Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.06.2010, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 18.06.2010, Qupperneq 26
2 föstudagur 18. júní núna líf í miðbænum augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 þetta HELST Vampírufár á 17. júní Fólk fagnaði þjóðhátíðardegin- um með mismunandi hætti í gær. Á meðan sumir fóru í skrúðgöngu og veifuðu íslenska fánanum söfn- uðust heitir aðdáendur True Blood- þáttaraðarinnar saman á skemmti- staðnum Austur til að fagna því að þriðja sería þessa vinsæla vamp- írudrama er að hefjast. Það var tískupésinn Stefán Svan, hin íðil- fagra dj Sóley og dansdrottningin Aðalheiður Sveins- dóttir, sem stóðu fyrir kvöldinu. Sér- stök tilboð voru á blóðugum steikum, Bloody Mary og rauð- víni. Að sýningu lok- inni tóku plötusnúð- arnir Jón Atli og Margeir völdin og héldu uppi trylltri stemn- ingu. KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, STARFSMAÐUR SÍM Helgin mín verður lituð af heimkomu Sigríðar, systur og gleðigjafa, og afkvæmis henn- ar. Vinnan göfgar og gleður og því ætla ég að vinna á föstudaginn, svo sinna barni og fara í balletttíma. Pabbahelgi á Kaffibarnum hljómar freistandi á laugardaginn fyrir hressa danspésa. Sunnudagar fara svo í menningarrölt í miðbænum og heimsóknir. V afalaust hefur það ekki farið fram hjá sí svöngum og kaffiþyrstum miðbæjarmús- um að nýtt kaffihús hefur verið opnað á Týs- götunni. Fólkið á bak við það er pólska kær- ustuparið Agnieszka og Stanislaw. „Það hefur verið draumur minn alla ævi að opna mitt eigið kaffihús,“ segir Agnieszka, á meðan hún býr til kaffibolla handa blaða- konu, með fallegu blómamunstri í froðunni. Það er greinilegt að hún kann til verka, enda hefur hún unnið á veitinga- og kaffihúsum víða, meðal annars á kaffihúsinu Tíu dropum á Laugaveginum í þrjú ár þaðan sem margir muna eftir henni. Agnieszka kom til Íslands í maí árið 2007. „Ég var að elta ástina í lífi mínu, en Stanislaw kom hingað ári á undan mér. Þá vissi ég ekki margt um Ísland en féll fljótt fyrir því. Þetta er mitt heim- ili núna.“ Stolt Agnieszku og ástríða eru kökurnar hennar, en allt bakkelsið sem til sölu er á kaffi- húsinu bakar hún sjálf. Og það eru ekki bara kræsingarnar sem eru heimagerðar. Fallegar myndir á veggjunum eru úr smiðju Stanislaws, sem einnig starfar sem ljósmyndari. Þau Agnieszka og Stanislaw eru enn að vinna í að innrétta staðinn, en þau leggja mikið upp úr því að hann hafi yfir sér persónulegan blæ. „Okkur langaði að opna stað sem væri hlýleg- ur. Við viljum að fólki líði svo vel hérna að það langi til að sitja hér í marga klukkutíma og sötra kaffið sitt,“ segir Agnieszka. Til þess að skapa þessa stemningu hafa þau meðal annars komið upp bókahillu, fullri af eftirlætisbókum parsins, en svo vill til að þau eru einnig bókasafnsfræðingar bæði tvö, svo bækurnar eiga vel við persónulega þemað. Agnieszka er himinlifandi með viðtökurn- ar fyrstu vikurnar. „Við höfum fengið jákvæð- ar og hlýlegar viðtökur. Flestir viðskiptavina okkar hingað til eru nágrannar okkar úr næstu húsum. Þeir hafa margir hverjir komið yfir, óskað okkur góðs gengis og jafnvel fært okkur blóm. Þetta er ein ástæðan fyrir því hvað ég elska Ísland mikið, hvað fólkið er indælt og vinalegt.“ Nafn kaffihússins er nokkuð sérstakt. C is for Cookies. Hvaðan kemur það? „Það er úr Prúðu- leikurunum! Kökuskrímslið syngur þetta lag. Ef ég er í vondu skapi spila ég bara þetta lag, syng með og þá verður allt gott aftur.“ - hhs Pólsku bókasafnsfræðingarnir Agnieszka og Stanislaw hafa opnað kaffihúsið C is for Cookie á Týsgötu: UNDIR ÁHRIFUM KÖKUSKRÍMSLISINS Fjölhæft par Agnieszka og Stanislaw opnuðu nýverið kaffihúsið C is for Cookie á Týsgötu, þar sem þeirra hand- bragð er að finna á öllu, allt frá kökunum til myndanna á veggjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sara María Júlíudóttir hefur opnað nýja tískuverslun við Laugaveg 12 ásamt Lindu Mjöll Þorsteinsdóttur. Sara María hætti með rekstur Nakta apans í janúar á þessu ári. Fríið stóð þó ekki lengi því hún hefur opnað verslunina Forynju ásamt Lindu Mjöll. „Þetta datt eig- inlega upp í hendurnar á mér. Mig hafði lengi langað að fara í rekst- ur með öðrum þannig að þegar þetta bauðst þá ákvað ég að slá til,“ segir Sara María og bætir við að verslunin þyki þó mjög ólík Nakta apanum, en þar verður að sjálfsögðu fáanleg hönnun eftir Söru Maríu sjálfa auk hárspanga frá Thelmu Design og fylgihluta frá Go With Jan. - sm Sara María og Linda Mjöll opna verslun: Lætur draum rætast SKRAUTLEG UNDIRFÖT Þessi fagra fyrirsæta var í dulargervi mótorfáks á alþjóðlegu undirfata- hönnunarkeppni Triumph sem haldin var í Mumbai á Indlandi á dögunum. MYND / GETTY Baráttutónleikar Tónleikar til styrktar Tónlistar- þróunarmiðstöðinni fara fram á tónleikastaðnum Sódómu í kvöld. Ókeypis er inn á tónleikana og ekkert aldurstakmark er á gesti. Meðal þeirra hljóm- sveita sem munu koma fram og þar með leggja TÞM lið eru Feldberg, Lay Low, Nolo, Bio gen og Sudd- en Weath- er Change. Tónleik- arnir hefj- ast klukkan 22.00. helgin MÍN Skemmtileg Forynja Sara María Júlíudóttir segir innviði verslunarinnar Forynju mjög skemmtilega. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.