Fréttablaðið - 21.06.2010, Page 20

Fréttablaðið - 21.06.2010, Page 20
 21. JÚNÍ 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Guesthouse 1x6 er heillandi gistihús sem Daníel Sigmunds- son og Linda Mjöll Stefáns- dóttir hafa í sameiningu komið á laggirnar í Keflavík, í litlu húsi við Vesturbraut 3. Daníel Sigmundsson er listsmiður Gistihússins 1x6 sem opnaði ný- verið í Keflavík en í því eru hús- gögn og jafnvel loftljós skorin út úr við. Linda Mjöll Stefánsdóttir gaf einnig ímyndunaraflinu laus- an tauminn við hönnun hússins en hún er leikmyndahönnuður. „Við sköpuðum gistihúsið úr alls kyns efnivið sem við endur- nýttum. Gömlum rafmagnskefl- um, brotnum flísum, málningu sem var lituð vitlaust hjá máln- ingarfyrirtækjum og því sett til hliðar – ég endurlitaði hana. Daníel vann með við sem hefur legið úti í 20 ár. Allt timbur sem notað er, er ein tomma sinnum sex að stærð, og einnig eru her- bergi gistihússins sex. Þaðan er nafn þess sem sagt komið,“ segir Linda Mjöll. Húsið við Vesturbraut er æv- intýraheimur og fyrir utan hefur Daníel hlaðið heitan pott úr sjáv- argrjóti. „Hugsunin á bak við þetta er ekki bara að bjóða upp á gistingu heldur að búa til smá íslenskt ævintýri, listaverk sem hægt er að labba inn í og okkur langar til að fólk eigi tíma þarna sem vekur með þeim orku og hugmyndir. Þetta er hugsað sem sælulind og friður fyrir fólk en við erum ekki með sjónvarp eða útvarp en nettenging er aðgengi- leg. Hollur morgunmatur er í boði, heimabakað brauð og við kveikjum smá eld eftir heitapott- inn á kvöldin.“ Þessa dagana er verið að setja upp sérherbergi fyrir börnin, þar sem þau geta jafnvel klifrað á veggjunum og Linda segir mikil- vægt að skilja ekki börnin útund- an í túrisma. „Fólk mun líka geta keypt hluti eftir Daníel, tekið til dæmis skúlptúr með sér heim.“ - jma Heilsulind og gisting í ævintýralegu umhverfi Gistihúsið stendur nálægt sjónum, í friðsælu og heilandi umhverfi. Erfitt er að sjá að mannshöndin hafi komið nálægt heita pottinum, sem hlaðinn er úr grjóti af Daníel Sigmundssyni. Herbergin eru sex talsins og nostrað við hvern hlut. Efniviðurinn er að megninu til endurnýttur. MYND/ÚR EINKASAFNI Á göngunum eru listrænir og flottir skúlptúrar. Sýning á hönnun Dóru Hansen og Heiðu Elínu Jónsdótt- ur stendur nú yfir í Aurum í Bankastræti 4. Guðbjörg Ingvarsdóttir, eigandi og fram- kvæmdastjóri Aurum, segir þetta í takt við þá stefnu að sýna verk eftir íslenska hönn- uði í versluninni. „Við verðum mánaðarlega með nýja sýningu á hönnun eftir Íslendinga og munum leggja áherslu á að sýna eitthvað nýtt úr þeirra smiðju. Rekaviðar- borðið og Útsaumskollurinn eftir Dóru og Heiðu er liður í þeirri stefnu,“ útskýrir hún og bætir við að með þessu móti sé aukið enn frekar við flóru Aurum. „Hingað til höfum við verið þekkt fyrir fallega skart- gripi, en við opnuðum síðan nýja hönnunar- og gjafavöru- verslun í mars á þessu ári.“ Sækir innblástur í menningararfinn Dóra Hansen og Heiða Elín Jónsdótt- ir frá eitt A Innanhúsarkítektum eru hönnuðir Útsaumskollsins. Hann er gataður í miðjunni og má nota götin til að sauma út í. Þannig ljær eigand- inn honum persónulegan svip og getur svo breytt til með því að rekja mynstrið upp og gera nýtt. Kollinn má einnig nota sem borð. ● RÓSAKLIPPINGAR Þær er best að framkvæma síðla vors en yfir sumarið er rétt að klippa sölnaða blómstilka niður að næsta sterklega brumi. Með klippingu er helst verið að stýra blómgun og auka hana eins og kostur er. Ef mikið er klippt af rósinni koma fá og stór blóm en ef styttra er klippt koma fleiri og minni blóm og þau verða auk þess fyrr á ferðinni. Tilgangur klippingar rósarunna er að halda ummáli hans í lág- marki án þess að forma hann sérstaklega og mikilvægt er að stýra vexti rósarunna frá gönguleiðum fólks þar sem rósir eru stingandi plöntur. Heimild: www.gardabaer.is. Borðið Ferðalag eftir Dóru, gert úr rekaviði og með útskornu mynstri. Hönnunin sækir innblástur til íslensks menningararfs því leik- ið er með samspil fortíðar og nútíðar, þar sem gömul handverkshefð mætir nútímatækni. Í sumum herbergjanna er náttúran flutt inn í hús með ljósmyndum eftir Þorstein Henn, sem ná flennistórar yfir veggina.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.