Fréttablaðið - 26.06.2010, Side 39
LAUGARDAGUR 26. júní 2010
„Í sumar er ég að reka þessi þrjú
kaffihús. Í Hljómskálanum, Café
Flóru í Grasagarðinum og kaffihús
í Dillonshúsi á Árbæjarsafni,“ segir
veitingakonan Marentza Poulsen.
„Það er búið að vera ofboðslega
skemmtilegt. Kaffihúsin eru hvert
með sínu sniði.“
Marentza lýsir mismun kaffihús-
anna þannig: „Mér finnst maður
ganga inn í annað tímabil í Hljóm-
skálanum. Mér finnst það vera sjö-
undi áratugurinn eins og það hafi
verið einhver breyting í húsinu þá.
Ég held að það sé mjög ævintýra-
legt að koma inn í þetta tónlistar-
hús sem hefur verið byggt eingöngu
fyrir tónlist. Þar geturðu setið og
séð Reykjavík í radíus.“
Að sögn Marentzu er Café Flóra
eitt ævintýri. „Fólk gengur í gegn-
um Grasagarðinn og inn í garðskál-
ann sem kaffihúsið er starfrækt í.
Fólk situr innan um plöntur Þar er
algjör kyrrð og friður, ég held að
það sé lækning í því,“ segir Mar-
entza og færir sig yfir í Dillons-
húsið. „Árbæjarsafn er alveg ein-
stakt svæði sem er eins og sveit í
borg. Þar er farið aftur í tímann
og Kaffi Dillons er gamalt fallegt
kaffihús þar sem fólk langar að fá
sér rjómapönnuköku, flatköku með
hangikjöti eða jafnvel kjötsúpu.
Mér finnst það vera forréttindi að
fá að reka kaffihús sem eru hvert
með sínu sniði.“
Marentza segir það einkenna
kaffihúsin að grænmetið sem notað
er í matinn sé eigin ræktun og þar
á meðal blóm. Kökurnar eru líka
allar heimabakaðar „Við ræktum
þessi blóm og þetta eru allt blóm
sem má borða,“ útskýrir Mar-
entza sem stækkaði matjurtagarð-
inn fyrir sumarið. „Þetta eru blóm
eins og skjaldflétta og morgunfrú,
svo eitthvað sé nefnt. Það er fullt
af skemmtilegum blómum sem fólk
getur notað í mat. Þau eru svolít-
ið sæt svo ekki vera feimin við að
borða þau.“ martaf@frettabladid.is
Hvert með sínu sniði
Veitingakonan Marentza Poulsen rekur þrjú kaffihús á mismunandi stöðum í Reykjavík. Hún segir þau
hvert með sínu sniði en einkenni þeirra sé eigin grænmetisræktun og einnig eru blóm notuð í matinn.
Kaffihúsið í Hljómskálanum er opið frá ellefu til tíu alla daga vikunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tilboð Francis Francis
Kaffivélarnar frá Illy fast í völdum verslunum:
Árvirkinn Selfossi, Byggt og búið Kringlunni, Fastus Síðumúla, Geisla
Vestmannaeyjum, Heimilistækjum Suðurlandsbraut, Kokka Laugavegi,
Byko Akureyri, Elko Keflavíkurflugvelli.
Lattemento mjólkurflóari fylgir með.
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiangans, hitans og bragðsins og
taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir.