Fréttablaðið - 24.07.2010, Síða 64
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lítið skálað á Íslandi
Frá Frakklandi berast þau
tíðindi að sala á kampavíni
hafi rokið upp undanfarna
mánuði og þykir það
benda til að kreppunni sé
lokið. Ef aukin kampa-
vínssala er marktæk
vísbending um
batnandi efnahag eru
sölutölurnar á Íslandi
ekkert til að skála fyrir.
Aðeins 1.400 lítrar
af kampavíni seldust
hér á landi frá janúar
fram í júní, samkvæmt
upplýsingum frá ÁTVR.
Það er um 900 lítrum
minna en á sama tímabili í fyrra en
þá hrundi salan eftir að hafa verið
4.900 lítrar á fyrri árshelmingi 2007
og 5.400 lítrar 2008. Íslendingar
drekka með öðrum orðum nærri
fjórum sinnum minna kampavín en
þeir gerðu í hámarki góðærisins.
www.IKEA.is
Takmarkaður sýningafjöldi
Miðasala er hafin!
1 Nær köfnuð í beinni
útsendingu
2 Sakar Íslending á Spáni um
ofsóknir og líflátshótanir
3 „Að sjálfsögðu ósigur fyrir
okkur”
4 Farið verður eftir
óverðtryggðum vöxtum
Seðlabankans
5 Vísindamenn komnir á sporið
í leitinni að guðseindinni
6 Frekar flókin nauðgun
Ráðherra skýtur til baka
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
funduðu með fulltrúum Fjármála-
eftirlitsins og Seðlabanka í tilefni af
dómi héraðsdóms um vexti geng-
istryggðra lána í gær. Fjölmiðlar
sátu fundinn og voru fundargestir
myndaðir í gríð og erg. Heldur létti
stemninguna, sem eðli málsins
samkvæmt var þrungin alvöru,
þegar Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra brá á leik og lét
ljósmyndara bragða á eigin meðali.
Hann dró upp myndavél, „skaut til
baka“ og hafði gaman af. Ráðherr-
ann kvaðst þarna hafa
„papparassað“
ljósmyndarana,
en í útlönd-
um kallast
þeir
„pappa-
razzi“
sem elta
frægt fólk og
ljósmynda
hvar sem til
þess næst.
- bs, óká