Fréttablaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI18. júní 2010 — 141. tölublað — 10. árgangur FÖSTUDAGUR skoðun 16 veðrið í dag Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Við erum með salat, brauð og svo pönnukökur í eftirrétt. Þetta er sumarsalat en á sumrin er gott að borða eitthvað annað en kjöt og fisk,“ segir Gígja Svavarsdótt-ir, skólastjóri Tungumálaskólans. „Við nemendur og kennarar borð-um alltaf saman á fimmtudög-um og þá reynum við að elda eitt-hvað íslenskt. Við reynum að hafa fulla máltíð þannig að við borð-um í klukkutíma og þá er verið að spjalla og læra íslensku í tengslum við það.“ Gígja segir að nýrnabaunirna ísalatinu h fi Læra íslensku við borðið Gígja Svavarsdóttir var grænmetisæta í mörg ár og býr því til sumarlegt salat eftir sinni eigin uppskrift. Hún ákvað að hætta að vera grænmetisæta þar sem henni fannst oft flókið að fara í matarboð. Gígja segist eitt sinn hafa verið grænmetisæta og býr því til sumarsalat með marineruðum nýrnabaunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Salat 1 poki nýrnabaunir1 haus jöklasalat2 paprikur Tómatar eftir smekk5 hvítlauksrif 2 dl ólívuolía Salt og pipar Leggið nýrnabaunirnar í bleyti yfir nótt Sjóð Skerið jöklasalat, papr-ikur og tómata. Hellið nýrnabaununum yfir sal-atið og berið fram með ólívuolíu, salti og pipar. Brauðbollur2 bollar hveiti1 bolli heilhveiti15 bolli t SUMARSALAT GÍGJUmeð brauðbollum Fyrir 8 SUMARSÓLSTÖÐUGANGA á Snæfellsjökul verður farin í kvöld á vegum Ferðafélags Íslands. Brott- för er frá Mörkinni 6 klukkan 17 og ekið vestur að jökli þar sem gangan hefst klukkan 21. Upplýsingar á fi.is. V 4ra rétta Góð tækifærisgjöf! Kryddlegin bleikjameð rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósuHumarsúparjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum Fiskur dagsinsþað ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar *** eða / Or *** Lambatvennameð steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa Kókoshnetu Tapiocameð steiktu mangói og lychee sorbet Verð aðeins 7.290 kr. tilboðsseðill föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 18. júní 2010 SKRÁSETUR 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Föstudagur Ríkur af mysupróteinum ostur Prófaðu nýja braðgóða Fjörostinn, fituminnsta kostinn í ostaúrvali dagsins. 9% aðeins Sumarið er yndislegt! www.isafold.is - Sími 595 0300 Einu Íslendingarnir Tveir nýútskrifaðir skrúðgarðyrkjufræðingar unnu fyrstu verðlaun í keppni í Finnlandi. tímamót 20 BJART Á AUSTANVERÐU land- inu. Í dag verða suðlægar áttir, 8-13 m/s suðvestan- og vestanlands en annars hægari. Vestan til verður heldur skýjað og lítils háttar væta, einkum fyrri part dags. VEÐUR 4 15 16 20 20 14 Yrsa arftaki Larssons Yrsa Sigurðardóttir var sögð ein af arftökum Stiegs Larsson í grein í NY Times. fólk 38 EVRÓPUSAMBANDIÐ „Ég fagna þess- ari niðurstöðu og er mjög ánægð- ur með hana,“ sagði Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra í gær, þegar ljóst var orðið að Evrópusam- bandið mun hefja aðildarviðræður við Ísland. „Þetta eru kaflaskipti og mjög mikilvægur áfangi fyrir okkur Íslendinga að geta nú hafið samn- ingaviðræður. Ég tel að þær muni um síðir leiða til þess að Íslend- ingar gangi í Evrópusambandið, en það verður ákvörðun þjóðar- innar.“ Steingrímur J. Sigfússon, fjár- málaráðherra og formaður Vinstri- grænna, segir niðurstöðuna í Brus- sel ekki eiga að koma neinum á óvart. Þótt flokkur hans sé sem fyrr andvígur aðild þá hafi það orðið nið- urstaðan að láta á það reyna í við- ræðum: „Síðan er það þjóðarinnar að taka ákvörðun. Ég reikna með að flestir séu sáttir við það.“ Varðandi lítt dulda skírskotun í ályktun ráðsins um að Íslending- ar þurfi að takast á við skuldbind- ingar sínar í Icesave-málinu segir Össur að það þurfi ekkert að segja okkur Íslendingum að standa við skuldbindingar okkar: „Forystu- menn allra flokka og forseti Íslands hafa lýst því yfir, í kjölfar synjun- ar á Icesave-samningnum í þjóð- aratkvæðagreiðslu, að Íslendingar muni ekki hlaupast undan skuld- bindingum sínum. Hjá mörgum er hins vegar vafi um hverjar þær eru.“ - gb Össur Skarphéðinsson fagnar niðurstöðu leiðtogaráðs Evrópusambandsins: Aðild styrkir fullveldi Íslands ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Segir þjóðina taka ákvörðun á endanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lið Maradona í gírnum Argentínumenn búnir að vinna báða sína leiki á HM. íþróttir 32 BRUNI Mildi þykir að ekki fór verr þegar eldur kviknaði í íbúð á neðstu hæð í fjölbýlishúsi við Íra- bakka í Breiðholti á ellefta tím- anum í gær. Nágrannar sáu að kviknað var í íbúðinni og brutust þrír inn til að bjarga eldri manni sem þar býr. Maðurinn lét ekki segjast og vildi bjarga verðmæt- um úr íbúðinni. „Ég sá bara reyk. Við vorum þrír sem þurftum að taka hann út með valdi,“ segir Jón Birgir Ragnarsson, íbúi í Íra- bakka. Þótt eldurinn hafi ekki verið mikill náði hann að teygja sig í plast sem í íbúðinni var. Fyrir vikið fylltist íbúðin og stigagangur fjölbýlishússins af svörtum reyk. Sex íbúar á efri hæðum lokuðust því inni. „Ég er bara í sjokki. Það var fullt af reyk og ég vissi ekki hvað ég átti að gera,“ segir Vigdís Óskars dóttir, sem býr á efstu hæð- inni í húsinu. Vigdís lokaðist inni ásamt ungu barni sínu. Eldurinn kviknaði út frá feiti í potti. Flytja þurfti manninn sem býr í íbúðinni á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. - sv, kh Eldur í Írabakka: Lokaðist inni með ungabarn EFNAHAGSMÁL Dómar Hæstarétt- ar um gengistryggð bílalán verða ræddir á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Fulltrúar Seðlabankans, Fjár- málaeftirlitsins og Samtaka fjár- málafyrirtækja munu jafnframt mæta á fund efnahags- og skatta- nefndar til að fara yfir stöðuna sem upp er komin. Óvissa og uppnám ríkir hjá eignaleigufyrirtækjum, þar sem menn hafa unnið myrkranna á milli frá því að dómarnir féllu án þess þó að vita í raun hvað beri að gera. Þar á bæ bíða menn þess að stjórnvöld tilkynni hvort og þá hvernig þau muni bregðast við niðurstöðunni, enda er mörgum spurningum enn ósvarað um það hvernig gera skuli upp hina ólögmætu samninga. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er ekki líklegt að gripið verði til bráðaaðgerða í formi laga- setningar til aðstoðar fjármálakerf- inu enda hafa þau skilaboð fengist að niðurstaðan sé fjarri því að vera rothögg fyrir kerfið, eins og það er orðað, þótt eignaleigufyrirtækin fari eflaust illa út úr málinu. Fyrirspurnum hefur rignt yfir eignaleigufyrirtækin frá því á mið- vikudag og krefjast sumir þess að fyrirtækin greiði þeim tafarlaust til baka það fé sem þeir telja sig eiga inni hjá þeim. „Menn þurfa sinn tíma til að átta sig á því nákvæmlega hvað dómur- inn þýðir og hvernig unnið verði úr honum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Guð- jón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, segir málið þurfa að skýrast innan fárra daga. - sh / sjá síðu 4 Beðið eftir stjórnvöldum Eignaleigufyrirtækin bíða þess nú að stjórnvöld tilkynni hvort þau muni bregðast við dómi Hæstaréttar um gengistryggingu lána og þá hvernig. Málið verður rætt í ríkisstjórn og efnahags- og skattanefnd í dag. HEIMT ÚR HELJU Vigdís Óskarsdóttir var himinlifandi þegar hún tók við átta mánaða gömlum syni sínum, Óskari Pétri, úr öruggum höndum slökkviliðsmanna. Slökkviliðið þurfti að nota björgunarmaska til að koma henni og öðrum íbúum út. Á annan tug slökkviliðsmanna tók þátt í slökkvistarfi. MYND/STEFÁN LOFTSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.