Fréttablaðið - 24.07.2010, Side 40
24. JÚLÍ 2010 LAUGARDAGUR6 ● fréttablaðið ● hvert á að fara?
Viðbúið er að mikið fjör verði í Úthlíð í Bláskóga-
byggð um verslunarmannahelgina, þar sem
heimamenn hafa undirbúið fjölskyldudagskrá.
„Það er óhætt að segja að gestum og gangandi
muni ekki leiðast hérna, því hér verða viðburðir
og afþreying af ýmsum toga,“ segir Hjördís
Björnsdóttir, sem rekur ferðaþjónustuna í
Úthlíð.
Hjördís bendir á að á föstudeginum um versl-
unarmannahelgina verði svokallað Föstudags-
fjör í Réttinni, veitingahúsi staðarins. „Daginn
eftir leikur svo hljómsveitin Góðir landsmenn
fyrir dansi, fyrst á balli ætluðu yngri kynslóð-
inni um daginn og svo fyrir þá eldri um kvöldið
ásamt því að stýra brekkusöng. Á sunnudag er
svo létt diskó við allra hæfi og dagskránni lýkur
eftir það.“
Hjördís getur þess að samhliða því gefist
mönnum kostur að sækja ýmsa afþreyingu á
svæðinu. „Hér er meðal annars níu holu golf-
völlur í góðu ásigkomulagi þar sem keppt verður
um helgina. Krakkamót í golfi fer fram á sunnu-
dag og verðlaunaafhending og pitsuveisla að því
loknu. Þá er sundlaug við Réttina og tilvalið að
skella sér í styttri eða lengri útreiðartúra þar
sem hestaleiga er á staðnum. Loks má nefna að
hér er tjaldsvæði búið öllum helstu nútímaþæg-
indum og orlofshús sem taka allt að 50 manns.“
Gestir og gangandi geta sótt sér alls kyns afþreyingu í Úthlíð.
Þar er meðal annars þessi níu holu golfvöllur þar sem keppt
verður í golfi um verslunarmannahelgina.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Kynning
Ævintýraleg upplifun
Sumarferð jeppadeildar
Útivistar liggur um Vestfirði
dagana 31. júlí til 3. ágúst.
Hnífsdælingurinn Páll Halldór
Halldórsson leiðir hópinn.
„Þetta verður ævintýraferð því við
ætlum að keyra ýmsa slóða, gamla
línuvegi og aflagða þjóðvegi,“ segir
Páll. „Fyrsta daginn verður ekin
Þingmannaheiði á Barðaströnd
sem reyndar er illfær óbreyttum
bílum en þeir sem ekki eru á slík-
um tækjum aka bara þjóðveginn
og hitta okkur hin í Flókalundi.
Svo ætlum við að reyna að fara
línuveg sem liggur frá Dynjandis-
heiði niður í Tálknafjörð. Þar verð-
ur tjaldað til tveggja nátta.
Leiðin liggur niður á Látrabjarg
og í Keflavíkina næsta dag. Ef ein-
hver vill ganga þaðan út á Rauða-
sand er það í boði.
Verkefni þriðja dags verður að
komast til Þingeyrar. Þá keyr-
um við út í Selárdal og svo fyrir
Arnarfjörð og út í Selvogana, í
Lokinhamra og um Kjaransveg.
Það væri gott að vera með Stiklu-
þætti Ómars Ragnarssonar í tækj-
unum þann dag,“ segir Páll og
telur hrikaleikann og spennuna
magnast eftir því sem nær dragi
Þingeyri.
Morguninn eftir verður farið
upp í Kvennaskarð og framhjá
Kaldbak, hæsta fjalli Vestfjarða.
„Hugsanlega verður brölt á tind-
inn, þótt þeir sem tilheyri jeppa-
deildinni séu ekki alhörðustu
labbakútarnir,“ segir Páll hlæj-
andi. „Við kíkjum út á Ingjalds-
sand og gistum síðan tvær nætur
á Ísafirði. Tökum rúntinn þaðan út
í Skálavík, upp á Bolafjall og um
línuveg yfir á Botnsheiði. Síðasta
daginn verður ekið um Djúpið, yfir
Kollafjarðarheiði og að Bjarka-
lundi. Góð þátttaka? Í gær voru 15
jeppar búnir að skrá sig en 25 er
hámarkstala.“ - gun
Land lagt undir hjól og fót
Páll Halldór er fararstjóri í jeppaferð um Vestfirði og „mun leiða hópinn um vegi og krákustíga, fjöll og firði á þessum fagra kjálka
landsins“ eins og það er orðað á heimasíðu Útivistar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Komið verður við í Selárdal á þriðja degi ferðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DAGSGÖNGUR Í GRINDAVÍK
Menningar- og sögutengd göngu-
hátíð verður í Grindavík um helgina
með tveggja til fimm tíma göngum
hvern dag og komið heim á milli.
Fyrsta gangan er á föstudagskvöld
um gamla bæjarhlutann í Grindavík.
Hún endar með söng við tjald-
svæðið. Á laugardag verður hist við
Ísólfsskála og gengið með leiðsögn
um Selatanga. Síðan um Katlahraun
til baka. Kaffisala er í Ingólfsskála-
kaffi. Þriðja daginn er farið að
fornum rústum í Húshólma um
svæði sem býður upp á jarðfræði og
sögu. Á mánudeginum er mæting
á bílastæði Bláa lónsins en ferðinni
er heitið að gömlu Tyrkjabyrgjunum
í Sundvörðuhrauni. Bláa lónið býður upp á tvo fyrir einn í lónið í lok
göngu. Upplýsingar eru á www.grindavik.is.
Ó Ó ÓBYGGÐAFERÐ
Gengið verður um eitt
afskekktasta óbyggðasvæði
landsins dagana 28. júlí til 1.
ágúst á vegum Ferðafélags
Íslands. Ferðin hefst á Egils-
stöðum og endar á Horna-
firði og gist verður í skálum
á leiðinni. Fararstjóri verður
Hjalti Björnsson. Gönguleiðin
býr yfir miklum andstæðum.
Fyrst verður gengið um
flæðilendur Eyjabakka,
farið um brúnir eins hæsta foss á Íslandi sem þó er nafnlaus, komið við
hjá hinu afskekkta heiðarbýli Víðidal, litið á hrikaleg og litrík gljúfrin í
Lónsöræfunum og andað að sér angan af kjarri og lyngi.
eru fullir af
andoxunarefnum og vítamínum.
- enginn viðbæ ur sykur
- engin rotvarnarefni
- engin litarefni
arka ehf.
S. 562 6222 | Fax: 562 6622 | pantanir@arka.is
Básar á Goðalandi
Gott tjaldsvæði og frábært gönguland
Laugavegi 178 - Sími: 562-1000 - www.utivist.is