Fréttablaðið - 02.06.2010, Blaðsíða 50
30 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
9 DAGAR Í HM
Hrafn Kristjánsson, fyrrverandi þjálfari karlaliða Breiðabliks, Þórs og
KFÍ, verður næsti þjálfari Íslandsmeistara kvenna í KR en Hrafn snýr
nú heim í Vesturbæinn þar sem hann lék allt til loka ársins 1994.
Hrafn tekur við starfi Benedikts Guðmundssonar sem gerði liðið að
fjórföldum meisturum á síðasta tímabili en eini titillinn sem
klikkaði var bikarinn sem liðið vann árið áður.
„Við Benedikt þekkjumst vel og tölumst við nánast dag-
lega. Ég fylgdist vel með þeim í fyrra og mér sýnist á öllu
að þetta séu stelpur sem lifa fyrir það að bæta sig sem
körfuboltaleikmenn. Þjálfari getur ekki farið fram á betri
starfsvettvang en það,“ segir Hrafn.
Hrafn segir að það hafi farið að kitla hann að
koma aftur í KR þegar hann fór að mæta oftar
á leiki KR á síðasta tímabili. „Þá fann maður
það í sér að maður hafði aldrei farið alla
leið í burtu. Það var svolítið yfirlýst stefna
hjá þeim að fá KR-ing í starfið og það er
bara notalegt,“ segir Hrafn. Hrafn býst við að halda svipuðum hóp
en segist ætla sér að nýta næstu daga í að fara yfir þau mál. „Að
öllu óbreyttu í leikmannamálum er ekki gert ráð fyrir að hefja leik
í Vesturbænum með erlendan leikmann innan borðs” sagði Hrafn
aðspurður. „Markmiðið er alltaf eins í KR sem er að vinna það sem í
boði er. Á sama tíma er mjög mikilvægt að það sé ekki bara tjaldað
til einnar nætur. Það eru leikmenn í leikmannahópnum sem eiga
töluvert inni og það eru aðrir leikmenn, og það er mikilvægt fyrir
félagið að þær geri sér ljóst hvað þær geta,“
segir Hrafn sem segir leikmenn KR-liðs-
ins hafa mikinn metnað.
„Þær öskra alveg á aukaæfingarnar.
Þetta eru stelpur sem nenna að mæta í
húsið, nenna að mæta á skotæfingar og fara
í gegnum séræfingar. Það verður líka að bæta þetta
lið innan frá ef það á að verja það sem vannst síðasta vetur,“
sagði Hrafn að lokum.
HRAFN KRISTJÁNSSON KOMINN HEIM Í KR: TEKUR VIÐ ÍSLANDSMEISTARALIÐI KVENNA
Þetta eru stelpur sem nenna að mæta í íþróttahúsið
Þrír fyrirliðar hafa komist með lið sín tvisvar
í úrslitaleik HM en enginn hefur náð að lyfta bikarnum
tvisvar. Diego Maradona vann heimsmeistaratitilinn með
Argentínu 1986 en tapaði í úrslitaleiknum fjórum árum
síðar. Sömu sögu má segja af Brasilíumanninum Dunga
sem tók við bikarnum 1994 en varð sætta sig
silfur fjórum árum síðar. Þjóðverjinn
Karl-Heinz Rummenigge tapaði
hins vegar báðum úrslitaleikjum
sínum sem fyrirliði, 1982 og
1986.
stuðningsmannaklúbbs Manchester United
á Íslandi verður haldinn sunnudagskvöldið
13. júní 2010 kl. 20.
Fundurinn fer fram í sal félagsheimilis
Sjálfstæðismanna í Mjódd, Álfabakka 14a.
Atkvæðarétt á aðalfundi hafa þeir sem greitt
hafa ársgjaldið 2009 - 2010.
Aðalfundur
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
(sjá breytingatillögur á www.manutd.is)
5. Kosning stjórnarmanna
6. Önnur mál
Stjórnin
Landslið Englands
Markverðir:
Joe Hart, David James og
Robert Green.
Varnarmenn:
Jamie Carragher, Ashley Cole,
Rio Ferdinand, Glen Johnson,
Ledley King, John Terry, Matthew
Upson og Stephen Warnock.
Miðvallarleikmenn:
Gareth Barry, Michael Carrick, Joe
Cole, Steven Gerrard, Frank Lamp-
ard, Aaron Lennon, James Milner og
Shaun Wright-Phillips.
Sóknarmenn:
Peter Crouch, Jermain Defoe, Emile
Heskey og Wayne Rooney.
FÓTBOLTI Fabio Capello landsliðs-
þjálfari Englands tilkynnti í gær
hvaða 23 leikmenn fara á heims-
meistaramótið í Suður-Afríku
sem hefst í næstu viku.
Helst kom á óvart að Theo
Walcott, leikmaður Arsen-
al, var ekki valinn í hópinn.
Það kom einnig á óvart
þegar Walcott var val-
inn í enska landsliðs-
hópinn sem fór á
HM í Þýskalandi
fyrir fjórum
árum en þá var
hann sautján
ára gamall
og nýkom-
i nn t i l
Arsenal
frá South-
ampton.
„Það eru mér
mikil vonbrigði að
ég var ekki val-
inn í hópinn en ég
ber fulla virðingu
fyrir ákvörðun
Hr. Capello,“ sagði
Walcott í samtali
við enska fjölmiðla
í gær. „Ég óska lið-
inu alls hins besta og
vona að því gangi vel
á mótinu.“
Walcott
skoraði
þrennu í leik
gegn Króatíu í undankeppni HM
en hefur átt erfitt uppdráttar á
leiktíðinni og þótti valda von-
brigðum í æfingaleikjum Eng-
lendinga nú á síðustu vikum.
Joe Cole og Gareth Barry
komust báðir í hópinn en auk
Walcott duttu þeir Darren
Bent, Leighton Baines,
Michael Dawson, Tom
Huddlestone, Scott
Parker og Adam
Johnson úr hópn-
um í gær. - esá
Fabio Capello tilkynnti HM-hóp Englands:
Walcott ekki valinn
KÖRFUBOLTI Hreggviður Magnús-
son gerði í gær tveggja ára samn-
ing við KR en hann hefur verið
lykilmaður ÍR undanfarin ár.
Hann var samningslaus hjá ÍR og
eftirsóttur af mörgum félögum.
Hreggviður hefur leikið með
ÍR allan sinn feril ef frá eru talin
námsárin hans í Bandaríkjunum.
Hann varð bikarmeistari með ÍR
bæði 2001 og 2007.
Hann gat þó ekki beitt sér að
fullu á síðasta tímabili vegna
meiðsla en átti tvö frábær tímabil
þar á undan þar sem hann skoraði
yfir átján stig að meðaltali í leik.
Hann var til að mynda lykilmað-
ur þegar að ÍR sló óvænt þáver-
andi Íslandsmeistara KR úr leik í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar
vorið 2008. Hann skoraði 29 stig í
oddaleiknum í rimmunni.
Þetta er fyrsti leikmaðurinn
sem gengur í raðir KR frá því að
tímabilinu lauk í vor. - esá
Leikmannamál KR:
Hreggviður
samdi við KR
HREGGVIÐUR Klæðist búningi KR á
næstu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
THEO WALCOTT
Horfir á HM í sjónvarpinu
í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓTBOLTI Íslands- og bikarmeistar-
ar Vals töpuðu í gær sínum fyrstu
stigum í Pepsi-deild kvenna en liðið
mátti þakka fyrir að hafa náð jafn-
tefli gegn Stjörnunni á heimavelli.
Valur er þó með þriggja stiga for-
ystu á Breiðablik á toppi deildar-
innar.
Þá vann Fylkir góðan sigur á Þór/
KA á heimavelli sínum í Árbænum.
Fjóla Dröfn Friðriksdóttir kom
Fylki yfir með skalla um miðjan
fyrri hálfleik. Heimamenn hresst-
ust mikið við markið og náðu að
tvöfalda forystu sína nokkrum mín-
útum fyrir lok fyrri hálfleiks. Þar
var að verki Anna Björg Björns-
dóttir, aftur með skalla.
Aðeins mínútu síðar skoraði
Danka Podavac frábært mark
beint úr aukaspyrnu fyrir Þór/KA
og staðan því 2-1 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var virkilega
bragðdaufur og fátt markvert gerð-
ist. Eina hættulega færið var skot
beint úr aukaspyrnu frá Podavac
sem Björk Björnsdóttir varði vel í
marki Fylkis.
Sigurinn var mikilvægur fyrir
Fylki sem hafa unnið tvo leiki í röð
og eru komnar í þriðja sæti Pepsi-
deildarinnar með níu stig.
„Ég er virkilega ánægður með
þau þrjú stig sem við fengum hér í
kvöld. Við mættum feikilega góðu
liði og ég er mjög ánægður með
framgang og vinnusemi stúlknanna.
Þær stóðu sig mestmegnis mjög vel
þó svo að við höfum bakkað aðeins
of mikið í síðari hálfleik. Þær náðu
þó að halda út og landa sigrinum,”
sagði Björn Kristinn Björnsson,
þjálfari Fylkis, í leikslok.
Dramatík á Vodafone-vellinum
Leik Vals og Stjörnunar lauk á
Vodafone velli með 1-1 jafntefli en
bæði lið hefðu þó getað stolið sigr-
inum undir lokin. Fyrri hálfleikur
var afar bragðdaufur og lítið um
færi, en það færðist meira fjör í
leikana í seinni hálfleik.
Inga Birna Friðjónsdóttir kom
afar sterk af bekknum og skor-
aði mark Stjörnustelpna með góðu
skoti eftir að hafa leikið á varnar-
mann Valsstúlkna. Jöfnunarmark
Vals kom á 89. mínútu en þar var
Dagný Brynjarsdóttir að verki
með góðum skalla. Síðustu mínút-
urnar voru afar spennandi og áttu
bæði lið sláarskot áður en Vilhjálm-
ur Þórarinsson flautaði leikinn af.
Báðir þjálfara lýstu vonbrigðum
sínum í leikslok.
„Ég er sáttur við að hafa feng-
ið eitt stig en ósáttur við að hafa
tapað tveimur,” sagði Freyr Alex-
andersson, þjálfari Vals. „En við
förum nú í leikinn gegn KR eins og
við gerum alla leiki – með það hug-
arfar að næla í þrjú stig.
Andrés Ellert Ólafsson, þjálf-
ari Stjörnunnar, hefði viljað
klára leikinn með sigri. „Við
erum svekkt með að hafa fengið
á okkur mark en þetta var góður
leikur. Við hefðum þó gjarnan
viljað ná sigurmarkinu hér undir
lok leiksins.”
Fleiri óvænt úrslit urðu í gær
en Breiðablik gerði marka-
laust jafntefli við Aftureldingu
á heimavelli í gær. Þá töpuðu
nýliðarnir báðum leikjum sínum
– FH fyrir Grindavík á útivelli og
Haukar fyrir KR á heimavelli.
- esá, sp, kpt
Meistararnir töpuðu fyrstu stigunum
Heil umferð fór fram í Pepsi-deild kvenna í gær. Valur tapaði fyrstu stigum sínum á tímabilinu er liðið
gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna en Fylkir vann heldur óvæntan en góðan sigur á Þór/KA á heimavelli.
HÁLOFTABARÁTTA Rakel Hönnudóttir, leikmaður Þórs/KA, er hér fyrir miðri mynd í
baráttu um boltann í Árbænum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Pepsi-deild kvenna
Valur - Stjarnan 1-1
0-1 Inga Birna Friðjónsdóttir (70.), 1-1 Dagný
Brynjarsdóttir (89.).
Fylkir - Þór/KA 2-1
1-0 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (19.), 2-0 Anna
Björg Björnsd. (38.), 2-1 Danka Podovac (40.).
Breiðablik - Afturelding 0-0
Grindavík - FH 2-0
Haukar - KR 0-3
STAÐAN
Valur 5 4 1 0 20-3 13
Breiðablik 5 3 1 1 7-5 10
KR 5 3 0 2 9-3 9
Fylkir 5 3 0 2 10-8 9
Stjarnan 5 2 1 2 7-4 7
Þór/KA 5 2 1 2 11-9 7
Grindavík 5 2 1 2 5-4 7
Afturelding 5 2 1 2 6-9 7
Haukar 5 1 0 4 2-14 3
FH 5 0 0 5 3-21 0
NÆSTU LEIKIR
FH - Þór/KA sun. 6. júní kl. 16.00
Afturelding - Haukar þri. 8. júní kl. 19.15
KR - Valur þri. 8. júní kl. 19.15
Grindavík - Breiðablik þri. 8. júní kl. 19.15
Stjarnan - Fylkir þri. 8. júní kl. 19.15
Vináttulandsleikir
Ástralía - Danmörk 1-0
1-0 Joshua Kennedy (71.).
Sviss - Kosta Ríka 0-1
0-1 Winston Parks (56.).
Holland - Gana 4-1
1-0 Dirk Kuyt (30.), 2-0 Rafael van der Vaard
(73.), 2-1 Asamoah Gyan (78.), 3-1 Wesley Sneij-
der (80.), 4-1 Robin van Persie, víti (88.).
Portúgal - Kamerún 3-1
1-0 Raul Meireles (31.), 2-0 Raul Meireles (46.),
2-1 Pierre Webo (69.), 3-1 Nani (81.).
ÚRSLIT