Fréttablaðið - 21.06.2010, Qupperneq 2
2 21. júní 2010 MÁNUDAGUR
FÉLAGSMÁL „Eftir kreppuna er
mikið af fjölskyldufólki sem hefur
ekki efni á því að senda börnin sín á
leikjanámskeið,“ segir Lovísa Arn-
ardóttir verkefnastjóri um ókeyp-
is leikjanámskeið Rauða krossins.
Námskeiðin heita Gleðidagar – hvað
ungur nemur, gamall temur. Nafnið
er tilkomið af því að leiðbeinendur
á námskeiðinu eru að mestu leyti
eldri borgarar. Námskeiðin eru
haldin í samstarfi við Öldrunarráð
Íslands.
Námskeiðin voru haldin í fyrsta
skipti í fyrra og var hugmynd-
in sú að sameina kynslóðir og
miðla gömlum gildum og þekk-
ingu á milli þeirra. „Eldri borg-
ararnir miðla þekkingu til barn-
anna og kenna þeim alls konar
hluti,“ segir Lovísa. Fólkið fékk að
miklu leyti að ákveða sjálft hverju
það vill miðla og hefur dagskráin
verið fjölbreytt. „Hér er til dæmis
búið að kenna framsögn og ræðu-
mennsku, hnútabindingar og ljós-
myndun.“ Þá var farið í heimsókn
í hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í
Kópavogi auk þess sem farið er á
söfn. „Svo kennum við skyndihjálp
fyrir börn.“
Fyrsta námskeiðið var haldið
í Kópavogi í liðinni viku og gekk
mjög vel að sögn Lovísu. Í næstu
viku verður haldið námskeið á
Kirkjubæjarklaustri, því næst á
Álftanesi og að lokum í Mosfells-
bæ. Laus pláss eru á námskeiðin.
thorunn@frettabladid.is
Miðla þekkingu á
milli kynslóða
Rauði krossinn stendur fyrir ókeypis leikjanámskeiðum fyrir börn annað sum-
arið í röð. Eldri borgarar sjá að mestu leyti um að leiðbeina börnunum. Mark-
mið námskeiðanna er að miðla þekkingu og koma á tengslum milli kynslóða.
LEIKJANÁMSKEIÐIN Krakkarnir lærðu hina ýmsu hluti daginn sem ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði, svo sem hekl, prjón
og hnútabindingar. Hér eru þær Sóley og Guðrún ásamt leiðbeinendum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKEMMTANIR Erill var hjá lög-
reglunni á Akureyri um helgina.
Bíladagar voru haldnir þar í bæ
frá fimmtudegi til sunnudags.
Að sögn Guðmundar Svan-
laugssonar, varðstjóra á Akur-
eyri, var aukið við mannskap
fyrir helgina. Hann segir að sex
menn hafi verið teknir fyrir ölv-
unarakstur og einn fyrir vímu-
efnaakstur frá miðvikudags-
kvöldi og þar til í gærkvöldi.
Einnig er vitað um eina líkams-
árás sem ekki hefur enn verið
kærð. - mmf
Bíladagar á Akureyri:
Mikill erill hjá
lögreglunni
UMFERÐARSLYS Kona á sextugsaldri
lést eftir árekstur vélhjóls og jeppa
á þjóðveginum við bæina Litla- og
Stóra-Holt, skammt sunnan Gils-
fjarðarbrúar, síðdegis í gær.
Konan var í hópi vélhjólafólks
sem var á leið norður í átt til Vest-
fjarða. Á gatnamótunum við bæina
Litla- og Stóra-Holt ók jeppi í veg
fyrir hana. Vélhjól hennar skall á
jeppanum við afturhjól hans. Við
höggið snerist jeppinn og valt, en
ökumann og farþega hans sakaði
ekki.
Tilkynning um slysið barst lög-
reglu klukkan 17.30 í gærdag og
fóru lögreglumenn úr Búðardal og
Hólmavík á slysstað. Þyrla Land-
helgisgæslunnar var jafnframt
kölluð til og lenti við slysstað með
lækni, en lífgunartilraunir hans
báru ekki árangur.
Ekki er unnt að greina frá nafni
konunnar að svo stöddu. Hún var
erlend en búsett hér á landi. - hhs
Banaslys varð þegar bifhjól og jeppi skullu saman við Gilsfjörð á laugardag:
Kona á sextugsaldri lét lífið
BÚÐARDALUR Kona lést eftir árekstur
skammt sunnan Gilsfjarðarbrúar í gær-
dag. Lögreglumenn frá bæði Búðardal
og Hólmavík komu á slysstað.
BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórn-
völd stefna enn að því að hefja
brotthvarf bandaríska hersins frá
Afganistan í júlí á næsta ári.
„Það hefur ekkert breyst,“
sagði Rahm Emanuel, skrifstofu-
stjóri í Hvíta húsinu.
Robert Gates varnarmálaráð-
herra var þó heldur varkárari í
orðum, og sagðist ekki vita hve
hratt brottflutningurinn geti
gengið fyrir sig.
Hann sagði hernaðarsókn
Bandaríkjanna í suðurhluta
landsins hafa gengið hægar en
stefnt var að. Fyrr i þessum mán-
uði sagði Gates að þetta sumar
yrði Bandaríkjaher að sýna fram
á árangur. - gb
Stórsókn miðar hægt:
Stefnt að brott-
hvarfi að ári
ROBERT GATES Varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna. NORDICPHOTOS/AFP
NÁTTÚRA Skaftárhlaup hófst upp
úr hádegi í gær. Fylgst var með
framvindu þess á mælum Veður-
stofu Íslands, en enginn sérstakur
viðbúnaður var viðhafður af hálfu
lögreglu.
Íbúar efstu bæja í Skaftárdal
fóru þó af bæ til að lokast ekki
inni, að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli, þar sem oft hefur flætt í
kringum bæina í Skaftárhlaupum.
Þau eru nánast árlegur viðburður
og eiga upptök sín í Vatnajökli.
Fólk var beðið um að fara var-
lega í nágrenni árinnar og halda
sig fjarri upptökum hennar. - gb
Skaftárhlaup hófst í gær:
Enginn sérstak-
ur viðbúnaður
„Voru ungu brúðhjónin í
blóma lífsins?“
„Já. Þau eru innstillt á rómantíkina
og munu ekki þurfa aðstoð við að
vökva garðinn sinn.“
María Másdóttir blómaskreytir sá um
blómaskreytingar í brúðkaupi Viktoríu
krónprinsessu Svíþjóðar sem fram fór á
laugardag.
PÓLLAND, AP Niðurstaða forsetakosninganna í Pól-
landi í gær varð sú að eftir tvær vikur þarf að
greiða atkvæði á ný milli þeirra tveggja, sem flest
atkvæði hlutu.
Þeir eru Bronislaw Komorowski þingforseti,
sem hefur gegnt forsetaembættinu síðan Lech
Kaczynski fórst í flugslysi í apríl, og Jaroslaw
Kaczynski, sem er fyrrverandi forsætisráðherra
og eineggja tvíburabróðir hins látna forseta.
Átta aðrir frambjóðendur voru í kjöri, en þeir
falla nú brott.
Samkvæmt fyrstu útgönguspám hlaut Komor-
owski 45,7 prósent atkvæða og Kaczynski 33,2
prósent. Samkvæmt annarri útgönguspá hlaut
Komorowski 41,2 prósent en Kaczynski 35,8 pró-
sent. Opinber úrslit verða væntanlega birt í dag.
Útgönguspárnar sýna að í þriðja sæti kom fram-
bjóðandi vinstri- og miðjumanna, Grzegorz Napi-
eralski, sem fékk um 13,5 prósent. Stjórnmála-
skýrendur segja afar ólíklegt að þeir sem kusu
hann muni greiða hægrimanninum Kaczynski
atkvæði sitt.
- gb
Kjósa þarf aftur milli tveggja efstu frambjóðenda til forseta Póllands:
Enginn fékk meirihluta
BRONISLAW KOMOROWSKI Þykir enn sigurstranglegur fyrir
seinni umferð kosninganna. NORDICPHOTOS/AFP
VEIÐI Tveir stórir laxar, 22 hæng-
ur og 20 punda hrygna, veidd-
ust í Laxá í Aðaldal í morgun, á
fyrsta veiðidegi árinnar. Veiði-
maðurinn var Viðar Tómasson
og veiddi hann á rauða Francis-
flugu. Báðum löxum var sleppt
aftur.
Nokkrir leigutakar eru að
veiðinni í Laxá í Aðaldal en
Róbert Brink, hjá Laxárfélaginu
sem hefur haft meirihluta árinn-
ar á leigu síðastliðin sextíu ár,
segir sumarið líta vel út og byrj-
unina lofa góðu. „Það er þokka-
lega bókað og um tíu manns að
veiða á okkar svæði núna. það
hefur verið mjög hlýtt og gott
veður undanfarið en það hefur
ekki staðið fyrir veiðinni.“ - jma
Góð byrjun á laxveiðisumri:
Laxá í Aðaldal
opnaði í gær
TVEIR STÓRIR Löxunum sem veiddust í
gærmorgun var báðum sleppt aftur.
SPURNING DAGSINS
EGYPTALAND, AP Hópur austur-
rískra fornleifafræðinga við störf
í Egyptalandi hefur náð góðum
árangri með því að nota ratsjár-
myndatöku til að ákvarða stað-
setningu 3.500 ára gamallar höf-
uðborgar Egyptalands.
Á ljósmyndunum má sjá útlín-
ur gatna, húsa og trúarhofa sem
faldar eru undir grænum ekrum
og nútímabæjum á óshólmum
Nílar.
Talið er að svæðið geti verið
hluti af Avaris, sumarhöfuðstað
Hyksosa sem réðu Egyptalandi á
árunum 1664 til 1569 fyrir Krist.
- hhs
Vísindamenn í Egyptalandi:
Fornrar borgar
leitað með ratsjá