félagsheimilinu Sævangi opnar sýninguna
en setrið var opnað fyrst árið 2002. Yfir-
skrift sýningarinnar er „Langafi þinn var
sauðfjárbóndi, án hans værir þú ekki til“.
Kaffistofa Sauðfjársetursins Kaffi kind
verður með fyrsta kaffihlaðborð sumarsins
á sunnudaginn og þá verður einnig farið í
gönguferð um slóðir æðarfugla. Nánar má
forvitnast um Sauðfjársetrið á vefsíðunni,
www.strandir.is
- rat
Sauðfjársetrið
opnað á ný
ÍSLENSKA SAUÐ-
KINDIN Sýningin
Sauðfé í sögu
þjóðar opnuð eftir
vetrarfrí.