Fréttablaðið - 18.06.2010, Side 2
2 18. júní 2010 FÖSTUDAGUR
FLUGVÉLAR Í BIÐSTÖÐU Batahorfur urðu
að engu. NORDICPHOTO/AFP
ÍTALÍA, AP Alþjóðasamtök flug-
vallarrekenda, API, segja tap
flugvalla í Evrópu vegna ösku-
skýsins frá Eyjafjallajökli nema
allt að 300 milljónum evra, en
það samsvarar um það bil 47
milljörðum króna.
Samtökunum reiknast til að
flugvellir í Evrópu hafi orðið
af 17 milljónum farþega þessar
vikur sem eldgosið truflaði flug-
umferð. Þar með hafi batahorf-
ur í rekstri flugvallanna í reynd
orðið að engu, en á fyrsta árs-
fjórðungi hafði farþegum fjölgað
um 5,2 prósent. - gb
Flugvellir í Evrópu:
Milljarðatap
vegna ösku
ELDGOS Stórlega hefur dregið úr
hæð gufumakkarins úr Eyja-
fjallajökli, en hann nær nú ein-
ungis 100 metra hæð.
Til samanburðar fór mökkur-
inn í rúmlega tveggja kílómetra
hæð í lok maí.
Hvorki eðjuflóð né gjóskufall
hafa mælst á síðustu dögum.
Hækkun á vatnsborði í gígnum
hefur líklega ekki verið meiri en
einn til tveir metrar. Nái yfirborð
að hækka um meira en tuttugu
metra frá því sem nú er, hafa
safnast um þrjár milljónir rúm-
metra af vatni í gíginn.
- sv
Eldgosið í Eyjafjallajökli:
Mjög lítil virkni
SPURNING DAGSINS
FJÖLMIÐLAR Falin skilaboð um að
Jón Gnarr verði ráðinn af dögum
má finna í svokallaðri orðaleit nýj-
asta heftis tímaritsins Vikunnar
sem kom út á miðvikudag. „Gnarr
verður skotinn“ fullyrðir orðaleit-
in í þriðju neðstu línu. Setningin
er ekki meðal uppgefinna leitar-
orða.
Lögreglunni
hafði ekki bor-
ist tilkynning
um morðhótun
vegna þraut-
arinnar þegar
Fréttablaðið
hafði samband
við Geir Jón
Þórisson yfir-
lögregluþjón í
gær. „Þetta er
eitthvað nýtt,
sem ég kann-
ast ekki við að
hafa séð áður,
að svona hótun
sé falin í texta
af þessu tagi.
Er hægt að
taka þessu sem
hótun? Ég átta
mig ekki alveg
á þessu,“ segir Geir Jón.
„Yfirleitt er þetta borið þannig
fram að tilgangurinn er að skelfa
– að láta vita með óyggjandi hætti
að eitthvað standi til – til að skapa
ókyrrð,“ segir Geir Jón. „En allt
sem við fáum í okkar hendur skoð-
um við rækilega, athugum bak-
grunninn og skoðum hvort eitt-
hvað mark sé á takandi,“ bætir
hann við.
Elín Arnar, ritstjóri Vikunnar,
sem var yfirlýstur stuðningsmað-
ur Besta flokksins fyrir
borgarstjórnarkosning-
arnar, segist þess hins
vegar fullviss að hugur
fylgi ekki máli hjá höf-
undi orðaleitarinnar.
Nýbakaður borgarstjóri
hafi enga ástæðu til að
óttast óðan þrautasmið.
Henni kæmi ekki á
óvart þótt höfundurinn
hefði sjálfur kosið Jón
Gnarr í nýafstöðnum kosningum.
„Sá sem býr til þessar þraut-
ir hjá okkur er mikill húmoristi.
Hann er alltaf með eitthvað svona
grín fyrir sjálfan sig. Það hefur
enginn fattað það hingað til,“
segir Elín.
Hún frétti ekki af málinu fyrr
en eftir að blaðið kom úr prent-
un. „Mér finnst þetta fara aðeins
yfir strikið, ég
verð nú að við-
urkenna það. En
er Gnarr ekki
þekktur fyrir að
fara yfir strikið
líka? Þannig að
þetta er kannski
bara viðeigandi.“
Ekki náðist í Jón
Gnarr vegna máls-
ins í gær.
stigur@frettabladid.is
Gnarr hótað lífláti
í orðaleit Vikunnar
Finna má setninguna „Gnarr verður skotinn“ í orðaþraut í Vikunni. Málið
verður skoðað rækilega, segir yfirlögregluþjónninn Geir Jón Þórisson. Ritstjóri
Vikunnar segir enga alvöru fylgja hótuninni. Höfundurinn sé mikill húmoristi.
GEIR JÓN
ÞÓRISSON
ELÍN ARNAR
GNARRVERÐURSKOTINN Þessi dulda hótun veldur lögreglunni heilabrotum.
Mér finnst þetta fara
aðeins yfir strikið, ég
verð nú að viðurkenna það.
ELÍN ARNAR
RITSTJÓRI VIKUNNAR
Eggert, ertu þá búinn að ná
hærra en bræður þínir?
„Já, það má segja að ég sé bókstaf-
lega búinn að toppa þá. En ekki á
íþróttasviðinu.“
Knattspyrnukappinn Eggert Stefánsson
hefur lagt takkaskóna á hilluna og gerst
flugfreyja. Eggert er bróðir handbolta-
stjörnunnar Ólafs Stefánssonar og
körfuknattleiksmannsins Jóns Arnórs
Stefánssonar.
ÍSRAEL, AP Ísraelsstjórn ákvað á
fimmtudag að létta aðeins á ein-
angrun Gasasvæðisins.
Meðal annars verði framvegis
heimilt að flytja matvæli þang-
að án takmarkana og eitthvað af
byggingarefnum, þótt áfram verði
takmarkanir á innflutningi bygg-
ingarefna af ótta Ísraela við að
Gasabúar noti þau til að styrkja
hernaðarmannvirki.
Ísrael tók þessa ákvörðun eftir
að hafa ráðgast við bandaríska
og evrópska embættismenn. Viku
áður hafði Barack Obama Banda-
ríkjaforseti sagt að einangrun
Gasa geti ekki staðist til lengdar.
Hjálparsamtök ætla innan tíðar
að senda annan skipaflota með
hjálpargögn til Gasa. - gb
Ísraelar gefa að hluta eftir:
Draga úr ein-
angrun á Gasa
SVÍÞJÓÐ, AP Tignir gestir streyma
til Stokkhólms þar sem haldið
verður konunglegt brúðkaup á
morgun. Viktoría krónprinsessa
og einkaþjálfari hennar, Daniel
Westling, hyggjast ganga í það
heilaga í dómkirkjunni, sem nýbú-
ið er að gera lagfæringar á.
Von er á nærri þúsund gestum
og ekkert verður til sparað, þrátt
fyrir að deilur hafi kviknað um
íburðinn.
„Þetta verður stærsta brúðkaup-
ið sem haldið hefur verið í Evrópu
í langan tíma,“ segir Roger Lund-
gren, sérfræðingur í konungsfjöl-
skyldum. „Allir ætla að koma.“ - gb
Svíar undirbúa brúðkaup:
Von er á nærri
þúsund gestum
VIKTORÍA OG DANÍEL Eldri systirin geng-
ur í hjónaband. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL „Það er full ástæða til
þess að horfa björtum augum fram
á veginn 17. júní árið 2010,“ sagði
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra í þjóðhátíðarávarpi sínu
í gær.
Jóhanna minntist ársgamalla
orða sinna um að glíman við efna-
hagsvandann væri í raun ný sjálf-
stæðisbarátta og taldi upp þá
áfanga sem náðst hafa í endur-
reisninni á liðnu ári. Nefndi hún
meðal annars að fjármálakerfið
hefði verið endurreist og því mót-
aður heilbrigður lagalegur grund-
völlur, hallinn á ríkissjóði væri
umtalsvert minni en áætlanir
gerðu ráð fyrir, atvinnulífinu hafi
verið haldið gangandi og að vel-
ferðarþjónustan hafi verið varin
eins og kostur sé.
Jóhanna fjallaði um náttúru og
auðlindir landsins og sagði að sér
væri efst í huga sá samtakamátt-
ur sem þjóðin hefði sýnt við nýleg
eldsumbrot. Hún sagði Ólaf bónda
á Þorvaldseyri vera táknmynd
Íslendinga sem hefðu sigrast á
búsifjum, sigrast á náttúruöflum
og sigrast á tímabundnu mótlæti.
Jóhanna minntist á stöðu stjórn-
málanna á Íslandi í kjölfar sveit-
arstjórnarkosninganna. „Vitnis-
burður okkar í framtíðinni mun
að mínu mati fyrst og fremst ráð-
ast af því hvernig okkur, kjörnum
fulltrúum, tekst að vinna úr þess-
ari stöðu,“ sagði Jóhanna.
Þá fjallaði Jóhanna um rann-
sóknarskýrslu Alþingis og stjórn-
lagaþing og taldi mikilvægi hvors
tveggja afar mikið. - mþl
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var full bjartsýni í þjóðhátíðarávarpi sínu:
Full ástæða til bjartsýni
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Gagnrýna refsiaðgerðir
Rússnesk stjórnvöld fóru í gær hörð-
um orðum um refsiaðgerðir gegn
Íran, sem bæði Bandaríkin og Evrópu-
sambandið hafa boðað upp á eigin
spýtur. Rússar segja þetta geta dregið
úr samstarfsvilja þeirra við Vesturlönd
um málið.
RÚSSLAND
ELDSVOÐI Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað út um þrjú leytið í gær vegna
bruna á bílaverkstæði að Skemmuvegi 24 í
Kópavogi.
Kviknað hafði í bíl inni í húsinu og hafði
eldurinn aðeins náð að breiðast út. Slökkvi-
liðið mætti snemma á staðinn og reykkafar-
ar fóru inn í húsið til að slökkva eldinn sem
tókst án mikilla vandræða. Bíllinn eyðilagð-
ist og einhverjar reykskemmdir urðu inn-
anhúss. Auk þess sprungu rúður í húsinu en
engin slys urðu á fólki.
Í fyrradag kviknaði í rútu við Smiðju-
veg í Kópavogi, stutt frá bílaverkstæðinu
sem brann í dag. Ekki er vitað hvort málin
tengjast. - mþl
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út að Skemmuvegi í Kópavogi í gær:
Kviknaði í bíl á bílaverkstæði
SLÖKKVILIÐIÐ Á VETTVANGI Greiðlega gekk að slökkva eldinn