Fréttablaðið - 18.06.2010, Side 6
6 18. júní 2010 FÖSTUDAGUR
BYGGÐAMÁL Gísli Már Gíslason, for-
maður Bjargtanga – félags landeig-
enda og sumarbústaðaeigenda á
Hvallátrum, segir félagið vera mjög
hlynnt endurbótum á Látrabjargi en
segir ómögulegt að loka því.
„Þetta væri eins og að loka Gull-
fossi,“ segir Gísli. „Þetta snýst um
að fræða fólk um hætturnar en ekki
banna því að skoða náttúruminjar.“
Eitt varúðarskilti er á svæðinu og
setti félagið það upp til aðvörunar
fyrir ferðamenn. „Við erum tilbún-
ir að skoða alla möguleika til þess
að gera svæðið sem öruggast,“ segir
Gísli.
Þingsályktunartillaga um frið-
lýsingu Látrabjargs var lögð fram
á Alþingi árið 2003. Þetta er mesta
fuglabjarg í N-Atlantshafi og þar
er stærsta álkubyggð í heimi. Jafn-
framt vex á svæðinu sjaldgæf jurt,
bjargstrý, sem hefur aðeins fundist
á tveimur stöðum á landinu. Ekki
hefur svæðið enn verið friðlýst.
Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri
laga og stjórnsýslu hjá Umhverfis-
stofnun, segir að það sé vissulega
ástæða til að tryggja öryggi ferða-
manna á öllum stöðum á landinu
sem þykja áhugaverðir.
„Það er verið að vinna í málinu
og vonandi gengur það í gegn á
næstu misserum,“ segir Sigrún.
- sv
Formaður landeigenda í Hvallátrum hlynntur endurbótum á Látrabjargi:
Ekki hægt að loka bjarginu
LUNDI Ein af fuglategundunum sem
verpa í Látrabjargi.
BRUNI Slökkvilið Skagafjarðar
var kallað að hesthúsi á Nöfun-
um í hádeginu í gær.
Þegar slökkviliðið kom á stað-
inn var tölverður eldur í húsinu.
Greiðlega gekk að slökkva eld-
inn.
Eldsupptök eru ókunn. Að því
er fram kemur á fréttavef Feyk-
is voru eigendur hússins staddir
þar fyrr um morgunin en þeir
urðu ekki varir við neitt.
Ekki var rafmagn í húsinu
en timbrið í því gamalt. Þá var
þurrt hey í húsinu.
Slökkvilið Skagafjarðar:
Eldur kviknaði í
gömlu hesthúsi
ATVINNUMÁL Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
og Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins hafa undirritað samkomu-
lag um vinnustaðaskírteini og
framkvæmd eftirlits á vinnustöð-
um.
Samkomulagið byggir á lögum
frá síðasta mánuði og veitir full-
trúum samtaka vinnumarkaðarins
heimild til að fara í eftirlitsheim-
sóknir á vinnustaði atvinnurekenda
og ganga úr skugga um að atvinnu-
rekandi og starfsmenn starfi í
samræmi við reglur.
Samkomulagið tekur gildi 15.
ágúst næstkomandi. - jab
Vinnustaðaskírteini ASÍ og SA:
Heimilt að fara
í heimsóknir
LÖGREGLUMÁL Erill var hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu í fyrri-
nótt. Umferðarslys varð á Salavegi
í Kópavogi um fjögur leytið. Þar
valt bifreið með þeim afleiðingum
að annar tveggja farþega í bílnum
festist undir bifreiðinni. Lögreglu
og sjúkraflutningamönnum tókst
þó fljótt og örugglega að ná honum
undan bílnum.
Þá varð annað umferðarslys á
Arnarnesvegi á sjöunda tímanum
í gærmorgun. Þar valt bifreið og
var einn fluttur á slysadeild.
Fimm voru teknir fyrir ölvunar-
akstur og tveir undir áhrifum
fíkniefna.
Lögreglan í höfuðborginni:
Lá fastur undir
bíl eftir veltu
Horfðir þú á beina útsendingu
frá eldhúsdagsumræðum?
Já 18%
Nei 82%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Varpaði ákvörðun Evrópusam-
bandsins skugga á þjóðhátíðar-
gleði þína?
Segðu skoðun þína á visir.is
EVRÓPUSAMBANDIÐ Jose Manuel
Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins
(ESB), segir að engir sérstakir
fyrirvarar hafi verið settir varð-
andi Icesave, í tengslum við
samþykkt sambandsins á því að
hefja aðildarviðræður við land-
ið. Umsókn Íslands var formlega
samþykkt á leiðtogafundi ESB í
Brussel í gær.
„Eins og í aðdraganda allra
aðildarviðræðna voru viðræður
við Íslendinga samþykktar með
nokkrum skilyrðum,“ sagði Barr-
oso þegar fréttastofan spurði
hann út í viðræðurnar. Íslending-
ar verða að hlíta sömu almennu
skilyrðunum og aðrir. Hann vís-
aði hins vegar einnig til úrskurð-
ar eftirlitsstofnunar EFTA frá
því í maí. En þar kemur fram að
Íslendingum beri að greiða Icesa-
ve-reikningshöfum lágmarks-
tryggingu samkvæmt tilskipun
ESB um innstæðutryggingar.
Barroso sagði leiðtoga sam-
bandsins hafa verið mjög jákvæða
í garð umsóknar Íslands á leið-
togafundinum í gær. Allir þeir
fyrirvarar sem settir hefðu verið
rúmuðust innan samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið
og þeirra skilmála sem áður eru
nefndir. Hann vonaðist til að við-
ræður gætu hafist sem fyrst en á
endanum yrðu Íslendingar að gera
það upp við sig í þjóðaratkvæða-
greiðslu hvort þeir vildu ganga í
ESB.
Í sama streng tók Lars Lökke
Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur. Hann sagðist fagna
aðild Íslands að sambandinu og
einhugur ríkti um að ganga til
viðræðna við þá innan leiðtoga-
ráðs þess. „Íslendingar geta nú
nýtt sér alla sérfræðiþjónustu
ESB í samningaferlinu og ég tel
að viðræðurnar geti gengið hratt
fyrir sig,“ sagði forsætisráðherr-
ann.
Tæpt ár er frá því Alþingi sam-
þykkti þingsályktunartillögu frá
Össuri Skarphéðinssyni utanrík-
isráðherra um að sótt yrði um
aðild. Stefán Haukur Jóhannes-
son formaður samninganefndar
Íslands og sendiherra í Brussel,
segir að frá og með gærdegin-
um sé Ísland ekki umsóknarríki
heldur kandídat. Samninganefnd-
in vinni eftir þingsályktuninni
og greinargerð hennar. Allt verði
gert til að tryggja hagsmuni
Íslands í viðræðunum.
Stefán Haukur vildi engu spá
um það hversu langan tíma við-
ræðurnar muni taka. Næsta skref
sé að utanríkisráðherra fundi með
utanríkisráðherra Belgíu eftir
að Belgar taka við forsæti í ESB.
Eftir það taki við nokkrir mán-
uðir þar sem rýnt verði í löggjöf
Íslands og ESB og þær bornar
saman til að finna hvar þurfi að
semja um breytingar. Eiginlegar
samningaviðræður ættu að geta
hafist á fyrri hluta næsta árs.
Stefán Haukur sagðist reikna
með að jöfnum höndum yrði
unnið í erfiðum málum og þeim
sem væntanlega yrðu auðveldari
úrlausnar. Í Brussel er talað um
að Íslendingar gætu orðið sam-
ferða Króatíu inn í sambandið
að því gefnu að þjóðin samþykki
aðildarsamning í þjóðaratkvæða-
greiðslu eins og Alþingi setur sem
skilyrði fyrir aðildinni. Stefán
Haukur sagði ESB gjarnan vilja
taka fleiri en eitt land inn í einu
en vildi ekkert segja um hvort
það yrði raunin.
hmp@stod2.is
Engir sérstakir fyrirvarar
Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu var formlega samþykkt án ágreinings á leiðtogafundi
sambandsins í gær. Aðalsamningamaður Íslands vill engu spá um hve langan tíma viðræðurnar taka.
EVRÓPUSAMBANDIÐ José Luis
Rodríguez Zapatero, forsætisráð-
herra Spánar, segir Spánverja ekki
vera á vonarvöl efnahagslega eins
og orðrómur hafi verið um í fjöl-
miðlum að undanförnu. Þvert á
móti hafi leiðtogafundur ESB sam-
þykkt að öll aðildarríki sambands-
ins færu sömu leið og Spánverjar
til að auka trú markaðarins á efna-
hagslífi Evrópu.
Nicolas Sarkozy Frakklandsfor-
seti tók undir það, að Spánn eigi
ekki í vanda. Um það séu allir 27
leiðtogar Evrópusambandsland-
anna sammála: „Við teljum engan
vanda vera á ferðinni, og það
er sameiginleg greining okkar
allra.“
Seðlabanki Spánar ákvað á mið-
vikudag að allar helstu fjármála-
stofnanir landsins skuli ganga í
gegnum áreynslupróf. Það próf
verði gagnsætt og niðurstöðurn-
ar gerðar opinberar. Á leiðtoga-
fundi ESB í gær sagði Zapatero að
orðrómur hafi verið í alþjóðlegum
fjölmiðlum um að Spánn stæði illa
fjárhagslega. Þetta væri rangt.
Fjölmiðlar og fjármálamarkaður-
inn ættu að hlusta frekar á spænsk
stjórnvöld í stað þess að eltast við
óstaðfestar fréttir.
„Leiðtogafundurinn samþykkti
einróma á fundi sínum í gær að
fara sömu leið og spænski seðla-
bankinn ákvað að fara. Allar helstu
fjármálastofnanir aðildarríkjanna
27 verða settar í áreynslupróf. Það
ferli verður opið og niðurstöðurnar
gerðar opinberar,“ sagði spænski
forsætisráðherrann. Niðurstöður
þessa áreynsluprófs ættu að liggja
fyrir seinni partinn í júlí.
Zapatero á fund með Domin-
ique Straus-Khan, framkvæmda-
stjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,
í dag. Þegar hann var spurður
hvort tilgangur fundarins væri að
leita aðstoðar sjóðsins sagði hann
að um reglubundinn samráðsfund
væri að ræða. „Enda hefur Spánn
allt frá upphafi kreppunnar ekki
þurft að leggja fjármálastofnunum
til stórar fjárhæðir eins og mörg
önnur ríki hafa þurft að gera,
nema í undantekningartilfellum
varðandi nokkur mjög smá fjár-
málafyrirtæki. Þvert á móti hefur
Spánn lagt öðrum þjóðum eins og
Grikkjum lið með fjárframlögum,“
sagði Zapatero í Brussel í gær.
- hmp
Niðurstöður álagsprófs fjármálastofnana Evrópusambandsríkjanna verða birtar:
Spánn er ekki í fjárhagsvanda
ZAPATERO MÆTIR TIL LEIÐTOGAFUNDARINS Hann segir Spán ekki standa illa fjár-
hagslega. MYND/HEIMIR MÁR
DAVID CAMERON Á FYRSTA LEIÐTOGAFUNDI SÍNUM Forsætisráðherra Bretlands gæti
haft mikil áhrif á samningaviðræður ESB og Íslands. MYND/HEIMIR MÁR
Eins og í aðdraganda
allra aðildarviðræðna
voru viðræður við Íslendinga
samþykktar með nokkrum
skilyrðum.
JOSE MANUEL BARROSSO
FORSETI FRAMKVÆMDASTJÓRNAR ESB
KJÖRKASSINN