Fréttablaðið - 24.07.2010, Side 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
JÖKULSÁRHLAUP fer fram í dag í stórbrotnu
umhverfi Jökulsárgljúfra í Vatnajökulsþjóðgarði. Mis-
munandi vegalengdir eru í boði en allar enda í Ásbyrgi.
Nánari upplýsingar á jokulsarhlaup.is
„Það er klárt mál að engum mun
leiðast í dag, hvorki okkur né gest-
unum,“ segir Nonni Quest, hár-
greiðslumaður og eigandi hár-
snyrtistofunnar Kristu/Quest,
glaður í bragði og ekki að ósekju,
því í gær voru hann og Guð-
rún Elísabet Ómarsdóttir gefin
saman af sýslumanni. Af því til-
efni standa fyrir dyrum athöfn
og veisla í dag og því morgunljóst
að helgin verður viðburðarík hjá
þeim hjónakornum.
Að lokinni hinni formlegu hjóna-
vígslu í gær gistu Nonni og Guð-
rún Elísabet í svítu á Hótel Þing-
holti í nótt. Fyrri hluti dagsins í
dag verður nýttur í undirbúning,
meðal annars hlýtur systir Nonna
þann heiður að greiða hárgreiðslu-
manninum á þessum mikilvæga
degi. Nonni viðurkennir að tölu-
verð pressa sé á systur sinni að
standa sig vel í þessu ákveðna
verkefni. „Ég myndi ekki vilja
vera systir mín í dag,“ segir hann
og hlær, en bætir við að auð-
vitað treysti hann systur sinni
fullkomlega fyrir verkinu.
Að lokinni athöfn í Hellisgerði,
þar sem hjónin setja upp hringana
aftur undir berum himni, verður
gengið fylktu liði að Fjörukránni
í Hafnarfirði, þar sem Nonni lofar
fjöri fram eftir nóttu. „Við viljum
forðast öll formlegheit og bara
skemmta okkur. Vinir mínir hafa
stofnað hljómsveit sérstaklega af
þessu tilefni og svo verður bara
dansað og leikið sér.“
Nonni segist alla tíð hafa verið
haldinn votti af búningablæti og
því var ákveðið að búningaþemað
„frá landnámi að sjálfstæði“ gilti
í veislunni í kvöld. „Þetta er þjóð-
legt þema og úr miklu að velja,
eða klæðnaði áranna 670 til 1944.
Helga Stefánsdóttir, búningahönn-
uður Þjóðleikhússins, saumaði
fötin á okkur hjónin og við erum
alveg í skýjunum með þau. Það
verður miðaldastíll á okkur, en
fötin lúta samt frekar fegurðarlög-
málum en ströngustu söguskoðun.
Rokkstjörnuþátturinn verður nú
aðeins að fá að njóta sín,“ segir
Nonni og skellir upp úr.
Hann býst við að brúðhjónin
nýbökuðu taki því rólega og skoði
gjafirnar sínar á morgun, enda
væntanlega freistandi að hvíla sig
örlítið eftir gleði næturinnar.
kjartan@frettabladid.is
Fjör fram eftir nóttu
Hárgreiðslumaðurinn Nonni Quest og Guðrún Elísabet voru gefin saman hjá sýslumanni í gær. Af því
tilefni verður athöfn og veisla í dag þar sem von er á skrautlegum klæðnaði og dunandi dansi.
„Við viljum forðast öll formlegheit og bara skemmta okkur,“ segir Nonni Quest um brúðkaupsveisluna sem haldin verður á Fjöru-
kránni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
0000
Sængurfatnaðurinn er ofinn úr gæða bómullardamask.
Yfir 30 tegundir af sængurfatnaði til brúðargjafa.
Íslensk hönnun á góðu verði.