Fréttablaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 18.06.2010, Blaðsíða 28
4 föstudagur 18. júní Jóhannes Kjart- ansson, betur þekktur sem Jói Kjartans, hefur skrásett skemmtanalíf Reykvíkinga með ljós- myndum sínum undan- farin fimm ár. Áhugi hans á ljósmyndun kviknaði í menntaskóla og nú á hann yfir þúsund filmur sem geyma ýmsar skemmtilegar myndir. Viðtal: Sara McMahon Ljósmyndir: Valgarður Gíslason J óhannes Kjartans- son er borinn og barn- fæddur í Reykjavík, hann hóf skólagöngu sína í Ísaksskóla fimm ára gamall, því næst lá leið hans í Laugarlækjaskóla og mennta- skólaárunum eyddi hann í Verzl- unarskóla Íslands. „Flestir bekkj- arfélagar mínir úr grunnskóla fóru í Menntaskólann við Sund en ég heillaðist svo af félagslíf- inu í Versló að ég ákvað að sækja um nám þar. Ég tók nokkuð virk- an þátt í félagslífinu á námsárum mínum og strax á öðru ári náði ég að pota mér inn í skólablaðið og þar byrjaði ég fyrst að grúska í grafískri hönnun. Á þriðja ári mínu sá ég um að hanna alla bækl inga, plaköt og þess háttar fyrir skól- ann og á síðasta skólaárinu varð ég ritstjóri Verzlunarskólablaðsins V69,“ segir Jóhannes. DÝRT ÁHUGAMÁL Að stúdentsprófi loknu sótti Jó- hannes um í Listaháskóla Íslands þar sem hann hóf nám í grafískri hönnun. Hann smitaðist af ljós- myndabakteríunni á öðru ári sínu í LHÍ og byrjaði þá að taka mynd- ir á filmu og hefur að eigin sögn ekki hætt að mynda síðan þá. Jó- hannes tekur einungis myndir á filmuvélar og viðurkennir að það geti verið afskaplega dýrt áhuga- mál. „Jú, þetta kostar sitt. Ætli ég hafi ekki tekið yfir þúsund film- ur á þessum fimm árum og eytt kannski um tveimur og hálfri milljón í filmur og framköllunar- kostnað. Ég á orðið ótrúlega stórt safn af myndum og er um þess- ar mundir að leggja drög bæði að ljósmyndabók sem mig langar að gefa út í sumar og sýningu tengda henni.“ Jóhannes segir það heldur tímafrekt starf að velja ljósmyndir í bókina og dvaldi hann nýverið í Hrísey í heila viku til að sinna því verkefni. „Ég fór þangað því þar var ekkert internet til að stela at- hyglinni. Ætli ég þurfi ekki að fara aftur seinna í sumar til að fá frið til að klára bókina. Ég býst við að hún verði um fimm hundruð síður og byggist upp þannig að það verða um átta til sextán myndir úr hverjum mánuði ársins allt frá árinu 2005,“ segir hann. MYNDAR ALLT Jóhannes mundar vélina ekki að- eins til að mynda næturlífið í Reykjavík, hann hefur einnig mik- inn áhuga á að mynda ýmiss konar borgarlandslag auk þess sem hann hefur reynt fyrir sér sem tískuljós- myndari. „Mér finnst jafn gaman að mynda borgarlandslag og að mynda fólk. Menn verða kannski meira varir við djammmyndirn- ar því þær eru mikið á Netinu, en ég er alveg jafn mikið í hinu og hef til dæmis mjög gaman af því að mynda skrítin skilti, bláa bíla og annað sem mér finnst áhuga- vert.“ Inntur eftir því hvort fólk taki því illa að það sé myndað á skemmtistað segir Jóhannes svo ekki vera. „Flestir taka mjög vel í þetta. Ég hef meira að segja lent í því að menn hafi bankað í mig og beðið mig um að mynda sig þannig að mörgum virðist finn- ast það orðið eðlilegt að ég sé með myndavélina á djamminu,“ segir Jóhannes sem fer helst ekki út úr húsi án myndavélarinnar. „Það er fátt eins pirrandi og að rekast á flott myndefni einhvers staðar og vera ekki með myndavélina með sér. Þess vegna fer ég helst ekki út án þess að hafa hana meðferð- is. Auk þess þá neyðir myndavélin mann til að horfa öðruvísi á um- hverfi sitt, maður er stanslaust að leita að einhverju skemmtilegu til að mynda og oft eru það hlut- ir sem þú mundir undir venjuleg- um kringumstæðum bara ganga fram hjá.“ Þegar Jóhannes er spurður að því hvers vegna hann kjósi gamla filmuvél fram yfir starfræna myndavél segist hann vera hrif- inn af hinni hráu áferð sem hlýst af filmunni. „Ég hef alveg átt staf- ræna myndavél en gallinn var að þá tók ég allt að sjö hundruð myndir á kvöldi og margar voru alls ekki góðar. Með filmuvél tek ég færri myndir og pæli betur í hverri mynd. Ég eignaðist reyndar starfræna myndavél síðasta laug- ardag, þá unnum við kærastan mín myndavél í ljósmyndasam- keppni á vegum Toyota. Það getur vel verið að ég prófi mig eitthvað áfram með hana, maður getur kannski ekki endalaust verið að snobba fyrir filmunni. Það eru örfáar alvöru framköllunarstof- ur eftir á höfuðborgarsvæðinu og maður getur ekki lengur gengið inn í sjoppu og keypt filmur. Ég fór inn í 10-11 um daginn og bað um filmu en afgreiðslumaðurinn, sem var um tvítugt, horfði bara á mig og var eitt stórt spurningar- merki.“ VINNUR MEÐ KÆRUSTUNNI Jóhannes er meðal þeirra íslensku listamanna sem taka þátt í verk- efninu Lykkjum – Prjónalist sem opnaði í Norræna húsinu í gær og myndar hann nokkur verk lista- konunnar Patriciu Waller ásamt kærustu sinni, Hildi Hermanns- dóttur. „Ilmur Dögg Gísladóttir, verkefnastjóri hjá Norræna hús- inu, hafði samband við mig og kærustu mína og bað okkur um að taka þátt í verkefninu. Við áttum að mynda stór hekluð skordýr í náttúrulegum híbýlum þeirra, finna heiti á þau, útskýra hvernig þau fjölga sér og hvað þau borða.“ Parið fékk skemmtilegar heklað- ar flugur til að ljósmynda og segir Jóhannes að verkefnið hafi verið mjög hressandi og að gaman hafi verið að vinna með kærustunni. „Við máttum túlka þessi dýr á hvern þann veg sem við vildum. Við Hildur fórum í ávaxtatorgið í Hagkaupum og náðum að taka nokkrar myndir af fígúrunum þar áður en öryggisvörðurinn kom æð- andi í áttina að okkur. Myndirnar verða svo sýndar ásamt skordýr- unum sjálfum í Norræna húsinu á meðan á sýningunni stendur.“ Hann bætir við að gaman hafi verið að vinna verkefnið með Hildi og telur að þetta verði ekki í síð- asta sinn sem þau vinni saman. MISSTI AF ÍSLENSKU SUMRI Jóhannes segist hafa mikinn áhuga á tískuljósmyndun og tekur gjarnan að sér slík verk- efni. „Ég hélt einu sinni að ég vildi starfa sem tískuljósmyndari. Ég ákvað að fara til New York og vinna sem aðstoðarmaður Magn- úsar Unnars tískuljósmyndara og fá smá nasaþef af bransanum. Ég fór tvisvar til New York og dvaldi í þrjá mánuði í senn og þó mér hafi þótt þetta mjög spennandi þá komst ég að því að þetta var kannski ekki alveg það sem ég vildi gera. Ég dvaldi meðal ann- ars í New York síðasta sumar og fannst eiginlega of heitt og lítið um að vera. Mér fannst líka leið- inlegt að hafa misst af sumrinu hér heima, því þá næ ég oft bestu myndunum mínum og hlakka þess vegna mikið til sumarsins núna,“ segir hann. HELST VEL Í HENDUR Jóhannes hefur starfað sem graf- ískur hönnuður undanfarin ár og vinnur nú hjá Hvíta húsinu. Hann segir grafíska hönnun og ljósmyndun haldast vel í hendur og segir hönnunina engu minna áhugamál en ljósmyndunina. Spurður út í framtíðaráform sín segist Jóhannes lengi hafa geng- ið með þann draum að gefa út tímarit. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á blaðaútgáfu og mig hefur lengi langað til að gefa út götublað sem fjallar um það sem er að ger- ast í listalífinu hér á Íslandi,“ segir Jóhannes að lokum. MYNDAR ALLT SEM FYRIR AUG Jói Kjartans Skilur helst aldrei við sig myndavélina af ótta við að missa af góðu myndefni. Það er fátt eins pirrandi og að rekast á flott myndefni einhvers staðar og vera ekki með myndavélina með sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.