Fréttablaðið - 18.06.2010, Side 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Við erum með salat, brauð og
svo pönnukökur í eftirrétt. Þetta
er sumarsalat en á sumrin er gott
að borða eitthvað annað en kjöt
og fisk,“ segir Gígja Svavarsdótt-
ir, skólastjóri Tungumálaskólans.
„Við nemendur og kennarar borð-
um alltaf saman á fimmtudög-
um og þá reynum við að elda eitt-
hvað íslenskt. Við reynum að hafa
fulla máltíð þannig að við borð-
um í klukkutíma og þá er verið að
spjalla og læra íslensku í tengslum
við það.“
Gígja segir að nýrnabaunirnar í
salatinu hafi slegið í gegn. „Fyrst
fannst fólki mjög skrýtið að fá ekki
salatolíu eða eitthvað út á,“ segir
Gígja og bætir við að dressing-
in hafi verið á baununum en þær
eru marineraðar áður. „Ég veit
að kennararnir mínir sem höfðu
aldrei smakkað salatið fyrr gerðu
það þegar þau komu heim.“
Gígja segir að uppskriftin að
brauðbollunni sé fengin frá mann-
inum hennar, Agli Gunnarssyni,
sem er einn af stofnendum skól-
ans. Skólinn er starfræktur á heim-
Læra íslensku við borðið
Gígja Svavarsdóttir var grænmetisæta í mörg ár og býr því til sumarlegt salat eftir sinni eigin uppskrift.
Hún ákvað að hætta að vera grænmetisæta þar sem henni fannst oft flókið að fara í matarboð.
Gígja segist eitt sinn hafa verið grænmetisæta og býr því til sumarsalat með marineruðum nýrnabaunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Salat
1 poki nýrnabaunir
1 haus jöklasalat
2 paprikur
Tómatar eftir smekk
5 hvítlauksrif
2 dl ólívuolía
Salt og pipar
Leggið nýrnabaunirnar
í bleyti yfir nótt. Sjóðið
nýrnabaunirnar í 45
mínútur.
Pressið hvítlauksrif og
blandið saman við
ólívuolíu. Kryddið með
salti og pipar. Hellið yfir
nýrnabaunirnar. Látið
standa í einn klukku-
tíma.
Skerið jöklasalat, papr-
ikur og tómata. Hellið
nýrnabaununum yfir sal-
atið og berið fram með
ólívuolíu, salti og pipar.
Brauðbollur
2 bollar hveiti
1 bolli heilhveiti
1,5 bolli vatn
2,5 msk. sykur
1 tsk. salt
12 g þurrger
Hnoðið deigið. Mótið
litlar bollur og setjið á
bökunarplötu. Látið hef-
ast í 25 mínútur undir
viskastykki. Penslið
bollurnar með mjólk
og stráið sesamfræjum
eða sólblómafræjum yfir
bollurnar. Bakið í þrjátíu
mínútur.
SUMARSALAT GÍGJU
með brauðbollum Fyrir 8
ili þeirra hjóna. „Við búum á neðri
hæðinni en deilum eldhúsi og stofu.
Hugmyndin er að missa ekki heim-
ilislega andrúmsloftið. Við höfum
náð þessu afslappaða andrúmslofti
og stundum gleymir fólk að það er
að læra og þá er markmiðinu náð.“
martaf@frettabladid.is
SUMARSÓLSTÖÐUGANGA á Snæfellsjökul
verður farin í kvöld á vegum Ferðafélags Íslands. Brott-
för er frá Mörkinni 6 klukkan 17 og ekið vestur að jökli
þar sem gangan hefst klukkan 21. Upplýsingar á fi.is.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
4ra rétta
Góð tækifæ
risgjöf!
Kryddlegin bleikja
með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu
Humarsúpa
rjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsins
það ferskasta hverju sinni; útfærður
af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvenna
með steinseljurótarmauki, aspas, rófu,
soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapioca
með steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki