Fréttablaðið - 07.08.2010, Page 8
8 7. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
RÚSSLAND, AP Skyggni í Moskvu-
borg mældist ekki nema nokkr-
ir tugir metra í gær vegna reyk-
mengunar frá skógareldunum.
Ferðafólki tókst að ná dulúðugum
myndum af helstu kennileitum, en
stækjan var römm og framkallaði
þrálátan hósta.
Reykurinn kemur frá eldunum
miklu sem herjað hafa á landið
undanfarið. Spáð er kyrru veðri
næstu daga í borginni þannig að
reykmengunin er ekki á förum.
Heilbrigðisyfirvöld vara fólk
við að fara mikið út úr húsi og
vera þá með grímur fyrir vitum.
Inni í húsunum er fólki ráðlagt að
hengja upp vot handklæði til að
taka í sig rykið og kæla loftið.
„Það er ekki nokkur leið að
sinna vinnunni,“ sagði Mik-
hail Borodin, tæplega þrítugur
Moskvubúi, sem kveikti sér í síg-
arettu og tók stundarkorn niður
reykgrímuna til að geta fengið
sér reyk. „Ég veit ekki hvað rík-
isstjórnin er að gera, en þeir ættu
bara að loka öllu.“
Hitarnir í Rússlandi hafa sleg-
ið öll met í sumar. Í næstu viku er
spáð allt að 38 stiga hita í Moskvu,
þar sem meðalhitinn á þessum
árstíma er um 23 gráður.
Í gær brunnu eldar á 500 stöð-
um í Rússlandi, mest í vestan-
verðu landinu. Í nágrenni höfuð-
borgarinnar sást 31 skógareldur
og fimmtán kjarreldar.
Stjórnvöld hafa viðurkennt
að tíu þúsund manna slökkvilið
landsins ráði engan veginn við
vandann. Íbúar í mörgum smærri
þorpum staðfesta það: eldarn-
ir hafa farið á ógnarhraða yfir
þorpin og skilið eftir sig auðn
eina.
Í borginni Sarov, sem er tölu-
vert fyrir austan Moskvu, börð-
ust menn við að halda eldunum
frá kjarnorkurannsóknarstöð. Í
síðustu viku ollu eldarnir miklu
tjóni á herflugvelli skammt fyrir
utan Moskvu. Allt að 200 flugvél-
ar skemmdust.
Eldarnir hafa orðið meira en
fimmtíu manns að bana, meira
en tvö þúsund hús eru eyðilögð.
Vladimír Pútín forsætisráðherra
hefur lofað því að ný hús verði
reist fyrir veturinn og hver ein-
staklingur fái jafnvirði 800 þús-
und króna í skaðabætur, sem er
nokkuð há upphæð þegar haft er í
huga að mánaðarlaun eru að með-
altali rétt innan við hundrað þús-
und krónur. gudsteinn@frettabladid.is
Kæfandi reykjarmökkur
liggur yfir Moskvuborg
Moskvubúar þurftu að setja upp reykgrímur er þeir fóru út úr húsi. Jafnvel inni í húsum smaug reykur inn í
hvern krók og kima. Eldar loguðu á fimm hundruð stöðum í vestanverðu Rússlandi. Yfir fimmtíu eru látnir.
REYKUR Í MOSKVU Varla var líft vegna reykmengunar í höfuðborg Rússlands í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson forseti sendi í gær
samúðarkveðju
til Dmitrí Med-
vedevs Rúss-
landsforseta
vegna hörm-
unganna sem
orðið hafa í
Rússlandi.
„Fjöldi lands-
manna, bæði
almennir borg-
arar og björg-
unarfólk, hefur látið lífið í kjöl-
far hinna hörmulegu elda sem
herjað hafa á landið,“ segir í til-
kynningu frá skrifstofu forseta.
- gb
Hörmungarnar í Rússlandi:
Samúðarkveðja
send frá Íslandi
DANMÖRK Mary Elizabeth, krón-
prinsessa Danmerkur, ber tví-
bura undir belti, samkvæmt
upplýsingum sem Danska ríkisút-
varpið hefur frá konungshirðinni.
Gert er ráð fyrir að Mary verði
léttari í janúar. Danska ríkis-
útvarpið segir að undanfarna
daga hafi Danir mikið velt vöng-
um yfir ástandi Mary en það
var danska slúðurblaðið Se og
Hør sem upplýsti um þungun-
ina á miðvikudag. Konungshirðin
hefur hins vegar neitað að tjá sig
um málið, allt þar til í gær. - jhh
Hirðin tjáir sig í fyrsta sinn:
Sögð ganga
með tvíbura
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
1. Af hverju verður Harpa ekki
alveg tilbúin við opnun?
2. Um hvern skrifa blaðamenn-
irnir Þórarinn Þórarinsson og
Jakob Bjarnar Grétarsson bók?
3. Upp á hverju tók Jón Gnarr
borgarstjóri við setningu Hins-
egin daga?
VÍSINDI Hegðun og persónuleiki í
æsku hefur mikið forspárgildi um
hvernig einstaklingar hegða sér á
fullorðinsárum, samkvæmt nýrri
rannsókn við Kaliforníuháskóla.
Skoðaðir voru fjórir þættir
persónuleikans; aðlögunarhæfni,
hvatvísi, sjálfsmynd og málfærni.
Mikil fylgni er sögð milli þess
hvernig einstaklingar hegðuðu sér
sem börn og svo sem fullorðnir
einstaklingar. Þannig voru hvat-
vís börn líklegri til þess að tala
hátt, hafa vítt áhugasvið og vera
ræðin á fullorðinsárum. - mþl
Ný bandarísk rannsókn:
Spáð fyrir um
hegðun seinna
VIÐSKIPTI Fjárhagslegri endurskipu-
lagningu Sparisjóðs Norðfjarðar er
lokið. Seðlabankinn leggur honum
til 150 milljóna króna stofnfé og
Byggðastofnun 240 milljóna króna
víkjandi lán í skiptum fyrir 49
prósenta eignarhlut. Við það verð-
ur stofnfé sparisjóðsins rúmar 620
milljónir króna og verður eigin-
fjárhlutfall hans 22 prósent.
Stofnfjárhlutir ríkisins hafa
verið framseldir til Bankasýslu
ríkisins sem fær tvö stjórnarsæti í
sparisjóðnum að loknum aðalfundi
í enda mánaðar. Bankasýslan aug-
lýsti eftir tilnefningum í stjórnir
þeirra sparisjóða sem fyrirséð er
að komi í eigu hennar á næstunni.
Vilhjálmur G. Pálsson sparisjóðs-
stjóri segir sparisjóðinn hafa orðið
fyrir miklu tjóni í bankahruninu
haustið 2008 og stjórn hans óskað
eftir eiginfjárframlagi frá ríkinu
í janúar í fyrra. Um svipað leyti
hafi einstaklingar og fyrirtæki í
Fjarðabyggð lagt honum til nýtt
stofnfé upp á 253 milljónir króna.
Vilhjálmur segir stöðu spari-
sjóðsins, sem er með útibú í Nes-
kaupstað og Reyðarfirði, sterka
eftir niðurstöðuna. „Við eigum að
þola verstu hugsanlegu niðurstöðu
er varða uppgjör á lánasamningum
í erlendri mynt og vel það,“ segir
hann. - jab
Í NESKAUPSTAÐ Staða Sparisjóðs Norð-
fjarðar er sterk eftir endurskipulagningu,
segir sparisjóðsstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ELMA
Seðlabanki og Byggðastofnun setja 390 milljónir króna í Sparisjóð Norðfjarðar:
Sjóðurinn þolir myntkörfuskellinn
VEISTU SVARIÐ?