Fréttablaðið - 11.06.2010, Qupperneq 48
24 11. júní 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn E. Guðmundsson
bifvélavirki, Skálagerði 11, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 8. júní sl. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 15. júní kl. 13.00.
Guðríður Geira Kristjánsdóttir
Ögmundur Kristinsson Ásta Hulda Kristinsdóttir
Jóhanna Kristinsdóttir Guðmundur Bjarni
Daníelsson
Jóna Björg Kristinsdóttir Salómon Þórarinsson
Sigurrós Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar kæri faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Oddgeir Ágúst Ottesen,
Hrafnistu í Reykjavík, áður búsettur í
Hveragerði,
andaðist 8. júní á Landspítalanum Fossvogi.
Skafti Geir Ottesen Guðný Gunnþórsdóttir
Sigurbjörg Ottesen
Guðný Ásta Ottesen Sigurður Emil Ólafsson
Anna Katrín Ottesen Björn Ingi Stefánsson
Auður Ingibjörg Ottesen Páll Jökull Pétursson
Morten Geir Ottesen Kolbrún Bjarnadóttir
Sólhildur Svava Ottesen
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Unnar Þór Lárusson
andaðist að heimili sínu, Eyrarlandsvegi 20, að kvöldi
mánudagsins 7. júní síðastliðinn. Útför fer fram frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Heimahlynningar á Akureyri eða trúarlega þjónustu
við Sjúkrahúsið á Akureyri s.: 463 0100.
Hólmfríður Kristjánsdóttir
Lára Kristín Unnarsdóttir Hrafnkell Sigurðsson
Eyrún Unnarsdóttir Lárus Heiðar Ásgeirsson
Margrét Unnarsdóttir Einar Helgi Guðlaugsson
Ásthildur Lárusdóttir
Guðrún Jónsdóttir Lárus Jónsson
Jón Ellert Lárusson Sigrún Ásdís Gísladóttir
Marta Kristín Lárusdóttir Guðmundur Valsson
Jónína Sigrún Lárusdóttir Birgir Guðmundsson
og frændsystkin.
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir,
mágkona og barnabarn,
Guðrún Guðmundsdóttir
frá Hólmaseli, Birkivöllum 3, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þann 9. júní.
Jarðað verður frá Villingaholtskirkju miðvikudaginn
16. júní kl. 14.00.
Axel Geir Valgeirsson
Sigurjón Bergur Eiríksson
Jóhanna Gústafsdóttir
Vilhjálmur Arnar Ólafsson Birgitta E. Antonsdóttir
Sigurður Guðmundsson Unnur Guðlaugsdóttir
Anna Pálína Guðmundsdóttir Gunnar Sigurðsson
Svandís Guðmundsdóttir Ingólfur Vigfússon
Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir Þorbjörn Sigurðsson
Kristrún Guðmundsdóttir Ævar Ævarsson
Anna Gústafsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Gunnar Helgason
hæstaréttarlögmaður,
lést þann 4. júní á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför
hans fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 14. júní
kl. 13.00.
Kristján T. Gunnarsson Beverly Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson Gunilla E. Gunnarsson
Margrét Gunnarsdóttir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Hallgrímur H. Gunnarsson Guðrún E. Högnadóttir
Guðjón H. Gunnarsson Henríetta G. Gísladóttir
og barnabörn.Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Jón Eiríksson,
Vorsabæ,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laug-
ardaginn 12. júní kl. 11.00. Jarðsett verður í
Ólafsvallakirkjugarði.
Emelía Kristbjörnsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Eiríkur Jónsson Hulda Nóadóttir
Björn Jónsson Stefanía Sigurðardóttir
Ingveldur Jónsdóttir Guðmundur Ásmundsson
afa- og langafabörn.
Systir mín,
Margrét Halldórsdóttir
frá Skeggjastöðum í Flóa, Kleppsvegi 30,
sem lést 5. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 14. júní kl. 13.00.
Guðmundur Helgi Halldórsson
MOSAIK
Hjartans þakkir fyrir þá vináttu og
hlýhug sem okkur hefur verið sýnd við
andlát og útför
Valdimars Helgasonar.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki V-2 á
Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir alúð og
umhyggju sem hann naut þar.
Elín Ó. Finnbogadóttir
Helgi Valdimarsson Jóna Ólafsdóttir
Sigríður G. Valdimarsdóttir Óttar Ólafsson
Aðalheiður Valdimarsdóttir Sveinn Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Konur í kvenfélaginu Hlíf á Akureyri settu á fót sumardval-
arheimili fyrir börn árið 1950 sem þær nefndu Pálmholt.
Pálmholt starfar enn í sama húsnæði og er orðið að heilsárs
leikskóla í dag.
„Við teljum okkur elsta leikskólann á landsbyggðinni og
efnum til afmælishátíðar í dag með opnu húsi,“ segir Hug-
rún Sigmundsdóttir, leikskólastjóri Pálmholts. Eins hefur
verið sett upp sýning sem spannar sögu leikskólans í Amt-
bókasafninu. „Við byggjum sýninguna upp á viðtölum við
forstöðukonur fyrri ára og minningum fólks sem hefur verið
hér. Þar má sjá gömul leikföng í bland við ýmislegt sem
krakkarnir eru að vinna í dag,“ segir Hugrún og nefnir sér-
staklega gamla kvikmynd frá árinu 1952 þar sem sjá má
mæður skila börnum sínum í leikskólarútuna.
„Þá voru nokkrar stoppistöðvar í bænum þar sem rúta
náði í börnin. Pálmholt var þá uppi í sveit og starfstúlka tók
á móti börnunum sem sum voru spennt að koma en önnur
ekki.“ Til að byrja með voru 50 börn og þrjár konur að vinna
en kvenfélagskonurnar sem að Pálmholti stóðu lögðu mikinn
metnað í að forstöðukonan væri faglærð í uppeldisfræðum.
„Saga leikskólastéttarinnar spannar líka 60 ár svo fyrsta
forstöðukona Pálmholts hefur verið nýútskrifuð frá Upp-
eldisskóla Sumargjafar. Kvenfélagskonurnar hafa líka verið
ótrúlega framsýnar og sáu auðvitað þörfina fyrir dagvist
barna löngu á undan bæjarfélaginu. Þær gefa Akureyrarbæ
svo Pálmholt árið 1972 með öllum búnaði og lóð en við þau
tímamót var ekki flutt þakkarávarp eða hellt upp á kaffi og
engin ljósmynd tekin,“ segir Hugrún. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar og starf leikskólans breyst í áranna rás.
„Okkur finnst við vera á hátindinum núna og ég held að
okkur líði eins og kvenfélagskonunum var innanbrjósts
þegar þær voru að byrja. Leikskólinn er búinn að ganga í
gegnum bæði blóma- og hnignunarskeið gegnum árin. For-
eldrasamstarfið hefur þróast mikið frá því að vera ekki
neitt þegar mömmurnar kvöddu börnin við rútuna og í það
að vera mjög náið.“ Hugrún segir undirbúning afmælisins
hafa átt sér nokkurn aðdraganda. Leitað hafi verið eftir hug-
myndum til bæði foreldra og barna og reynt að koma til
móts við óskir sem flestra.
„Börnin flytja frumsamið afmælisljóð og syngja brekku-
söng. Þau vildu fá kórónu á húsið svo við létum smíða risa
kórónu sem þau skreyttu. Veitingarnar verða skúffukaka að
þeirra ósk en við ætlum líka að grilla og eiga skemmtileg-
an dag. Starfið hér á leikskólanum er blómlegt og hér vinna
metnaðarfullir leikskólakennarar. Það er frábært að vera
leikskólastjóri á Pálmholti í dag.“ heida@frettabladid.is
LEIKSKÓLINN PÁLMHOLT: 60 ÁRA
Opinn dagur
AFMÆLISKÓRÓNA Krakkarnir í Pálmholti vildu að sjálfsögðu útbúa
kórónu á leikskólann sinn fyrir afmælishátíðina. MYND/HEIDA.IS
TRYGGVI GÍSLASON ER 72 ÁRA.
„Þekkingin er undirstaða
þess að skilja aðra og sá
sem skilur aðra skilur
sjálfan sig.“
Tryggvi Gíslason fædd-
ist á Norðfirði árið 1938 og
ólst upp á Akureyri. Tryggvi
gegndi stöðu skólameistara
Menntaskólans á Akureyri á
árunum 1973 til 2003.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.