Fréttablaðið - 02.06.2010, Page 42
22 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jámm?
Hvað hefur
eiginlega
orðið um
snjóinn?
Við höfum
greinilega
verið að
skoða gam-
alt póstkort
Ó, nei.
Ég gleymdi að læra
undir stærðfræðiprófið
ÁransKlípa,
klípa,
klípa
Aldrei geta martraðir
bara verið martraðir
þegar maður þarf
virkilega á því að halda.
Hún Solla er bara að
stríða þér, hún getur ekki
fengið tölvupóst í gegn-
um teikniborðið sitt.
Í augnablikinu er
rúllustiginn bilaður
BS nám í viðskiptafræði með
vinnu í Háskóla Íslands
Haldinn verður kynningarfundur um námið
fimmtudaginn 3. júní kl. 12-13 í stofu 102 í Gimli.
Nánari upplýsingar má finna á www.bsv.hi.is
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ
SUMAR
Takmarkaður
sýningafjöldi
Miðasala er hafin!
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Appelsínur fóru að birtast víðs vegar um vinnustaðinn í gær. Eina ástæða
þess er líklega sú að ég hafði heyrt
ummæli utanríkisráðherra, sem greindi
samstarfsfélaga sínum Birgittu Jónsdótt-
ur víst frá því að það versta sem mögu-
lega gæti gerst ef Ísland sliti stjórnmála-
samstarfi við Ísrael væri að kannski
fengjum við þá engar appelsínur til lands-
ins. Ég get allavega svarið það að aldrei
hefur nokkur maður borðað appelsínu í
vinnunni í minni viðurvist, en það gerðist
nú samt tvisvar í gær. Og allt í einu var
líka boðið upp á appelsínur í kaffinu.
RÁÐHERRANN hefur kannski ekki
ætlast til þess að þessi orð hans yrðu
tekin bókstaflega. En með þeim gaf
hann að minnsta kosti sterklega í
skyn að til aðgerða yrði gripið eftir
ógeðfelldar og óréttlætanlegar árás-
ir Ísraela gegn óbreyttum borgur-
um á alþjóðlegu hafsvæði. Íslensk-
ir ráðamenn, sem hafa ekki alltaf
þorað að taka slaginn og standa
gegn mannréttindabrotum,
tóku flestir í sama streng í
gær og fordæmdu verkn-
aðinn.
ÞAÐ eru aðrir ávext-
ir og fleiri vörur frá
Ísrael seldar hér á
landi. Appelsínus-
kortur, og raunar skortur á öllum þessum
vörum, er lágur fórnarkostnaður fyrir
það að standa með almennum borgurum
sem eru beittir ótrúlegu óréttlæti. Það
er nú hægt að flytja inn appelsínur frá
öðrum löndum, fjandinn hafi það.
Í STÓRA samhenginu snýst þetta mál
nefnilega lítið sem ekkert um árásina á
mánudag, eins hræðileg og hún var. Það
snýst um að Ísraelsmenn hafa gengið
fram af heimsbyggðinni í fjölda ára, og
það er löngu kominn tími á að eitthvað
sé gert. Nú eygir maður veika von um að
eitthvað örlítið skref verði stigið í rétta
átt.
ÁRÁSIN þjónaði þeim tilgangi að beina
augum Vesturlandabúa, sem hafa verið
of uppteknir af eigin vandamálum upp á
síðkastið, aftur að þessu svæði. Svæði þar
sem fólk er líklega lítið hugsi yfir banka-
kreppum heimsins, enda vandamálin þar
margfalt stærri. Svæði sem hefur verið
vanrækt alltof lengi.
ÉG ÍHUGAÐI í stutta stund að fá mér app-
elsínu í kaffinu í gær, fyrst það virtist allt
í einu vera í boði. Ég tók þó fljótt sönsum
og viðurkenndi fyrir sjálfri mér það sem
ég hef þó lengi vitað: að appelsínur eru
vondar. Og þó þær verði aldrei aftur á
vegi mínum hér á landi er mér nákvæm-
lega sama.
Ísrael og appelsínurnar
BAKÞANKAR
Þórunnar
Elísabetar
Bogadóttur