Fréttablaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 JÖKULSÁRHLAUP fer fram í dag í stórbrotnu umhverfi Jökulsárgljúfra í Vatnajökulsþjóðgarði. Mis- munandi vegalengdir eru í boði en allar enda í Ásbyrgi. Nánari upplýsingar á jokulsarhlaup.is „Það er klárt mál að engum mun leiðast í dag, hvorki okkur né gest- unum,“ segir Nonni Quest, hár- greiðslumaður og eigandi hár- snyrtistofunnar Kristu/Quest, glaður í bragði og ekki að ósekju, því í gær voru hann og Guð- rún Elísabet Ómarsdóttir gefin saman af sýslumanni. Af því til- efni standa fyrir dyrum athöfn og veisla í dag og því morgunljóst að helgin verður viðburðarík hjá þeim hjónakornum. Að lokinni hinni formlegu hjóna- vígslu í gær gistu Nonni og Guð- rún Elísabet í svítu á Hótel Þing- holti í nótt. Fyrri hluti dagsins í dag verður nýttur í undirbúning, meðal annars hlýtur systir Nonna þann heiður að greiða hárgreiðslu- manninum á þessum mikilvæga degi. Nonni viðurkennir að tölu- verð pressa sé á systur sinni að standa sig vel í þessu ákveðna verkefni. „Ég myndi ekki vilja vera systir mín í dag,“ segir hann og hlær, en bætir við að auð- vitað treysti hann systur sinni fullkomlega fyrir verkinu. Að lokinni athöfn í Hellisgerði, þar sem hjónin setja upp hringana aftur undir berum himni, verður gengið fylktu liði að Fjörukránni í Hafnarfirði, þar sem Nonni lofar fjöri fram eftir nóttu. „Við viljum forðast öll formlegheit og bara skemmta okkur. Vinir mínir hafa stofnað hljómsveit sérstaklega af þessu tilefni og svo verður bara dansað og leikið sér.“ Nonni segist alla tíð hafa verið haldinn votti af búningablæti og því var ákveðið að búningaþemað „frá landnámi að sjálfstæði“ gilti í veislunni í kvöld. „Þetta er þjóð- legt þema og úr miklu að velja, eða klæðnaði áranna 670 til 1944. Helga Stefánsdóttir, búningahönn- uður Þjóðleikhússins, saumaði fötin á okkur hjónin og við erum alveg í skýjunum með þau. Það verður miðaldastíll á okkur, en fötin lúta samt frekar fegurðarlög- málum en ströngustu söguskoðun. Rokkstjörnuþátturinn verður nú aðeins að fá að njóta sín,“ segir Nonni og skellir upp úr. Hann býst við að brúðhjónin nýbökuðu taki því rólega og skoði gjafirnar sínar á morgun, enda væntanlega freistandi að hvíla sig örlítið eftir gleði næturinnar. kjartan@frettabladid.is Fjör fram eftir nóttu Hárgreiðslumaðurinn Nonni Quest og Guðrún Elísabet voru gefin saman hjá sýslumanni í gær. Af því tilefni verður athöfn og veisla í dag þar sem von er á skrautlegum klæðnaði og dunandi dansi. „Við viljum forðast öll formlegheit og bara skemmta okkur,“ segir Nonni Quest um brúðkaupsveisluna sem haldin verður á Fjöru- kránni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA 0000 Sængurfatnaðurinn er ofinn úr gæða bómullardamask. Yfir 30 tegundir af sængurfatnaði til brúðargjafa. Íslensk hönnun á góðu verði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.